Tekjustofnar sveitarfélaga
Mánudaginn 18. desember 1989


     Frsm. félmn. (Jóhann Einvarðsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 358 um frv. til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 91/1989, frá félmn. Nefndarálitið er svohljóðandi, með leyfi forseta:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk til viðræðna um það Húnboga Þorsteinsson, skrifstofustjóra í félmrn., Magnús E. Guðjónsson, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Steinþór Haraldsson, lögfræðing við embætti ríkisskattstjóra.
    Nefndin mælir með samþykkt frv. en leggur jafnframt til smábreytingu á 34. gr. laganna til að eyða öllum vafa um það hverjir eru undanþegnir aðstöðugjaldsskyldu. Breytingartillaga nefndarinnar er flutt á sérstöku þingskjali.
    Margrét Frímannsdóttir og Jóhannes Geir Sigurgeirsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.``
    Undir þetta nál. rita sá sem þetta mælir, Guðmundur H. Garðarsson, Salome Þorkelsdóttir, Karl Steinar Guðnason og Danfríður Skarphéðinsdóttir.
    Brtt. sem við flytjum er á þskj. 359. Hún er um það að það komi ný 3. gr. sem taki af öll tvímæli. Þar er tilvitnun í a-lið 34. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga og svo er vitnað aftur í tekjuskattslögin, 4. gr., til að taka af öll tvímæli um það hverjir eru undanþegnir aðstöðugjaldsskyldu.
    Þeir sem komu á fund okkar í morgun, eins og getið er um í nál., mæla allir með samþykkt frv. eins og það var lagt fyrir með þessari breytingu, en hér er fyrst og fremst um tæknilegar breytingar að ræða og til að taka af vafaatriði um framkvæmd þessara mála.