Viðskiptabankar
Föstudaginn 15. desember 1989


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 86 frá árinu 1985 um viðskiptabanka. Þetta frv. kemur frá hv. Ed. Frv. þetta er flutt í tilefni af samningi sem var gerður 29. júní sl. en í honum var samið um sölu á hlutabréfum ríkissjóðs í Útvegsbanka Íslands hf. til þriggja hlutafélagsbanka, þ.e. Alþýðubankans hf., Iðnaðarbanka Íslands hf. og Verslunarbanka Íslands hf. og um sameiningu á bankarekstri kaupenda á Útvegsbanka. Síðar var svo nafni Útvegsbanka Íslands hf. breytt í Íslandsbanka hf. á hluthafafundi í félaginu.
    Hér er um fyrirkomulag að ræða sem ekki er gert ráð fyrir í núgildandi viðskiptabankalögum. Þar er vissulega gert ráð fyrir sameiningu banka en ekki að bankastarfsemi sé sameinuð án þess að hlutafélög þau sem að bönkunum standa séu einnig sameinuð. Reyndar er að slíku stefnt í framtíðinni hvað Útvegsbanka Íslands hf. varðar, nú orðinn Íslandsbanka, en af ýmsum ástæðum þótti kaupendum hlutabréfa ríkissjóðs heppilegra að framkvæma þennan samruna í áföngum þannig að fyrst verður rekstur bankanna sameinaður en hlutafélög þeirra halda áfram sem eignarhaldsfélög. Síðar munu svo fara fram hlutabréfaskipti þar sem hluthafar í eignarhaldsfélögunum fá hlutabréf í Íslandsbanka hf. í skiptum fyrir bréf sín í eignarhaldsfélaginu.
    Þegar þessi kaup voru gerð á sl. sumri hét ég því að flytja frv. um þetta efni sem tæki af tvímæli um heimild til þess að framkvæma samruna bankastofnana á þennan hátt. Ég hafði reyndar vonast til þess að geta um leið lagt fram skýrslu um sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Útvegsbanka Íslands hf. en
því miður er enn ekki lokið þeim reikningsuppgjörum sem nauðsynleg eru til þess að gera því máli viðhlítandi skil. Ég tel nauðsynlegt að slík uppgjör komi fram í skýrslu um sölu hlutabréfanna og verður hún því að bíða eftir því að slík uppgjör hafi verið gerð en mér er nú tjáð að þau verði væntanlega tilbúin á næstu vikum. Um tíma var áformað að leggja í þessu frv. til breytingar á öðrum lögum þar sem nafn Íslandsbanka hf. kæmi í stað Útvegsbanka Íslands og bankanna þriggja sem keyptu bréf ríkissjóðs í Útvegsbankanum en nöfn þessara banka koma að sjálfsögðu fyrir í nokkrum sérlögum.
    Ég hef horfið frá þessu a.m.k. í bili. Að hluta er skýringin sú að mörg þessara laga eru úrelt orðin og hef ég vakið athygli lagahreinsunarnefndarinnar á því. Enn önnur fjalla um fjárfestingarlánasjóði og þarfnast breytingar á skipulagi fjárfestingarlánasjóðanna frekari umfjöllunar og mun ég m.a. ræða það mál við forsvarsmenn bankanna þriggja og við fleiri aðila á næstunni. Ég stefni að því að flytja tillögur um skipulag fjárfestingarlánasjóðanna síðar á þessu þingi. Ég hét kaupendum hlutabréfa ríkissjóðs í Útvegsbankanum því á sl. sumri að beita mér fyrir einföldum breytingum á þessum lögum eins og sameining bankanna gefur tilefni til, en þær formbreytingar verða þá að bíða raunverulegra og

