Fjáraukalög 1989
Þriðjudaginn 19. desember 1989


     Frsm. meiri hl. fjvn. (Sighvatur Björgvinsson):
    Virðulegi forseti. Fjvn. Alþingis hefur nú lokið umfjöllun sinni um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989. Meiri hl. nefndarinnar flytur breytingartillögur á sérstöku þingskjali og mæli ég hér fyrir áliti meiri hl. Minni hl. fjvn. skilar séráliti á sérstöku þingskjali. Í nál. minni hl. og í ræðum fjárveitinganefndarmanna úr minni hl. fjvn. í þinginu munu þeir væntanlega gera grein fyrir afstöðu sinni. Í fjvn. kom hins vegar fram að samstaða er í nefndinni milli meiri hl. og minni hl. um hvernig að afgreiðslunni hefur verið staðið og full eining er einnig í fjvn. um þau vinnubrögð sem nefndin hefur ástundað varðandi afgreiðslu þessa frv. og er það mikilvægt atriði að slík eining hafi náðst vegna þess að sú afgreiðsla markar nokkur tímamót.
    Í fyrsta skipti er fjvn. að fjalla um frv. til fjáraukalaga sem lagt er fram á viðkomandi fjárlagaári. Virðulegi forseti. Ég hlýt að minnast þess að þegar það frv. var lagt hér fram á sínum tíma var sérstaklega tekið fram af hæstv. fjmrh. að með því væri til þess ætlast að fjárveitingavaldið, Alþingi, gæti
tekið afstöðu til þeirra aukafjárveitingatillagna sem í því frv. væru og tekið sjálfstæða ákvörðun um að hve miklu leyti Alþingi vildi fallast á þær aukafjárveitingaóskir sem í frv. fælust frá hæstv. ríkisstjórn. Og hæstv. fjmrh. tók það einnig fram í ræðu sinni er hann fylgdi frv. úr hlaði að hann hefði haldið þannig á málum að ekki hefði verið greitt út af þessum aukafjárveitingum nema það eitt sem algerlega óhjákvæmilegt væri að greiða. Alþingi gæti þannig tekið endanlegar ákvarðanir um greiðsluheimildir þær sem farið væri fram á og að sjálfsögðu gætu hæstv. ráðherra og ríkisstjórn átt von á því að þær yrðu ekki allar samþykktar. Undir þessum formerkjum tók fjvn. við þessu frv. og þau vinnubrögð sem nefndin hefur markað um meðferð og afgreiðslu málsins eru fordæmi um slík vinnubrögð í framtíðinni og er því mikilvægt að full samstaða skuli hafa tekist í fjvn. um hvernig með skuli fara. Þá kom einnig fram á fundum fjvn. að fulltrúar minni hl. eru sammála sumum þeim tillögum sem meiri hl. fjvn. flytur á þskj. 367.
    Ég vil einnig taka fram, virðulegi forseti, að nefndarmenn í meiri og minni hl. hafa unnið saman að afgreiðslu þessa máls og í miklum önnum hefur allt það verið gert af hálfu beggja aðila til þess að fá fram afgreiðslu þessa máls með sem bestum hætti og sem skemmstum tíma. Það er því ekki rétt, sé því haldið fram, að fulltrúar minni hl. í nefndinni, einn eða fleiri, hafi með einum eða öðrum hætti reynt að setja fótinn fyrir þessa afgreiðslu eða tefja hana heldur þvert á móti unnu þessir aðilar með okkur í meiri hl. að því að ljúka þessari afgreiðslu og gerðu allt sitt til að greiða fyrir að svo gæti orðið.
    Tillögurnar á þskj. 367 sem tengjast afgreiðslum sem áður hafa verið gerðar í fjvn., ýmist við afgreiðslu fjárlaga fyrir yfirstandandi ár eða í sambandi við tillögugerð vegna afgreiðslu frv. til

fjárlaga fyrir árið 1990, á ég von á að fulltrúar minni hl. styðji. Í nál. hans kemur fram hvaða tillögur þetta eru og munu fulltrúar minni hl. styðja þær tillögur þó til einföldunar hafi verið valinn sá kostur að meiri hl. nefndarinnar flytti formlega allar brtt., einnig þær sem minni hl. er sammála.
    Fyrir hönd okkar vil ég því þakka ágætt samstarf í nefndinni varðandi afgreiðslu þessa máls og lýsi sérstakri ánægju með að full samstaða skuli hafa tekist í fjvn. um hvernig að öllum afgreiðslum skuli staðið þótt ágreiningur ríki að sjálfsögðu um tillögur aðrar en þær sem áður eru taldar. Einnig vil ég þakka starfsfólki nefndarinnar og samstarfsfólki hjá Ríkisendurskoðun og Fjárlaga- og hagsýslustofnun, svo og starfsfólki hjá fjármálaráðuneyti og í öðrum ráðuneytum og starfsfólki Alþingis fyrir samstarfið.
    Eins og áður hefur fram komið markar sú afgreiðsla sem hér á að fara fram nokkur tímamót. Er nú lagt fram frv. til fjáraukalaga fyrir yfirstandandi fjárlagaár. Þegar frv. var lagt fram var það í mun einfaldari búningi en fjárlög eru yfirleitt og var það m.a. gert til að gera málið einfaldara og aðgengilegra. Tölur um launaútgjöld og fleira og áætlaðan hallarekstur ríkisstofnana voru þannig birtar sem safntölur í frv. til þess að gefa heildarmynd án þess þó að tekið væri fram hvernig þeir safnliðir ættu að sundurliðast á einstök viðfangsefni og stofnanir. Það var því mikilvægt að fjvn. markaði þegar í stað stefnu um hvernig að afgreiðslu slíkra mála skyldi staðið og hvernig afgreiðslu fjáraukalaga á yfirstandandi fjárlagaári ætti að samræma afgreiðslu fjárlaga með hefðbundnum hætti. Fjvn. var sammála um meginstefnuatriði varðandi þessa afgreiðslu og sú stefnumörkun var sem hér greinir:
    1. Nefndin leitaði upplýsinga um allar aukafjárveitingar sem átt hafa sér stað á árinu. Nefndin gekk sérstaklega úr skugga um hvaða aukafjárveitingar höfðu verið greiddar, hvaða greiðslur búið var að skuldbinda þó þær væru ekki greiðslufallnar og hvaða aukafjárveitingar voru þá eftir sem hvorki höfðu verið greiddar út né skuldbundnar. Tilgangurinn var að leiða í ljós hvað af þessum aukafjárveitingum Alþingi gat haft vald á þegar frv. var lagt fram. Þegar aukafjárveitingar höfðu verið flokkaðar með þessum hætti lagði fjvn.
síðan mat á hvaða tillögur hún vildi gera til Alþingis um afgreiðslur þeirra aukafjárveitinga sem ýmist höfðu ekki verið þegar greiddar út eða skuldbundnar til greiðslu og Alþingi gat því haft vald á.
    2. Í frv. voru eins og áður sagði ýmsar safntölur svo sem um áætlaðan greiðsluhalla stofnana ríkisins, um laun og verðlagsmál og fleira. Varðandi þessi atriði markaði fjvn. þá stefnu að slíkar safntölur skyldi sundurliða til einstakra verkefna og viðfangsefna þannig að ljóst væri hvaða viðbótargreiðsluheimildir væri verið að gefa hverri stofnun með afgreiðslu fjáraukalaga. Sé þetta ekki gert er ekki hægt að bera saman annars vegar greiðsluheimildir sem stofnanir og viðfangsefni fá á fjárlögum og fjáraukalögum og hins vegar niðurstöðu í árslok. Beðið var um sundurliðun

