Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Fimmtudaginn 14. desember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur svohljóðandi bréf frá forseta Nd.:
    ,,Ragnar Arnalds, 4. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi vestra, Þórður Skúlason sveitarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``

    Þórður Skúlason hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.