Launaskattur
Mánudaginn 18. desember 1989


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég beindi mjög skýrri fsp. til hæstv. fjmrh. áðan sem hann svaraði ekki, og raunar mörgum, en ég óska eftir að hann svari þeirri fyrirspurn áður en lengra heldur þessum umræðum. Hann hefur tekið upp þann sið að svara ekki og ég held að nauðsynlegt sé að við notum tímann og hann svari, og við fáum hann hingað í deildina. Úr því að hann er ekki mættur óska ég einnig eftir að hæstv. forsrh. komi í salinn.
    Ég beindi fyrirspurnum til hæstv. viðskrh. sem hann hefur ekki séð ástæðu til að svara heldur. Svo vakti ég athygli hæstv. sjútvrh. á því að hans embættisferill hefði fengið heldur bága dóma hjá núv. hæstv. fjmrh., en ég sá og heyrði á viðbrögðum hæstv. sjútvrh. að hann ætlar öðrum að verja heiður sinn í því sambandi og má þá kannski segja að heiður hans gæti verið í verri höndum en í höndum okkar sjálfstæðismanna sem reynum auðvitað að bera blak af
honum þegar hvað harðast er veist að honum af Alþb. og Alþfl. í sambandi við feril hans sem sjútvrh. fram á haust 1988.
    Hæstv. fjmrh. er kominn hér í salinn. Ég beindi þeirri fyrirspurn til hæstv. fjmrh. áðan hvernig hann hygðist bregðast við því nú þegar komið væri í ljós að hann hefði vanmetið þær tekjur sem kæmu af virðisaukaskattinum. Ég las upp úr fréttatilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum hinn 11. okt. sl. þar sem fram kom að miðað við 26% virðisaukaskatt gæfi hann jafnmikið af sér og núverandi söluskattskerfi. Nú hefur komið í ljós að þetta er rangt. Nú hefur hæstv. fjmrh., eða hagdeild hans, sent okkur í fjh.- og viðskn. þessarar deildar yfirlýsingu um að þetta hafi verið vitlaust reiknað, og skakkar um 2 milljörðum a.m.k. Jafnframt liggur það ljóst fyrir að formaður fjh.- og viðskn. hefur lýst yfir að hann samþykki skattahækkanir núna eingöngu vegna þess að hann vilji halda sköttum óbreyttum frá þessu ári. Nú kom ekki fram hjá hæstv. fjmrh. áðan í hans svari af öðru tilefni hvað hann vildi segja um þetta hér í deildinni. Vill hæstv. fjmrh. bregðast við með þeim hætti sem væri karlmannlegt, að hætta við alla aukaskattana sem hann er búinn að ákveða að leggja á, hætta við hækkunina á tekjuskattinum, hætta við hækkunina á bensíngjaldinu og vill hann hætta við að skattleggja orkufyrirtækin? Þessu vildi hann ekki svara, hæstv. fjmrh. Hið sama á við, hæstv. forseti, um viðskrh. Hann svaraði ekki þeim spurningum sem ég beindi til hans.
    Nú er það svo um launaskatt að hann hefur þann eiginleika að leggjast á kostnað og af þeim sökum dregur hann úr samkeppnishæfni innlendra fyrirtækja gagnvart erlendum þar sem hann er þyngstur og nú er það líka ljóst að mörg verslunarfyrirtæki munu verða fyrir meiri fjárbindingu en áður vegna virðisaukaskattsins og það er alveg ljóst að hæstv. fjmrh. er með þessari breytingu á launaskattinum enn að auka fjárbindingu atvinnufyrirtækja. Það kom fram

