Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en viðskrh. tekur til máls vill forseti upplýsa að klukkan tvö verður þessum fundi slitið og umræðunni frestað. Síðan verður gefinn einn klukkutími fyrir þingflokksfundi að beiðni þingflokks framsóknarmanna og nýr fundur settur klukkan þrjú. Þá verða fjáraukalög tekin fyrir en að loknum deildafundum verður fundur settur í Sþ. og þá fram haldið umræðu um viðræður EFTA við Efnahagsbandalagið. Þannig er áætlun dagsins.