efnislegra breytinga á skipulagi fjárfestingarlánasjóðanna. Ég vil taka það fram að ég hef áður lýst þeirri skoðun minni, og það gerði ég einnig við kaupendur hlutabréfanna í vor, að taka ætti löggjöf um fjárfestingarlánasjóðina til endurskoðunar í heild. Ég er enn þeirrar skoðunar að næsta skref í endurskipulagningu á stofnunum íslenska fjármagnsmarkaðarins eigi að vera sameining fjárfestingarlánasjóða í færri og sterkari stofnanir sem ekki séu hólfaðar sundur eftir atvinnugreinum. Ég tel að ábyrgð opinberra aðila, einkum ríkissjóðs, á slíkum lánasjóðum, skattfríðindi þeirra og fleiri atriði eigi að vera efni í almennri löggjöf. Að slíkri almennri löggjöf vil ég stefna.
    Ég þarf ekki að hafa mörg orð um einstakar greinar þessa frv. Efnisgreinarnar eru aðeins tvær og í þeirri fyrri er lagt til að litið verði á sameiningu bankarekstrar sem fullkomna hliðstæðu samruna viðskiptabanka í heild skv. núgildandi lögum.
    Í henni er einnig fjallað um það að viðskiptamenn sameinaðrar bankastarfsemi skuli fá vitneskju um þau atriði sem máli skipta fyrir þá í tengslum við sameininguna og loks eru þar ákvæði sem mæla fyrir um undanþágu á stimpilgjöldum af þeim margvíslegu skjölum sem þinglýsa þarf í tengslum við sameiningu bankanna. Það eru raunar mörg fordæmi fyrir slíkri undanþágu þegar samruni verður í slíkri starfsemi og má t.d. nefna 9. gr. laganna um stofnun Útvegsbanka Íslands hf.
    Síðari efnisgrein þessa frv. fjallar um ný bráðabirgðaákvæði við viðskiptabankalögin. Hún tekur mið af því fyrirkomulagi í Íslandsbanka hf. að hlutafélög kaupendanna starfa fyrst um sinn áfram sem eignarhaldsfélög sem eiga hlut í félaginu Íslandsbanki hf. Í fyrsta lagi er lagt til að fulltrúum eignarhaldsfélaganna verði veitt atkvæðamagn í hlutfalli við hlutafjáreign og þykir það réttlætanlegt í því tilfelli sem hér er um að ræða, enda þótt hin almennu ákvæði viðskiptabankalaganna feli í sér takmörkun atkvæðisréttar við fimmtung í félaginu. Enda má segja að á bak við eignarhaldsfélögin standi ákveðnir hagsmunahópar með vissum hætti og reyndar er hér um það að tefla að félög sem eingöngu hafa stundað bankastarfsemi mynda saman rekstur í nýjum
banka. Öllum er þó ljóst að þessi skipan með eignarhaldsfélög verður ekki til frambúðar og þess vegna er þetta hér fært í ákvæði til bráðabirgða en ekki í breytingu á 6. gr. viðskiptabankalaga.
    Hér er einnig lagt til að ríkissjóður hafi sama rétt og eignarhaldsfélag hvað það snertir að njóta fulls atkvæðisréttar í hlutfalli við hlutafjáreign í hlutafélagsbanka. Reyndar má segja að ekki sé sérstök þörf fyrir þetta ákvæði eins og sakir standa og það sama á við um viðskiptabanka í eigu ríkisins, en á það kann að reyna síðar t.d. ef hlutafélagsbanki sameinast ríkisbanka í rekstri eða ef ríkisbönkunum kynni að verða breytt í rekstur með takmarkaðri ábyrgð eins og í hlutafélagsformi. Þá er í öðru lagi lagt til að eignarhaldsfélögunum verði heimilt að kallast áfram bankar en með orðinu ,,eignarhaldsfélag``

viðbættu framan við nafn félagsins.
    Hæstv. forseti. Þetta frv. er nokkru seinna á ferðinni en ég hafði í upphafi ætlað mér. Ástæðurnar fyrir því eru margvíslegar, m.a. töfin sem ég nefndi á uppgjöri vegna viðskiptanna með hlutabréf ríkisins í Útvegsbanka Íslands hf., en einnig hitt að það tók meiri tíma en ætlað var að ná samkomulagi um málið við kaupendur bréfanna. Hins vegar ber nú brýna nauðsyn til þess að afgreiða þetta frv. sem lög frá Alþingi fyrir áramót, en þá tekur Íslandsbanki hf. til starfa. Ég vil því mælast til þess að þetta frv. fái skjóta en um leið vandaða meðferð hér í deildinni og að því verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn.