Stofnun og slit hjúskapar
Föstudaginn 15. desember 1989


     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Ég bið afsökunar á því að ég var kallaður hér fram fyrir dyrnar áðan þannig að ég var ekki viðstaddur þegar mælt var fyrir nál. en hv. 2. þm. Reykn. hljóp í skarðið fyrir mig og hefur lýst þeim sjónarmiðum sem komu fram í nefndinni varðandi þetta mál. Ég er honum sammála um þá röksemdafærslu, og ég skil satt að segja ekki það mikla vantraust á þeim embættismönnum sem eru taldir upp hér í grg. sem kemur fram í máli hv. 13. þm. Reykv. Ég vil benda á það að einnig kemur fram í athugasemdum við frv. að það er unnið að heildarendurskoðun laga þessara þannig að þetta fyrirkomulag verður ekki til langframa og það er náttúrlega sjálfsagt að skoða þessi mál í heild sinni því að auðvitað er ég sammála hv. 13. þm. Reykv. um það að hér er um mjög viðkvæm persónuleg málefni að ræða. Ég held að það sé satt að segja mjög ríkur þáttur í starfi einmitt þeirra löglærðu embættismanna sem hér er um að ræða að fara með viðkvæm persónuleg málefni og jafnvel viðkvæmari en þessi eru þó að ég sé ekki að draga úr því að hér er um mjög vandmeðfarin mál að ræða.