Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Það vakti athygli mína að hæstv. fjmrh. talaði um viðhald í sinni ræðu hér áðan þegar hann var að réttlæta sína grein. En greinin er afdráttarlaus um það að viðhald fellur ekki undir þessa skilgreiningu.
Ég man ekki hvort í tekjuskattslögum nú sé miðað við 7% endurbætur í sambandi við vaxtafrádrátt. Mér er nær að halda að svo sé ekki. Ég held að engin slík heimild sé fyrir hendi og vildi gjarnan fá upplýsingar um það hvaða skattalög hæstv. fjmrh. á við með 7% viðmiðun. Hvaða skattalög eru það? Ég vildi fá það upplýst hér við umræðuna.
Hitt er auðvitað algjörlega út í bláinn að halda því fram að þetta eigi eitthvað skylt við lánveitingar úr Byggingarsjóði ríkisins. Það er auðvitað óeðlilegt að veita lán úr Byggingarsjóði ríkisins til minni háttar viðhaldsverkefna. Það er auðvitað ekki samkvæmt tilgangi sjóðsins og því eðlilegt að hafa viðmiðun tiltölulega háa þegar um það er að ræða. En hér er allt annað á ferðinni.
Ég geri ráð fyrir því að hæstv. fjmrh. muni beita sér gegn því að nokkur leiðrétting fáist á þessari grein þó svo að hann hafi mismælt sig hér í ræðunni áðan og fundist í augnablikinu sjálfsagt að þessi endurgreiðsla næði einnig til viðhalds á gömulum húsum. En það er alls ekki meiningin. Eðlilegt viðhald á gömlum húsum fellur ekki undir þessa grein samkvæmt skilningi ríkisskattstjóra og laganna bókstaf. Ég vil vekja athygli hæstv. fjmrh. á þessu loksins þegar hann bar sig til við að reyna að svara hér úr stólnum.
Ég legg hér fram skriflega brtt. sem ég óska eftir að komi til atkvæða.