Stofnun og slit hjúskapar
Föstudaginn 15. desember 1989


     Ásgeir Hannes Eiríksson:
    Virðulegi forseti. Á Húsavík var lengi sýslumaður sem hét Júlíus Havsteen og sonur hans og fleiri ættmenni hafa komið mjög við sögu stjórnmála hér í þessu landi. Fjölskylduvinur minn einn starfaði hjá Júlíusi sem lögreglumaður á Þórshöfn og sagði mér frá því þegar Júlíus kom þangað í embættiserindum vegna þess að borist hafði kvörtun um mann sem bjó skammt frá bænum og var grunaður um brugg. Lögregluþjónninn og yfirvaldið gengu heim til mannsins. Júlíus spurði konuna sem kom til dyra hvort bóndi væri heima. Hún sagði nei, hann hafði farið frá. Þá bað Júlíus fyrir kveðju til hans, sagði að hann hefði heyrt að það væri einhver orðrómur í gangi í sveitinni að hjá honum væri brugg að finna. Hann sagðist nú ætla inn í dalinn en mundi koma við í bakaleiðinni til þess að leita hjá honum. Þegar þeir gengu burtu, lögregluþjónninn og sýslumaðurinn, spurði lögregluþjónninn sýslumanninn: Var þetta nú klókt af þér að beinlínis vara konuna við að þú mundir koma við í bakaleiðinni að leita? Sýslumaður þagði um stund, leit síðan á lögregluþjóninn og sagði: Elsku vinur. Það leikur sér enginn að því að senda mann frá fjórum börnum í fangelsi.
    Þessi setning lýsir yfirvaldi eins og yfirvald á að vera. Svona eiga sýslumenn að vera. Ég vorkenni ekki þeim hjónum sem leita til sýslumanna á borð við Júlíus Havsteen eða á borð við hæstv. þm. Friðjón Þórðarson. A.m.k. er það alveg ljóst í mínum huga að ef prestar og forstöðumenn trúfélaga duga ekki til, ef ættingjar duga ekki til, vinir, kunningjar og annað fólk sem stendur næst hjónum sem eru u.þ.b. að taka þá alvarlegu ákvörðun að slíta hjúskap, ef það dugir ekki til að halda fjölskyldunni saman, þá er yfirvald, þ.e. sýslumenn, ekki lakari kostur en það stóð af sérfræðingum sem komið er til starfa í þjóðfélaginu í dag með þeim misjafna árangri sem raun ber vitni því miður.