Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Aðeins örstutt um það mál sem hér liggur frammi. Þetta frv. til laga um uppboðsmarkað fyrir sjávarafla er að vísu ekki mikið að umfangi en þetta er mjög mikilvægt mál. Tilkoma uppboðsmarkaðanna hefur breytt hlutum til góðs, sérstaklega hér á Reykjanessvæðinu. Ég nefni markaðinn á Suðurnesjum, ég nefni markaðinn í Hafnarfirði og ég nefni markaðinn hér í Reykjavík. Ég er því mjög fylgjandi að þetta mál fái fljóta og góða afgreiðslu og fagna því að það skuli fram komið þó það hefði mátt koma hér fyrr fram.
Sú reynsla sem er þegar af þessum mörkuðum er til góðs og hefur sýnt sig að aukinn áhugi hefur verið á að nýta sér þessa möguleika í sölu á afla og hefur gefið sjómönnum og útgerðarmönnum hærra verð en þeir fengju annars. Jafnframt hefur oft og tíðum verið hagstæðara að selja fisk hér innan lands en á erlendum mörkuðum beint. Ég fagna því þessu frv. og mun styðja þetta í meðferð nefndarinnar þegar það kemur þangað.