í fjh.- og viðskn. að einn af nefndarmönnum úr stjórnarmeirihlutanum hafði á þessu sérstaklega góðan skilning. Var svo að skilja á honum að hann teldi að fyrirtæki í landinu ættu helst öll að greiða sína skatta fyrir fram því það mundi að lokum leiða til þess að þau ættu verulega fjármuni inni hjá ríkinu ef þessi fyrirtæki hættu rekstri og taldi að þetta mundi leiða til mikils stöðugleika í atvinnurekstri og til frambúðar mundi þetta verða léttvægara fyrir fyrirtækið sem er að sjálfsögðu mikill misskilningur og sýnir ekki annað en hversu gott taumhald fjmrh. hefur á sínum mönnum. Vekur líka athygli hversu litlum skilaboðum þingmenn ríkisstjórnarinnar þurfa að koma til sinna stuðningsmanna þegar hér er verið að ræða svo flókna hluti eins og t.d. skattkerfisbreytingu. Maður gæti haldið að þingmenn Alþfl. hefðu t.d. eitthvað um það að segja. Maður hefði getað látið sér detta það hug. En þeir hafa nú minnst um flest að segja nú orðið.
    Ég sé að það er mikil atkvæðagreiðsla í Nd. Allt tekur mikinn tíma þó svo að einstakir stjórnarþm. hafi ákveðið að þeir muni vilja greiða fyrir þessum skattafrv. er það nú samt svo að meiri hlutinn er tregur til að fara í stólana. Mér mundi finnast eðlilegast úr því sem komið er að þessari umræðu yrði frestað þannig að forsrh. hefði svigrúm til að koma hingað inn, en nú á sér stað atkvæðagreiðsla í Nd. þannig að e.t.v. er hægt að taka á dagskrá eitthvert mál sem ekki varðar skattheimtu, en þar eru ákveðin atriði sem ég þarf að fá upplýsingar um. Auðvitað tekur þetta lengri tíma þegar ráðherrar svara ekki einföldustu spurningum. (Gripið fram í.) Ég tel einfaldast að fresta fundi meðan atkvæðagreiðslur eru í Nd. Ég ætla að láta á það reyna hvort fjmrh. svarar við umræðurnar núna á eftir. Ef hann er ákveðinn í því að svara ekki, þá skil ég það og þá mun ég láta á það reyna enn þá frekar. Ég sætti mig ekki við að hann svari ekki, það er alveg ljóst og vil að honum sé það alveg fyllilega ljóst. (Gripið fram í.) Það gengur svo. Er ekki hægt að ná í hæstv. aðalforseta og bera það þá undir hann hvort hann telji ástæðu til að ég standi hér öllu lengur án þess að ... (Gripið fram í.) Ég ætla að ljúka ræðu minni fyrst, hæstv. fjmrh. ( Fjmrh.: Já, já.) Og ég lýk henni ekki á meðan hæstv. fjmrh. svarar. Best að ljúka ræðunni fyrst. Hæstv. fjmrh. hafði möguleika á að svara áðan, en hann gerði það ekki. Ég hafði látið hæstv.
fjmrh. vita að nú ætlaðist ég til þess að hann svaraði. Og við skulum hafa það alveg skýrt okkar á milli að ef ég ætlast til að hæstv. fjmrh. svari, þá mun ég láta á það reyna hvort hann vill svara eða ekki.
    Ég spyr enn, hæstv. forseti, hvort ekki sé rétt --- það er mikil atkvæðagreiðsla í Nd. um tekjuskattsfrv. Ég óska eftir að þessari umræðu sé frestað. ( Forseti: Það kann að vera að það sé hyggilegt að fresta þessari umræðu ef þm. getur ekki sætt sig við að ...) Ég get ekki sætt mig við annað. Hæstv. fjmrh. átti kost á að svara áðan. Ég vil ljúka minni ræðu. ( Forseti: Það væri þá frekar að taka fyrir annað mál sem er hér á dagskrá og fresta umræðu um þetta mál í bili.) Ég hef, hæstv. forseti, ekki athugasemdir við

það að gera ef málið heyrir ekki undir fjmrh. En ef málið heyrir undir fjmrh. hef ég athugasemdir við það að gera. ( Forseti: Forseti hugðist taka fyrir 5. mál á dagskrá um námslán og námsstyrki. Það er ekki beint skattamál.) Ég hef ekki athugasemdir við það.