viðkomandi ráðuneyta á þessum safntölum og fékk fjvn. þær sundurliðanir.
    3. Fjvn. kallaði í framhaldi af þessu fyrir sig fulltrúa allra ráðuneyta og flestra þeirra stofnana og viðfangsefna sem hæstum fjárhæðum velta. Óskaði fjvn. eftir því að sérhvert ráðuneyti og stofnun sem til var kvödd legði fyrir nefndina rökstudda niðurstöðu um líklega afkomu ársins 1989. Hafði nefndin einnig til hliðsjónar nýjustu upplýsingar þar að lútandi frá ríkisbókhaldi og voru þær upplýsingar eins og staðan var hjá hinum einstöku stofnunum og viðfangsefnum þann 1. des. sl. Nefndin bar svo saman þessar upplýsingar annars vegar og áætlaðan greiðsluhalla þessara stofnana og viðfangsefna samkvæmt sundurliðunum fjmrn. á tölum frv. hins vegar og væri mikill munur þar á tók fjvn. þann kost að gera tillögur um leiðréttingar á fjárhæðum. Þannig var sú stefna mótuð, og um hana voru nefndarmenn allir sammála, að með afgreiðslu fjáraukalagafrv. ætti markvisst að stefna að því að frv. gæfi sem réttasta mynd af raunverulegri og óhjákvæmilegri niðurstöðu ársins eins og best væri um hana vitað. Annað er ekki verjandi því þegar Alþingi afgreiðir frv. til fjáraukalaga aðeins örfáum dögum áður en fjárlagaárið rennur út er óverjandi ef ekki er reynt að áætla sem allra réttast um líklega niðurstöðu í rekstri stofnana og viðfangsefna þegar sá rekstur verður gerður upp í ríkisreikningi sem miðast við árslok er verða aðeins hálfri annarri viku síðar en afgreiðsla fjáraukalagafrv. á sér stað hér á Alþingi.
    4. Nefndin fór mjög vandlega yfir áætlanir sem gerðar hafa verið í fjármálaráðuneytinu um áhrif kjarasamninga sem gerðir voru á árinu á launaútgjöld ríkisins og stofnana þess og lagði mat sitt á grundvöll launaútgjaldaáætlunar. Einnig lét nefndin gera endurmat á líklegum vaxtaútgjöldum og útgjöldum vegna almannatrygginga.
    5. Fjvn. óskaði eftir sundurliðuðum hugmyndum ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðuneyta um niðurskurð ríkisútgjalda í samræmi við boðaða stefnu ríkisstjórnarinnar eins og hún birtist í frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989. Nefndin lagði mat á þessar tillögur hverja fyrir sig og nú flytur hún þær lítið eitt breyttar á Alþingi þannig að Alþingi gefist kostur á að taka sjálfstæða afstöðu til hverrar og einnar af þessum tillögum.
    6. Fjvn. óskaði einnig eftir endurmati á tekjuáætlunum frv. og fór það endurmat fram nú fyrir nokkrum dögum og byggir á upplýsingum um innheimtu tekna ríkissjóðs sem eru mun nýrri en þær upplýsingar sem áætlanirnar í fjáraukalagafrv. byggjast á. Eru hinar nýju áætlanir um innheimtar tekjur ríkissjóðs settar fram sem breytingar í tillögum meiri hl. nefndarinnar.
    Þetta er í stórum dráttum sú stefna sem fjvn. markaði sameiginlega um hvernig tekið skyldi á afgreiðslu frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989. Nefndin hefur leitast við að gera frv. þannig úr garði að það gefi eins rétta mynd og unnt er bæði af útgjöldum ríkissjóðs og stofnana ríkisins á árinu 1989 og líklega

niðurstöðu hvað varðar innheimtu tekna. Þá lagði nefndin einnig áherslu á að leggja fyrir Alþingi til endanlegrar ákvörðunar fjárveitingavaldsins sundurliðaðar tillögur sem með skýrum og greinargóðum hætti lýsa þeim viðbótarfjárheimildum sem verið er að afla fyrir hverja stofnun og hvert viðfangsefni og gefa Alþingi kost á að taka afstöðu til sérhverrar tillögu sjálfstætt og út af fyrir sig hvort sem um er að ræða tillögu til hækkunar útgjalda eða til lækkunar.
    Virðulegi forseti. Hér hefur hæstv. ríkisstjórn lagt fyrir Alþingi frv. til fjáraukalaga þar sem hún æskir heimildar til greiðslu á útgjöldum umfram heimildir fjárlaga sem samtals nema 8,8 milljörðum kr. Mér finnst það ekki með öllu vansalaust að enginn ráðherra hæstv. ríkisstjórnar skuli vera viðstaddur þegar því er lýst hvaða tillögur fjvn. gerir um afgreiðslu Alþingis á því máli en það verður svo að vera.
    Þær breytingar sem fjvn. hefur gert frá upphaflegri gerð frv. og leggur nú fram á þskj. 367 eru þessar, og vík ég þar fyrst að gjaldahliðinni. Í 3. gr. frv. í I. kafla var greint frá svokölluðum aukafjárveitingum sem samþykktar höfðu verið á árinu og voru þær aukafjárveitingar sundurliðaðar eftir ráðuneytum og viðfangsefnum. Ég bendi aðeins á, virðulegi forseti, að það sem hér eru nefndar aukafjárveitingar eru greiðslur úr ríkissjóði án lagastoðar. Fjvn. óskaði eftir yfirliti frá fjmrn. í fyrsta lagi um hvað af þessum aukafjárveitingum væri búið að greiða. Í öðru lagi hvað af þessum
aukafjárveitingum væri búið að taka um skuldbindandi greiðsluákvarðanir þótt ekki væru þær að öllu leyti greiðslufallnar og í þriðja lagi hvað eftir stæði sem hvorki væri búið að greiða út né ráðstafa með skuldbindandi ákvörðun og Alþingi gæti því um fjallað og gert breytingar á. Niðurstaðan af þeim athugunum var sú að aukafjárveitingar höfðu verið samtals samþykktar að fjárhæð 8 milljarðar 802 millj. 739 þús. kr. og er þetta fjárhæð aukafjárveitinga umfram heimildir í lögum. Þar af var þegar búið að greiða úr ríkissjóði 2 milljarða 275 millj. 178 þús. kr. Þá var einnig búið að taka skuldbindandi ákvarðanir um greiðslu á 5 milljörðum 792 millj. 531 þús. kr. Eftir stóðu þá 735 millj. og 30 þús. kr. sem hvorki var búið að greiða né taka skuldbindandi ákvarðanir um greiðslu á. Af þeirri fjárhæð voru 350 millj. sem lagt var til að greiddar yrðu sem endurgreiðsla á söluskatti til sjávarútvegs, iðnaðar, fiskeldis og loðdýraræktar og verður sú fjárhæð vart hreyfð af Alþingi til lækkunar. Þá eru einnig í þeirri fjárhæð 100 millj. kr. sem ríkisstjórnin hafði samþykkt að veita skyldi Hlutafjársjóði. Varla er hægt að segja að þeir peningar séu til frjálsrar ákvörðunar hér á Alþingi eins og þau mál eru í pottinn búin. Eftir standa þá aðeins 285 millj. kr. sem segja má að fjvn. og Alþingi hafi getað tekið afstöðu til hvort greiða ætti eða ekki.
    Niðurstaða fjvn. var sú að hún leggur til í brtt. sínum að af þessari fjárhæð ógreiddra og

