Frsm. sjútvn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
Virðulegi forseti. Sjútvn. hefur fjallað um frv. um Fiskveiðasjóð Íslands. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru í meðförum Ed. Geir Gunnarsson og Hreggviður Jónsson voru fjarstaddir afgreiðslu málsins. Undir þetta nál. skrifa Alexander Stefánsson, Kristinn Pétursson, Matthías Bjarnason, Guðni Ágústsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.