Þorsteinn Pálsson (um þingsköp) :
    Frú forseti. Það kom fram hér fyrr í umræðunni af hálfu forseta að ætlunin væri að framhald þessarar umræðu færi fyrst fram eftir að deildarfundum lýkur. Ég vil eindregið óska eftir því að þessari umræðu verði fram haldið á næsta fundi í sameinuðu þingi og í öllu falli ekki síðar en að umræðu um fjáraukalög er lokið þannig að umræðan fari fram áður en til deildafunda kemur. Ég minni á það sem hæstv. viðskrh. gat hér um í ræðu sinni áðan að sameiginlegum fundi ráðherra Evrópubandalagsins og EFTA er að ljúka í dag og það er býsna niðurlægjandi fyrir Ísland og íslenska utanrrh., sem er formaður EFTA-ráðsins um þessar mundir, að umræðunni í hans heimaþingi skuli ekki vera lokið þegar þessi mikilvægi fundur fer fram. Ég er þeirrar skoðunar að það minnsta sem Alþingi Íslendinga geti gert til þess að reyna að rétta svolítið hlut hæstv. utanrrh. sé að tryggja að umræðunni ljúki hér sama dag og þessi mikilvægi fundur á sér stað í Brussel. Af þeim sökum ítreka ég ósk mína um að framhald umræðunnar fari fram alltént áður en til deildafunda kemur, helst áður en umræður um fjáraukalög fara fram.