óskuldbundinna aukafjárveitinga verði tæpur helmingur eða um 117 millj. kr. ekki samþykktur. Fallist Alþingi á þær tillögur hefur Alþingi hafnað að greiðsluheimild yrði veitt fyrir þeim útgreiðslum úr ríkissjóði og fara þær greiðslur þá ekki fram. Frá því að þessi niðurstaða lá fyrir hefur hins vegar komið í ljós að líklegt er að þessi niðurskurður fái heldur ekki staðist þar eð búið sé ýmist að greiða eða lofa greiðslu á hluta af þessari fjárhæð upp á 117 millj. kr. sem lagt er til að skera niður. Mun það líklega koma fram síðar, ef rétt er, en þá fer nú að fækka þeim greiðsluheimildum, virðulegi forseti, sem voru í frv. til fjáraukalaga sem lagt var fram hér í haust og Alþingi, fjárveitingavaldið, getur afgreitt með sjálfstæðum hætti og tekið sjálfstæða ákvörðun um, en það kemur væntanlega betur í ljós síðar.
    Enda þótt fjvn. hafi markað þá meginstefnu að þessu sinni að gera ekki tillögur um að felldar verði niður greiðsluheimildir vegna aukafjárveitinga sem þegar er búið að inna af hendi eða skuldbinda vill nefndin taka fram að hún er mjög ósátt við ýmsar þær greiðslur sem ákvarðanir hafa þannig verið teknar um og búið er að inna af hendi og mundi nefndin ekki hafa lagt til að þær yrðu samþykktar ef Alþingi gæti þar nokkru um breytt. Má sem dæmi nefna greiðslu sem færð er undir landbrn. vegna tilraunastarfsemi Silfurstjörnunnar hf. með sjótöku úr borholum í sandi til laxeldis að fjárhæð 3,3 millj. kr., en nefndin fékk upplýsingar um að landbrn. hefði ekki óskað eftir þeirri aukafjárveitingu þó hún sé færð undir það. Enn fremur lá fyrir nefndinni vitneskja um að ekki væri hér um að ræða þátttöku í rannsóknarkostnaði sem væri í samræmi við reglur þar að lútandi hjá Orkusjóði og Orkusjóður mælti með. Nefndin vill taka fram að slíkar fjárgreiðslur eru ekki fordæmisskapandi og ekki til fyrirmyndar.
    Þá vill nefndin einnig gera alvarlega athugasemd við að út af fjárlagaliðnum 201 136 Þátttaka alþingismanna í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hefur verið greiddur ferða- og dvalarkostnaður fyrir mann sem ekki er alþingismaður þótt fyrir liggi, og hafi sérstaklega verið tekið fram er mælt var fyrir fjárveitingu þessari við afgreiðslu fjárlaga yfirstandandi árs, að óheimilt sé með öllu að greiða af þessu viðfangsefni útgjöld vegna annarra en alþingismanna. Geti alþingismaður ekki einhverra hluta vegna farið til Sameinuðu þjóðanna og þingflokkur alþingismannsins geti ekki tilnefnt annan í stað hans þá skuli annaðhvort öllum þingflokkum vera gefinn kostur á því að tilnefna mann í hans stað ellegar ferðin falli niður. Þrátt fyrir að þetta væri skýrt fram tekið hefur þessi afstaða ekki verið virt og gerir fjvn. mjög alvarlega athugasemd við það, þótt nefndin vilji ekki að þessu sinni leggja til að umrædd greiðsla verði ekki samþykkt enda hefur hún þegar farið fram og er það í samræmi við afstöðu nefndarinnar til annarra sambærilegra mála sem nefndin er ósátt með en greiðslur hafa þegar verið inntar af hendi vegna að nefndin gerir sem sakir standa ekki tillögur um að Alþingi felli slíkar greiðsluheimildir. Nefndin telur

