Karvel Pálmason:
Virðulegur forseti. Ég skal ekki lengja þessar umræður. Ég tel hins vegar að ræða hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar sé að miklu leyti mjög athyglisverð, enda er það svo að hv. þm. hefur í gegnum árin fylgst með þessum málum af hálfu verkalýðshreyfingarinnar og veit í sjálfu sér um hvað hann er að tala.
Það er auðvitað alveg rétt að verkalýðshreyfingin sem slík er þeirrar skoðunar, hefur verið og er þeirrar skoðunar að það eigi að vera jöfn lífeyrisréttindi til handa öllum. Og eftir því frv. sem legið hefur í skúffum ráðherra alllengi hefur verið beðið og er beðið enn.
Mig minnir að hæstv. fjmrh. hafi upplýst það í umræðum í Sþ. ekki alls fyrir löngu að hann mundi leggja fram það frv. nú á þingi í vetur. Ég man ekki betur en að það sé rétt eftir haft. ( GHG: Já, hann sagði það.) Þess vegna er í mínum huga spurning um það hvort æskilegt sé í þessari stöðu að menn séu hér að binda tvö ár. Ég hygg að menn ættu að skoða það hvort það veldur ekki erfiðleikum að menn séu hér fyrir fram að binda tvö ár fram í tímann í ljósi þess að verkalýðshreyfingin, og þá er ég kannski fyrst og fremst að tala um Alþýðusambandshlutann, hefur lengi óskað eftir því að sömu lífeyrisréttindi giltu fyrir alla.
Ég held að það væri gott fyrir hv. nefnd sem fær þetta mál til meðferðar að íhuga það --- ég er ekki að hafa á móti því ef aðstæður eru þannig að það kunni að þurfa að framlengja þetta í tvö ár. En ég held að menn eigi ekki að taka það undir í einu. Menn vilja fyrst og fremst fá ein lífeyrisréttindi fyrir alla.
Ég tek mjög undir með hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni, þó það sé kannski ekki vinsælt, að auðvitað er það nánast með ólíkindum að hinn almenni skattþegn skuli borga á annan milljarð á ári í lífeyrissjóð tiltekinna stétta á sama tíma og fjöldi hinna almennu launþega sem býr við mjög slæm kjör og skilyrði nýtur þessa ekki. Þetta er auðvitað óréttlæti sem er vart líðandi í okkar þjóðfélagi. Nú þori ég ekki að fullyrða, ég er ekki með gögnin með mér, hvort hér er verið að fara eftir samkomulaginu sem gert var, ja, aðfaranótt hátíðisdags verkalýðshreyfingarinnar, 1. maí. (Gripið fram í.) Það kann vel að vera, ég þori ekkert að fullyrða þar um, en það kemur væntanlega í ljós í umræðum í nefndinni hvort hér er verið að framfylgja því loforði eða ekki. En hinu verður heldur ekki neitað að menn komast ekkert fram hjá því úr því sem komið er að framlengja þetta um einhvern tiltekinn tíma. Það hefur gerst núna nokkuð mörg ár í röð að þetta hefur verið gert nánast undir lok þings fyrir hver áramót, að það er framlengt, en það er slæmt að það skuli gerast með þeim hætti.
Út af því sem hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson sagði að hv. þm. hefðu ekki samúð með hinum almenna launlega ( GHG: Ýmsir.) já, það hefði verið rétt að taka fram ýmsir. Það hefði átt betur við og hv. þm. mun þá trúlega leiðrétta það í ræðu. ( GHG: Ég
leiðrétti það hér með.) Já, það er gott, en hins vegar eru þeir allt of fáir. ( Sjútvrh.: Væri ekki rétt að telja þá upp?) Ja, það væri kannski gott, hæstv. sjútvrh., að hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson mundi telja þá upp hér á eftir. Það er ekki löng upptalning að mínu viti. En hitt er svo rétt að ég hugsa að allt of margir hv. þm. geri sér ekki grein fyrir
hversu mikið mál þetta er fyrir tiltekna einstaklinga sem þessa njóta. Þetta er eins og annað í jólaflóðinu, þetta flýtur hér inn og út nánast athugunarlítið eða athugunarlaust og menn átta sig ekki alltaf á hlutunum.
Ég ítreka að ég held að menn ættu að skoða það hvort menn eru ekki að taka of stóran bita með tveimur árum ef þeir á annað borð meina það, eins og hæstv. fjmrh. talaði í Sþ. fyrir nokkrum dögum síðan og sagði að hann ætli sér að leggja fram þetta frv. núna eftir áramót. Og ég trúi ekki öðru. A.m.k. er það stefna Alþfl. það ég best veit að komið verði á samræmdum lífeyrisréttindum fyrir alla landsmenn. (Gripið fram í.) Það er búið að vera stefnumál flokksins lengi. Og ég trúi því að hæstv. fjmrh., af því að hann er genginn í salinn, standi við það að leggja þetta frv. fram eftir áramót og raunar að því verði komið í höfn á næsta þingi þannig að hér þurfi ekki að vera að tala um tvö ár eins og þetta frv. gerir ráð fyrir. Menn gætu látið sér nægja eitt ár, þ.e. næsta ár í þessu tilviki ef ekkert sérstakt kemur í veg fyrir það og að menn hafi ekki tekið sinnaskiptum á næsta ári í þessum efnum. Þetta held ég að þurfi að athuga mjög gaumgæfilega og ég ítreka, ég held að hugleiðing hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar hefði átt að ná til fleiri hv. þm. en hér hlýddu á hann nú áðan.