Kísilgúrverksmiðja við Mývatn
Föstudaginn 15. desember 1989


     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég stend að því nál. sem iðnn. sendi frá sér um þetta mál en hafði þó fyrirvara við stuðning minn og vil ég lýsa honum.
    Eins og fram kom í máli hv. frsm. iðnn. voru kallaðir á fund nefndarinnar framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar hf., Róbert Agnarsson, og Árni Einarsson líffræðingur frá Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn.
    Róbert Agnarsson skýrði frá nokkrum hugmyndum að nýiðnaðarverkefnum, bæði þeim sem nýta kísilgúr sem hráefni og öðrum þeim sem byggjast á nýtingu annarra hráefna en nýta þekkingu starfsliðs verksmiðjunnar. Þessi verkefni eru enn á frumstigi og eru flest unnin í samvinnu við Iðntæknistofnun og aðra aðila hér á landi en engar ákvarðanir hafa enn verið teknar um framkvæmdir á Mývatnssvæðinu þeirra vegna.
    Í máli Árna Einarssonar kom fram að þær rannsóknir sem nú standa yfir á lífríki Mývatns eru á mjög viðkvæmu stigi og hafa ekki enn verið til lykta leiddar. Frekari rannsókna er þörf til að renna traustari stoðum undir þær niðurstöður sem þegar liggja fyrir áður en hægt er að draga af þeim ályktanir. Sá fyrirvari sem ég geri við samþykkt þessa frv. byggist fyrst og fremst á því að nýjar framkvæmdir Kísiliðjunnar hf. beinist ekki að neinum þeim verkefnum sem raskað gætu eða skaðað lífríki Mývatns frekar en orðið er, sérstaklega með tilliti til þess að rannsóknir á því eru á mjög viðkvæmu stigi og skýringar eru ekki enn fengnar á þeirri röskun eða á því hvaða orsakir hafa valdið þeirri röskun sem á því er orðin.
    Nú gilda að vísu lög um verndun Mývatns og Laxár og munu þau verða þessum lögum sterkari ef til einhverra framkvæmda kæmi. Ég tel mikilvægt að gæta mjög vel að þessum þætti málsins en jafnframt er nauðsynlegt fyrir Kísilgúrverksmiðjuna að hafa svigrúm og tíma til aðlögunar hvernig svo sem
niðurstöður rannsóknarverkefnanna falla, að hún geti nýtt bæði hæfni og þekkingu og reynslu starfsfólks í sem flest arðbær verkefni sem ekki skaða náttúru landsins. Þess vegna styð ég þetta frv.