hins vegar nauðsynlegt að sett verði lög á Alþingi er gefi nánari fyrirmæli um hvernig að greiðslum úr ríkissjóði skuli staðið og ekki staðið. Slíkt frv. hefur verið í smíðum hjá fjvn. um tæplega eins árs skeið og er þeirri vinnu nú lokið og verður frv. þessa efnis lagt fram á Alþingi innan skammrar stundar.
    Þá telur nefndin einnig ástæðulaust og gerir athugasemdir við að verið sé að sækja um aukafjárveitingar og samþykkja aukafjárveitingar vegna útgjalda á vegum ráðuneyta er nema nokkrum tugum þúsunda króna þegar fyrir liggur að ráðuneytin hafa yfir að ráða allverulegum fjárhæðum á óskiptum liðum sem ætlaðar eru til slíkra þarfa.
    Í II. kafla frv. til fjáraukalaga var safnliður færður yfir á
fjármálaráðuneyti, Launa- og verðlagsmál og í frv. var sá safnliður að fjárhæð 3 milljarðar 105 millj. kr.. Fjvn. óskaði eftir upplýsingum um að hve miklu leyti þessar fjárhæðir væru byggðar á áhrifum kjarasamninga á launaútgjöld ríkisins og áhrifum breyttra verðlagsforsendna á rekstrarútgjöld ríkisstofnana og að hve miklu leyti þessi fjárhæð væri vegna annarra viðfangsefna, svo sem vegna vaxtagreiðslna og bótagreiðslna almannatrygginga. Þessar upplýsingar fékk nefndin og breytti uppsetningu í frv. til samræmis við það og færði vaxtagjöldin þangað sem vaxtagjöld eiga heima og greiðslur almannatrygginga þangað sem greiðslur almannatrygginga eiga heima. Einnig kynnti nefndin sér þær forsendur um áhrif síðustu kjarasamninga og breyttra verðlagsforsendna sem fjmrn. gekk út frá við þessar áætlanir og nánar er lýst í greinargerð með frv. til fjáraukalaga. Nefndin er þeirrar skoðunar að þær áætlanir séu byggðar á traustum grunni og gerir ekki athugasemd við þær. Eftir standa þá á liðnum Launa- og verðlagsmál eins og frá breytingartillögum nefndarinnar er gengið 1 milljarður 315 millj. kr. sem eru vegna hækkunar launa og verðlags umfram forsendur fjárlagafrv.
    Í III. kafla frv. var svo safnliður, Launa- og verðlagsmál, rekstrarhalli ríkisstofnana, að fjárhæð 800 millj. kr. Fjvn. óskaði eftir því að þessi áætlun um heildartölur rekstrarhalla ríkisstofnana væri sundurliðuð á hverja stofnun fyrir sig og fékk nefndin þá sundurliðun frá fjmrn. Eins og áður hefur fram komið kallaði nefndin síðan fyrir sig fulltrúa ráðuneyta og þeirra stofnana er hæstu fjárhæðunum velta og fékk frá þeim rökstuddar áætlanir til að bera saman við þessar áætlanir um hallarekstur eins og frá þeim var gengið í frv. til fjáraukalaga. Einnig athugaði nefndin upplýsingar úr ríkisbókhaldi er vörðuðu þessar stofnanir. Þar sem í ljós kom að verulegur munur var á niðurstöðum samkvæmt sundurliðun fjmrn. annars vegar og rökstuddum greiðsluáætlunum ríkisstofnana og nýjustu upplýsingum úr ríkisbókhaldi um afkomu þeirra hins vegar gerði nefndin óhjákvæmilegar leiðréttingar en aðrar breytingar gerði hún ekki. Þannig leiðréttar eru áætlanir frv. fluttar í brtt. nefndarinnar, stofnun fyrir stofnun. Sérstaklega skal fram tekið að hér hefur fjvn. farið mjög varlega í

áætlunum enda reyndist svo vera þegar umræddar stofnanir voru bornar saman annars vegar samkvæmt áætlun frv. til fjáraukalaga um greiðsluhalla hverrar og einnar stofnunar og hins vegar ef notaður er samanburður úr ríkisbókhaldi frá 1. des. sl. að flestar þessar stofnanir höfðu þá þegar notað allar þær greiðsluheimildir sem gert var ráð fyrir í fjáraukalagafrv. að veita til viðbótar greiðsluheimildum fjárlaga yfirstandandi árs. Og var þá eftir að sjá fyrir útgjöldum tólfta mánaðarins. Fjvn. gerði ekki leiðréttingar hér á nema þar sem verulega bar á milli og er því óhætt að fullyrða að útgjaldaáætlanir nefndarinnar fyrir einstakar stofnanir eru varfærnar og líkur benda til að þær séu fremur vanáætlaðar en ofáætlaðar.
    Í IV. kafla frv. er síðan fjallað um uppgjör og endurgreiðslur söluskatts vegna ársins 1989 og var gert ráð fyrir að 350 millj. kr. færu í þær endurgreiðslur. Fjvn. bað um enduráætlun á þessari fjárhæð hjá fjmrn. og fór sú enduráætlun fram. Leiddi hún til þess að ráðuneytið gerði tillögu um að þessi fjárhæð yrði hækkuð úr 350 millj. í 390 millj. og gerði nefndin þá tillögu að sinni.
    Í V. kafla er síðan enn einn safnliðurinn að fjárhæð 169 millj. 731 þús. kr. Er þar um að ræða geymdar fjárveitingar frá árinu 1988 sem fjmrh. hefur fallist á að notaðar yrðu á árinu 1989 og er hér um framkvæmdafjárveitingar að ræða. Fjvn. kallaði eftir sundurliðun á þessum geymdu fjárveitingum, þ.e. hvaða verkefni hér væri um rætt sem heimilt væri að nota geymdar fjárveitingar til framkvæmda við og hversu há fjárhæð kæmi til nota í hvert verk fyrir sig. Þessa sundurliðun fékk nefndin og hefur gert hana að tillögu sinni á þskj. 367 og getur Alþingi þannig tekið ákvörðun um hverja og eina fjárhæð og framkvæmd. Í 4. gr. frv. til fjáraukalaga voru síðan ákvæði um að fjmrh. væri heimilt að lækka gjöld samkvæmt 2. gr. fjárlaga fyrir árið 1989 um allt að 650 millj. kr. Í skýringum með frv. kemur fram að þessi lækkun gjalda er samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar þar um. Fjvn. óskaði eftir nánari upplýsingum um þessar gjaldalækkanir. Þar kom fram að af þessari fjárhæð væri ætlunin að 500 millj. kr. væru vegna lækkaðs framlags úr ríkissjóði til byggingarsjóðanna en 150 millj. áttu að vera niðurskurður á framkvæmdum á vegum einstakra ráðuneyta. Fjvn. kallaði eftir sundurliðun á þeim tillögum. Nefndin fékk slíka sundurliðun en samanlögð fjárhæð þeirra niðurskurðartillagna reyndist aðeins vera 118 millj. kr. í stað 150 og vantaði því tillögur frá ráðuneytunum um niðurskurð að fjárhæð 32 millj. kr. Nefndin óskaði eftir því að fjmrn. sendi tillögur um hvar slíkan niðurskurð skyldi framkvæma svo staðið yrði að fullu við ákvörðun ríkisstjórnarinnar þar um. Nefndin fékk þær tillögur frá fjmrn. í sérstöku bréfi og hefur gert þær tillögur að sínum. Nefndin flytur síðan þessar tillögur ráðuneytanna um niðurskurð að mestu óbreyttar.
    Um þessar tillögur má það segja almennt að allflestar þeirra eru um raunhæfa lækkun á framlögum,

