Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Ég skal ekki hafa miklar málalengingar um þetta frv. sem hér er til umræðu. Ég vil aðeins nota þetta tækifæri til að fagna því að hv. fjh.- og viðskn. skuli hafa sameinast um að flytja þetta frv. sem ég held að sé mjög til bóta.
    Eins og fram kom hjá hv. síðasta ræðumanni og frsm. nefndarinnar er hér á ferðinni að stofni til frv. sem var flutt á þskj. 97 sem var og er 96. mál þingsins. Þess skal getið að það frv. var flutt ásamt öðru frv. af hv. þm. Sjálfstfl. í Nd. Því miður náðist ekki samkomulag um að taka bæði frumvörpin inn í tillögur nefndarinnar en 1. minni hl. hv. nefndar í frv. til laga um tekjuskatt og eignarskatt mun gera tillögur sem byggjast á því frv. sem ekki náðist samkomulag um í nefndinni en flutt er af sömu aðilum.
    Ég tel að með því að Alþingi samþykki þetta frv. sem hér er sé komið til móts við þau sjónarmið sem við höfum haldið fram að undanförnu, bæði á sl. vetri og eins nú í haust, að treysta þurfi eiginfjárstöðu fyrirtækjanna. Það sé gert m.a. með þeim hætti sem hér er lýst. Ég vil vekja sérstaka athygli á 4. gr. frv., en í henni segir að nú gildi sömu reglur um starfandi hlutafélög og nýstofnuð hlutafélög áður þannig að nú nægir að líkleg áform liggi fyrir, að mati ríkisskattstjóra, og njóta þá slík fyrirtæki þeirra ívilnana sem koma fram í 11. gr. laga nr. 9/1984.
    Fleira sé ég ekki ástæðu til að taka fram varðandi þetta frv. en vil þakka meiri hl. fyrir ágæta samvinnu um að koma þessu frv. hér til hv. deildar og síðan til Ed. Væntanlega verður þetta frv. að lögum, mörgum meðalstórum og minni fyrirtækjum til hagsbóta.