Halldór Blöndal:
Herra forseti. Þessi atkvæðagreiðsla er um rétt skattaðila hér í þjóðfélaginu sem eiga í deilum við ríkisvaldið um það hversu háan skatt þeim ber að greiða. Í þessari grein er kveðið á um það að óheimilt sé að stöðva atvinnurekstur ef deila um skattskyldu eða skattstofn sé til meðferðar hjá ríkisskattstjóra, ríkisskattanefnd eða dómstólum og skattaðila verði ekki gefin sök á töfum á efnisúrlausn deilunnar. Þetta eru sjálfsögð mannréttindi og raunar ein af forsendum þess að við getum kallað Ísland réttarríki. Það mun vissulega vekja athygli hvaða menn greiða atkvæði gegn þessari brtt. Ég segi já.