þ.e. lækkun sem skilar sér í minni fjárgreiðslum úr
ríkissjóði en fjárlög gerðu ráð fyrir. Sumar tillagnanna varða þó stofnkostnað eða rekstur við viðfangsefni sem þegar hefur farið langt fram úr greiðsluheimildum en þá vegna annarra útgjalda svo sem launakostnaðar og annarra rekstrargjalda. Niðurskurður hvað þessar stofnanir varðar mun því ekki draga úr hallarekstri þeirra en hins vegar koma í veg fyrir að ónotaðar fjárveitingar til stofnkostnaðar og viðhalds verði færðar yfir áramót. Um þær tillögur skal sérstaklega fram tekið að ákveðinn fyrirvari er á niðurskurðartillögum ráðuneytis undir viðfangsefni 02 730 Bygging grunnskóla og íbúða fyrir skólastjóra og viðfangsefnið 02 803 Stofnkostnaður dagvistarheimila. Undir þessa liði til lækkunar eru færð tiltekin viðfangsefni og tilteknar fjárhæðir þeirra vegna. Þessi viðfangsefni eru þannig færð einungis til skýringar á þeim heildarfjárhæðum sem lagt er til að lækkuð verði útgjöld til en þær heildarfjárhæðir eru eins og áður sagði vegna byggingar grunnskóla og íbúða fyrir skólastjóra og vegna stofnkostnaðar dagvistarheimila. Ástæðan er sú að fullnaðaruppgjör vegna þessara viðfangsefna hefur ekki farið fram og endanlegar upplýsingar liggja ekki fyrir um hvað framkvæmt kann að hafa verið. Hafi slíkar framkvæmdir verið unnar umfram það sem hér er gert ráð fyrir og komi fram upplýsingar þar að lútandi til menntmrn. sem ekki liggja nú fyrir verður mótframlag ríkissjóðs að sjálfsögðu að fullu greitt og eru aðilar fullvissaðir um að svo verður þannig að vera kann að þær fjárhæðir sem hér eru tilgreindar til niðurskurðar á einstök viðfangsefni standist ekki þegar á reynir. En fjvn. hefur hins vegar fullvissað sig um að innan þessara viðfangsefnaheilda er svigrúm hjá menntmrn. til að framkvæma þann niðurskurð sem ráðuneytið lagði til og þá á öðrum viðfangsefnum en á þingskjalinu eru tilgreind, reynist svo vera að sú áætlun sem þar er gerð standist ekki alveg til fullnustu.
    Ég sagði hér áðan að fjvn., eða öllu heldur meiri hl. nefndarinnar, hefði gert að sínum því sem næst allar tillögur er frá ríkisstjórn og ráðherrum bárust um niðurskurð vegna einstakra verkefna á fjárlögum yfirstandandi árs. Þó er hér ein tiltekin undantekning á. Frá samgrn. bárust tillögur um niðurskurð á framkvæmdum til vegagerðar um samtals 33 millj. kr. Þegar slíkan niðurskurð hefur þurft að framkvæma sem fjallað hefur verið um og ákvarðanir hafa verið teknar um í fjárlögum í samráði við þingmannahópa hvers kjördæmis hefur sá háttur jafnan verið hafður á að leitað hefur verið samkomulags og samráðs við þingmannahópana um hvaða verkefni skyldu valin til niðurskurðar og hefur það jafnan gengið snurðulaust fyrir sig. Svo var hins vegar ekki nú. Það var ekki haft samráð við þingmenn úr þingmannahópunum um þau verkefni sem valin voru til niðurskurðar. Að vandlega athuguðu máli taldi fjvn. að af þeim sökum væri ekki stuðningur þingmeirihluta á Alþingi við þær niðurskurðartillögur sem hugmyndir voru uppi um varðandi niðurskurð á vegaframkvæmdum að fjárhæð 33 millj. kr. en sjálfsagt hefði verið hægt að tryggja

slíkan stuðning þingmanna ef samráð hefði verið haft við þingmannahópana sem ekki var gert. Nefndin treysti sér því ekki til að leggja fyrir Alþingi þær tillögur um niðurskurð á einstökum viðfangsefnum vegagerðar samtals að fjárhæð 33 millj. kr. frá samgrn. og leggur nefndin til að sá niðurskurður eigi sér ekki stað. Hins vegar leggur nefndin til að eigin frumkvæði mun meiri niðurskurð en hér um ræðir til annarra þátta í vegagerð. Er þar um að ræða lækkun á samþykktri aukafjárveitingu í fjáraukalagafrv. til snjómoksturs úr 150 millj. í 100 millj. kr. eða um 50 millj. kr. og gerir nefndin tillögu um lækkun á samsvarandi aukafjárveitingu til snjómoksturs vegna Flugmálastjórnar. Í viðræðum við forsvarsmenn Vegagerðarinnar hefur nefndin fullvissað sig um að þessi niðurskurður er vel framkvæmanlegur.
    Þegar nefndin hafði með þessum hætti yfirfarið allar greinar frv. er vörðuðu útgjöld og niðurskurð og undirbúið tillögur þar um leitaði hún nú fyrir nokkrum dögum til fjmrn. og óskaði eftir því að fá endurmetnar líklegar innheimtutekjur ríkissjóðs af beinum og óbeinum sköttum og öðrum tekjum. Í nál. meiri hl. á bls. 5 er nánari grein gerð fyrir einstökum breytingum í þessu sambandi. Heildarniðurstaðan er sú að hækkun áætlaðra tekna frá frv. nemur 350 millj. kr. samtals og eru þar meðtalin áhrif bæði til hækkunar og lækkunar frá upphaflegri spá frv. Ef síðan er litið yfir niðurstöðu gjaldameðferðarinnar þá hefur verið lögð til hækkun gjalda frá frv. um samtals 422 millj. 390 þús. Þá hefur fjvn. eins og áður segir lagt til niðurskurð aukafjárveitinga sem samtals nema 117 millj. 207 þús. kr. þannig að heildarniðurstaðan er hækkun gjaldamegin upp á 305 millj. 183 þús. kr. Þá vantar á lækkun gjalda samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar 35 millj. 500 þús. kr. þannig að heildaráhrifin vegna hækkunar gjalda frá frv. og vegna vöntunar á þeirri lækkun gjalda sem áður hafði verið boðuð nemur til hækkunar 340 millj. 683 þús. kr. Þegar sú fjárhæð er skoðuð með hliðsjón af hækkun áætlaðra tekna frá frv. er breyting á greiðsluafkomunni bætt staða ríkissjóðs upp á 9 millj. 317 þús. kr. frá því sem frv. gerði ráð fyrir.
    Sú vinna sem átt hefur sér stað í fjvn. hefur því ekki aukið á áætlaðan hallarekstur ríkissjóðs frá því sem gert var ráð fyrir í frv. til
fjáraukalaga. Hins vegar skal fram tekið eins og áður hefur komið fram að enn eru ekki öll kurl til grafar komin um væntanleg útgjöld ýmissa ríkisstofnana og viðfangsefna þó ætla megi að fjvn. hafi tekist í störfum sínum að taka tillit til allra stærstu liða í því sambandi. Gæti því svo farið að hallarekstur ætti eftir að verða eitthvað meiri en hér greinir en það mun ekki skipta verulega háum fjárhæðum eftir því sem fjvn. fær næst komist. Við þetta bætist svo hins vegar ef réttar upplýsingar hafa ekki borist nefndinni um stöðu greiðslna úr ríkissjóði vegna þeirra aukafjárveitinga sem nefndinni var sagt að ekki væri búið að greiða eða skuldbinda þegar fjárlagafrv. var lagt hér fram. Sé svo, þá verður auðvitað að skoða það mál að nýju og fer þá að sneiðast, eins og ég

