Launaskattur
Mánudaginn 18. desember 1989


     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegur forseti. Ég vil taka undir orð hv. 8. þm. Reykv. Eyjólfs Konráðs Jónssonar um það að með þessu frv., eins og mörgum öðrum frv. í sambandi við skattamál, er verið að þrengja stöðu láglaunafólks. Ég vil einnig vekja athygli virðulegs forseta á því að hér í sal eru ekki svokallaðir fulltrúar félagshyggjuflokkanna að undanteknu því að hér situr --- ja, hv. þm. Jóhann Einvarðsson telst nú til samvinnuhreyfingarinnar, það flokkast ekki undir verkalýðshreyfinguna eða félagshyggjuflokkana. ( JE: Félagshyggjuflokka.) Ég verð nú að hryggja hv. þm. með því að það er ekki hægt að telja Framsfl. lengur félagshyggjuflokk. Hann er flokkur yfirstéttar stjórnmálamanna á Íslandi og hefur það markmið eitt að tryggja þeirri yfirstétt völd á hverjum tíma. Þannig að ég held að ég afgreiði nú hv. framsóknarmann og þingmann með því.
    En það er, virðulegur forseti, eftirtektarvert að hér í þessum þingsal sjást ekki fulltrúar félagshyggjuflokkanna. Ég tel ekki Karvel Pálmason lengur í Alþfl. Það vantar hér fulltrúa Alþfl., ég tala nú ekki um Alþb., til að fjalla um þessi mál því það er, eins og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson sagði, verið að þrengja enn meira stöðu láglaunafólks. Þetta er eitt dæmið um ofsóknir vil ég segja núv. ríkisstjórnar á hendur íslensku atvinnulífi. Staða atvinnulífsins versnar sem nemur þeim skatthækkunum hjá fyrirtækjunum sem m.a. þetta frv. felur í sér.
    Þetta frv. skerðir svigrúm fyrirtækjanna enn meir til að tryggja kjör launafólks og mun hafa mjög skaðleg áhrif á stöðu verkalýðsfélaganna, samningsstöðu verkalýðsfélaganna sem nú eru að hefja samningaviðræður við vinnuveitendur. Ég veit að hv. þm. Karvel Pálmason hlýtur að skilja það að með þessu innheimtufyrirkomulagi á launaskattinum sem birtist í þessu frv. er verið að skaða stórlega samningsstöðu verkalýðshreyfingarinnar í þeim samningum sem fram undan eru.
    Ég veit að það er léttvægt hjá hæstv. ráðherrum, hæstv. fjmrh., sem hefur nú engan áhuga fyrir launafólki úti á hinum almenna vinnumarkaði, hann gegnir hér allt öðru hlutverki. ( Fjmrh.: Það er ekki rétt.) Það er því miður rétt, hæstv. fjmrh. Ég var að fjalla um það frv. ráðherrans sem felur það í sér að þrengja stöðu þeirra fyrirtækja, þ.e. fyrirtækjanna í atvinnulífinu sem verkalýðsfélög á samningssviði ASÍ eiga nú í samningum við. Ef hæstv. fjmrh. skilur það ekki að svona skattheimta gerir samningsstöðu verkalýðsfélaganna lakari, þá segir hann ósatt því ég veit að greind hans er þeirrar gerðar að hann gerir sér fullkomlega grein fyrir því að þetta frv., ásamt fleiri frv. sem hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson nefndi hér áðan, þá var hæstv. fjmrh. ekki viðstaddur, stórskaðar samningsstöðu verkalýðshreyfingarinnar. En það getur verið að hæstv. fjmrh. sé að hugsa um að tryggja stöðu annarra, þ.e. þessarar nútíma íslensku valdastéttar sem hefur hrifsað til sín völdin í nafni félagshyggju en stendur síðan ekki við það sem er

ekki von.
    Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að fara hér mörgum orðum um þetta frv. Ég vildi undirstrika það að ég veit að fenginni reynslu sem forustumaður í verkalýðshreyfingunni að svona frv., svona skattheimta skaðar stórlega stöðu láglaunafólks.