Virðisaukaskattur
Föstudaginn 15. desember 1989


     Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
    Herra forseti. Ég man ekki þingsköp alveg. Hef ég ekki sem frsm. fyrir nefnd heimild til að tala þrisvar? Ég man það ekki. En það er ekki kjarni málsins. Kjarni málsins er sá að sé það rétt skilið hjá hv. 5. þm. Reykv. að ég hafi sagt að ríkisskattstjóri hafi unnið illa, þá hef ég sagt annað en ég hugsaði. Það var ekki mín meining. Mín meining var að leggja áherslu á að ríkisskattstjóri hefði fundið til þess að geta ekki svarað spurningum frá fulltrúum atvinnuveganna vegna þess að svörin lágu ekki fyrir. Svo einfalt er málið. Og augljósast var þetta að sjálfsögðu þegar við áttum fund með fulltrúum sveitarstjórnarmanna eins og raunar kom glöggt fram í orðum fjmrh. sjálfs hér fyrr í dag því að hann svaraði nánast engu um þau álitaefni sem uppi eru milli ríkisstjórnarinnar og sveitarfélganna. Og slík álitamál voru miklu, miklu fleiri. Hins vegar hafa starfsmenn ríkisskattstjóra og starfsmenn fjmrn. auðvitað lagt sig fram og ég efast ekki um að vilji þeirra standi til þess að framkvæmd laganna verði eins og best verður á kosið.