sagði hér áðan, virðulegi forseti, mjög um olnbogarými Alþingis til raunverulegrar afgreiðslu á þeim 8,8 milljörðum sem frv. til fjáraukalaga gerði ráð fyrir að Alþingi heimilaði greiðslur til en áður höfðu verið samþykktar aukafjárveitingar um.
    Ég hef lokið því að gera grein fyrir öllum meginafgreiðslum fjvn. og verður nú vikið að einstökum liðum og farið þar fljótt yfir sögu því þeir skýra sig flestir sjálfir og varða eingöngu sundurliðun á þeim heildarfjárhæðum er tilgreindar voru í frv. til fjáraukalaga, hvað varðaði áætlaðan hallarekstur, hvað varðar áætlun launa og rekstrarútgjöld, vaxtaútgjöld, útgjöld vegna almannatrygginga, hvað varðar lækkanir hæstv. ríkisstjórnar á einstökum liðum eða tillögur hennar þar um og hvað varðar geymdar fjárveitingar frá árinu 1988, en flestar brtt. á þskj. 367 varða slíkar tilfærslur sem eru ekki breytingar frá fjáraukalagafrv. í upphaflegri gerð. Ég geri því aðeins grein fyrir þeim brtt. sem fjvn. gerir á frv. eins og það var lagt fram.
    Þær tillögur sem fjvn. gerir til breytinga er varða æðstu stjórn Alþingis eru einvörðungu að tillit sé tekið til þegar áfallins kostnaðar sem á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1986 og ekkert umfram það. Eina undantekningin þar er að að beiðni forseta Alþingis gerir fjvn. tillögu um að Ýmis stofnkostnaður verði hækkaður um 4 millj. kr. og er það vegna kaupa á kvikmyndasafni Magnúsar Jóhannssonar.
    Tillögur er varða forsrn. eru um hækkanir og í öllum tilvikum er þar um að ræða hækkanir að beiðni ríkisstjórnarinnar. Ástæða er þar til að minnast sérstaklega á hækkun á framlagi til Hlutafjársjóðs um 50 millj. en ætlast er til að sú hækkun verði sérstaklega til að aðstoða sveitarfélög sem eiga í erfiðleikum vegna atvinnubrests. Tillögur þær er varða menntmrn. eru til leiðréttinga á rekstrarkostnaði og launakostnaði svo og vegna ofáætlaðra sértekna eins og nánar kemur fram í skýringum við brtt. og auk þess tillögur sem fjvn. hefur flutt um tilteknar breytingar aðrar. Er þar sérstök ástæða til að víkja að tvennu.
    Í fyrsta lagi er varðar Náttúruverndarráð. Á yfirstandandi ári var lögð til og afgreidd í fjárlögum sérstök fjárveiting til tiltekinna verkefna undir sérstöku viðfangsefni hjá Náttúruverndarráði og var það fé ekki tekið af almennri fjárveitingu til Náttúruverndarráðs heldur lögð til sérstök fjárveiting til þessara verkefna en þau hins vegar vistuð undir viðfangsefninu Náttúruverndarráð. Náttúruverndarráði var gerð grein fyrir þessum afgreiðslum Alþingis. Ráðið tók hins vegar ekkert tillit til þeirra afgreiðslna heldur notaði það fé sem til viðkomandi viðfangsefna átti að renna í eigin rekstur. Þar sem fjvn. hafði tilkynnt þeim er áttu við greiðslunum að taka um afgreiðslurnar verður ekki hjá því komist að flytja þarna tillögu um hækkun að fjárhæð 1300 þús. kr. vegna þess að Náttúruverndarráð hafði þegar ráðstafað því fé sem samþykkt hafði verið á Alþingi að ætti að renna til annarra tiltekinna viðfangsefna. Fjvn. er hins vegar sammála um að flytja við 3. umr. fjárlagafrv. fyrir árið 1990 tillögu um sambærilega lækkun á framlagi

til Náttúruverndarráðs þannig að ráðið þurfi sjálft að standa skil á þeim fjárhæðum sem það hefur tekið sér með þessum hætti á árinu 1989.
    Þá gerir fjvn. einnig tillögu um að aukafjárveiting til Þjóðarbókhlöðu að fjárhæð 30 millj. kr. verði ekki samþykkt en nefndin fékk þær upplýsingar að sú fjárhæð væri bæði ógreidd og óskuldbundin og sá því ekki ástæðu til þess að sú aukafjárveiting verði samþykkt. Eins og ég sagði hér áðan, komi það í ljós að svo sé ekki þá verður það mál að sjálfsögðu skoðað nánar en þá sneiðist enn um olnbogarými Alþingis til sjálfstæðra ákvarðana um þær greiðsluheimildir sem sótt var um samþykki Alþingis við.
    Aðrar lækkunartillögur undir þessum lið eru lækkunartillögur fjvn. á aukafjárveitingum samkvæmt frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989 og eru nákvæmlega sömu skýringar á þeim tillögum og gefnar hafa verið áður. Þessar tillögur eru fluttar eftir upplýsingum um að hér hafi ekki verið um að ræða hluti sem var búið að greiða eða búið að skuldbinda til greiðslu.
    Næst komum við að brtt. nefndarinnar er varða utanrrn. Þar er annars vegar lögð til hækkun vegna beiðni ríkisstjórnarinnar um matarsendingar til Póllands og hins vegar lækkun á viðfangsefninu 163 Alþjóðastofnanir en þessi aukafjárveiting hafði hvorki verið greidd né greiðsluskuldbundin.
    Næsti liður varðar landbrn. Er þar um að ræða annars vegar hækkanir vegna
leiðréttinga og uppgjörs á hallarekstri, bæði frá árinu 1989 og vegna fyrri ára og eins vegna áhrifa laga sem ekki hefur verið breytt og leggja greiðsluskuldbindingar á ríkissjóð án þess að fyrir þeim hafi verið séð í fjárlögum yfirstandandi árs en greiðslurnar munu óhjákvæmilega falla á ríkissjóð. Þarna er hins vegar einnig um að ræða tillögur um niðurskurð aukafjárveitinga frá fjvn. er varða tvö viðfangsefni og sama máli gegnir um næstu tillögu á eftir er varðar sjútvrn., Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Er þar gerð tillaga um lækkun aukafjárveitingar þar sem greiðsla hefur ekki átt sér stað né skuldbindandi ákvarðanir teknar samkvæmt upplýsingum er nefndin fékk.
    Þá komum við að tillögum er varða félmrn. Fyrsta tillagan er um uppgjör á skuld við Tryggingastofnun ríkisins vegna 10. gr. laga um málefni fatlaðra og nema þau skuldaskil 33 millj. 800 þús. kr. og er sú afgreiðsla gerð að fyrirlagi ríkisstjórnarinnar. Þá er gerð tillaga um að greiddar verði 3,5 millj. kr. vegna hallareksturs vistheimilisins Sólheima og einnig er gerð tillaga um að liðurinn Félagsmál, ýmis starfsemi hækki um 3,5 millj. kr. og er það vegna óska fjmrh. og félmrh. Þá er gerð tillaga um lækkun á aukafjárveitingu til Kvennaathvarfs í Reykjavík um 1 millj. kr. og er það helmingur aukafjárveitingarfjárhæðarinnar sem ekki hefur verið innt af hendi. Skal fram tekið að í fjárlögum yfirstandandi árs eru Kvennaathvarfinu ætlaðar fjárveitingar upp á rúmar 6 millj. kr. og á fjárlögum

yfirstandandi árs upp á rúmar 8 millj. kr. og ætti því allvel að vera fyrir viðfangsefninu séð.
    Þá komum við að tillögum er varða heilbr.- og trmrn. Fyrsta tillagan lýtur að hallarekstri ríkisspítala sem nú stefnir í 102 millj. kr. á árinu 1989 í stað 50 millj. kr. eins og ráð var fyrir gert í frv. til fjáraukalaga sem lagt var fram í haust. Er lagt til að tekist verði á við þetta vandamál með þeim hætti að sjúkratryggingar verði hækkaðar um 52 millj. kr. vegna greiðslu á rannsóknarkostnaði á ríkisspítölum og er það í samræmi við ákvarðanir sem áður hafa átt sér stað á vegum ríkisstjórnarinnar og heilbrrh.
    Næsta tillaga varðar málefni fatlaðra, um að viðfangsefni 190 Önnur starfsemi hækki um 500 þús. kr. Er þar um að ræða fjárveitingu til Geðhjálpar til að stofnunin geti haldið óbreyttri starfsemi sinni og er þar um að ræða ósk frá ráðherrum.
    Þá er í næstu tillögu lagt til að greiddar verði skuldir hjá Innkaupastofnun ríkisins er eiga rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1986 vegna tiltekinna viðfangsefna sem nánar eru tilgreind í tillögunni.
    Þessu næst er komið að liðnum Átak í áfengisvörnum. Þar kom fram að fjárveiting frá síðasta ári að upphæð 4 millj. kr. var enn ónotuð nú um miðjan des. Fjvn. telur litlar líkur á því að öll sú fjárhæð verði notuð á þeim stutta tíma sem lifir af þessu ári og leggur því til að hin ónotaða fjárveiting að fjárhæð 4 millj. kr. verði lækkuð um helming og ættu menn að geta vel fyrir þeim 2 millj. kr. sem eftir er séð á þeim 10 dögum sem eftir lifa af árinu. Á næsta ári er ætlað í sérstakt átak af þessu tagi 10 millj. kr. á fjárlögum og er vonandi að hægt verði að nota það fé til fullnustu.
    Þá er komið að viðfangsefnum á vegum fjmrn. og varðar fyrsta tillagan sem fjvn. flytur um breytingu á ákvæðum fjáraukalagafrv. hækkun á fjárveitingu um 40 millj. kr. vegna endurgreiðslu söluskatts til iðnaðar, sjávarútvegs, fiskeldis og fleira. Er sú tillaga fram sett að beiðni fjmrh. Þá er viðfangsefnið Ýmsar endurgreiðslur hækkað um 23 millj. 51 þús. kr. Ástæðan er sú að þegar fjárlög fyrir yfirstandandi ár voru afgreidd var gert ráð fyrir því að sérstök fjárveiting yrði sett inn í fjárlögin til þess að endurgreiða aðflutningsgjöld og sölugjöld vegna björgunartækja og annarra tækja sem aðflutningsgjöld og sölugjöld höfðu áður verið felld niður af og hefð var fyrir niðurfellingu á en ekki rúmast nú í lögum um söluskatt og ekki var talið æskilegt að telja öll slík tæki upp í einstökum heimildargreinum á fjárlögum hverju sinni. Þegar endurgreiðslufjárhæðin var áætluð gleymdist hins vegar að veita fjvn. upplýsingar um að í fjmrn. hafði fjölmörgum aðilum verið heimilað að greiða slíkan söluskatt og aðflutningsgjöld með skuldaviðurkenningum og víxlum í trausti þess að endurgreiðsla fengist á fjárlögum. Þessar upplýsingar gleymdist að færa fjvn. þannig að það var ekki fyrr en nokkru eftir að fjárlög höfðu verið afgreidd sem uppgötvaðist að í fjmrn. lágu gjaldfallnar skuldaviðurkenningar og víxlar vegna aðflutningsgjalda og sölugjalda sem gefið hafði verið

fyrirheit um að endurgreidd yrðu og viðkomandi aðilar verið látnir skrifa upp á skuldabréf eða víxla fyrir en gleymst hafði að taka tillit til við afgreiðslu fjárlaga. Varð að samkomulagi milli fjvn. og fjmrn. að ekki yrði gengið eftir greiðslu á þessum skuldaviðurkenningum heldur beðið með þær þangað til tækifæri gæfist til þess að taka á þessum málum. Er það nú gert hér og eru allar þær fjárhæðir sem hér um ræðir vegna niðurfellingar frá árinu 1988 sem gleymdist að gera viðvart um við afgreiðslu fjárlaga fyrir það ár. Í fjárlögum yfirstandandi árs er hins vegar gert ráð fyrir fjárhæð til endurgreiðslu af þessum sökum.
    Þá er komið að tillögum er varða samgrn. og er fyrsta tillagan um að
viðfangsefnið Viðhald vega lækki um 50 millj. kr. frá aukafjárveitingatillögum frv. til fjáraukalaga og er það vegna snjómoksturs og hefur áður verið um það rætt. Þá er lagt til að viðfangsefnið 631 Landshafnir, óskipt hækki um 50 millj. kr. og er það vegna fyrirhugaðrar yfirtöku sveitarfélaga á rekstri landshafna um áramótin. Flutt er á sérstöku þingskjali tillaga um breytingar á 6. gr. í fjárlögum yfirstandandi árs þess efnis að liður 4.17 í 6. gr. er hljóðar nú svo með leyfi forseta: ,,Að heimilt sé ráðherra að afhenda hlutaðeigandi sveitarfélagi eða sveitarfélögum eignir landshafnanna á Rifi, Þorlákshöfn og í Keflavík og Njarðvík``, breytist þannig að hún orðist svo: ,,Að ráðherra sé heimilt að afhenda hlutaðeigandi sveitarfélagi eða sveitarfélögum eignir landshafnanna á Rifi, Þorlákshöfn og í Keflavík og Njarðvík og greiða í því sambandi allt að 50 millj. kr. til sveitarfélaganna vegna kostnaðar við yfirtökuna á árinu 1989.`` Með þessu er sem sé gert ráð fyrir því að ráðherra fái bæði heimild og fjármuni til að ljúka samningum við sveitarfélögin um yfirtöku landshafnanna og greiða kostnað því samfara þannig að yfirtakan geti átt sér stað um nk. áramót eins og lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga gera ráð fyrir. Er nú að því komið að ráðherra og sveitarfélög taki sig til í þessum málum og ljúki þeim samningum sem ætti raunar fyrir nokkru að vera lokið ef vel ætti að vera.
    Þá er loks að nefna tillögu sem flutt er undir liðnum 399 Ýmis orkumál á vegum iðnrn. Þar er gert ráð fyrir því að viðfangsefnið 119 Önnur orkumál hækki um 36 millj. kr. Er þar um að ræða fjárveitingu til greiðslu á kostnaði við viðgerð á sæstreng til Vestmannaeyja en sú greiðsla var innt af hendi af Rafmagnsveitum ríkisins og eru skuldbindingar um að ríkissjóður endurgreiði þann kostnað. Nemur hann samtals 71 millj. eins og fram kemur í tillögunni verði umrædd hækkun samþykkt.
    Virðulegi forseti. Ég hef nú lokið við að gera grein fyrir brtt. sem fluttar eru við frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989, en aðrar tillögur en þær sem hér hefur verið lýst varða einvörðungu sundurliðun á viðfangsefni og stofnanir á þeim safntölum sem í frv. til fjáraukalaga eru og eru þær sundurliðanir gerðar að fyrirlagi fjmrn. og annarra ráðuneyta eins og áður

hefur komið fram. Fjvn. flytur síðan brtt. við 3. gr. og eru þær tillögur á blaðsíðu 21, 22, 23 og 24 á þskj. 367. Er þar gerð grein fyrir sundurliðun á heimild fjmrh. til lækkunar gjalda skv. 2. gr. fjárlaga að fjárhæð 614 millj. 500 þús. kr. og hef ég áður skýrt út hvaða tillögur hér eru á ferðinni, en sundurliðanir allar eru fengnar frá viðkomandi ráðuneytum, þ.e. menntmrn., heilbrrn., samgrn. og fjmrn. og er fallist á allar tillögur þessara ráðuneyta um niðurskurð nema tillögur samgrn. um niðurskurð vegna einstakra vegaframkvæmda sem ég gat um hér áðan og rakti ástæður fyrir að fjvn. taldi ekki fært að leggja fyrir Alþingi. Ég lét þess jafnframt getið að nefndin legði til annan og meiri niðurskurð en þar var áætlaður á öðrum viðfangsefnum vegagerðar.
    Virðulegi forseti. Ég hef nú lokið við að gera grein fyrir því hvaða breytingar fjvn. leggur til að gerðar verði á frv. til fjáraukalaga eins og það var lagt fram á Alþingi nú í haust. Ég hef einnig gert grein fyrir því að hve miklu leyti þær breytingar eru sundurliðanir á safntölum sem voru í frv. og að hve miklu leyti er um að ræða brtt. sem eiga rætur að rekja til fjvn. sjálfrar og til ríkisstjórnar og ráðherra. Geta nú hv. alþm. tekið afstöðu til hverrar og einnar brtt. fyrir sig eftir stofnunum og viðfangsefnum, bæði þeim sem grundvallaðar voru í frv. til fjáraukalaga frá ríkisstjórninni frá því í haust og ekki voru sundurliðaðar á einstök viðfangsefni og einnig geta hv. alþm. með sama hætti tekið afstöðu til hverrar og einnar tillögu er fjvn. hefur flutt um breytingar þar á. Að lokinni þeirri afgreiðslu liggur ljóst fyrir hvaða viðbótargreiðsluheimild hver og ein stofnun og hvert og eitt viðfangsefni og hvert og eitt ráðuneyti hefur fengið með afgreiðslu þessara fjáraukalaga þannig að unnt verður að bera saman greiðsluheimildir hverrar stofnunar og niðurstöðuna eins og hún verður úr ríkisreikningi þeim sem lokað verður að kvöldi hins 31. des. nk.
    Eins og ég hef áður sagt er Alþingi með þessari afgreiðslu að gefa fordæmi um hvernig að fjáraukalagaafgreiðslum skuli reynt að standa. Allir nefndarmenn í fjvn. eru sammála um það fordæmi sem hér er gefið og að það verklag sem hér er á haft sé rétt og eðlilegt verklag sem Alþingi á að hafa á afgreiðslu á fjáraukalögum. Eins og glöggt má sjá hefur fjvn. lagt sig fram og lagt mikla vinnu í þetta mál. Það er hins vegar að sjálfsögðu meiri hluti á Alþingi sem tekur ábyrgð á þeim afgreiðslum sem hér verða og þeirri stefnumótun sem í fjáraukalagafrv. felst. Fjárveitinganefndarmenn hafa hins vegar unnið hér mikið starf til viðbótar við hefðbundin viðfangsefni fjárlagagerðar og vil ég ljúka máli mínu með því að færa þeim öllum bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf, mikla vinnusemi og ekki síst þolinmæði við formann nefndarinnar og stuðning þeirra allra við þá stefnumótun um afgreiðslu málsins sem við í nefndinni höfum mótað sameiginlega og formaður leitast við að framkvæma með stuðningi nefndarmanna allra.
    Að svo mæltu, virðulegi forseti, legg ég til að frv.

til fjáraukalaga fyrir
árið 1989 verði afgreitt með þeim breytingum sem felast í tillögum meiri hluta fjvn. á þskj. 367.