Frsm. minni hl. fjvn. (Pálmi Jónsson):
Virðulegi forseti. Hv. formaður fjvn. sem hér var að ljúka máli sínu vakti á því athygli snemma í ræðu sinni að enginn ráðherra hæstv. ríkisstjórnar væri þá viðstaddur. Skömmu síðar kom einn af hæstv. ráðherrum í salinn, hæstv. menntmrh., og um stundarsakir einnig hæstv. fjmrh. og einnig um sinn tveir aðrir hæstv. ráðherrar. ( Gripið fram í: Samgönguráðherra.) Ég tel að hæstv. ráðherrar sýni þessu máli litla virðingu, og hæstv. samgrh. situr hér í skrifarasæti sem fer honum auðvitað betur en það sæti sem hann skipar nú, en ég tel þó lágmark að hæstv. fjmrh. sé við þessa umræðu og ég er fús að gera hlé á máli mínu þar til hann hefur tíma til þess að hlýða á umræðuna. ( Forseti: Forseti mun gera ráðstafanir til að óska eftir því að hæstv. fjmrh. komi hér í salinn.) --- Hæstv. forseti vill kannski fresta fundi. Það er engin þörf á að halda umræðunni áfram á meðan hæstv. fjmrh. hefur ekki hirðu á því að vera við umræðu um þetta þýðingarmikla mál. ( Forseti: Það er rétt að geta þess að verið er að sækja hæstv. fjmrh. svo ég held að ganga verði út frá því að hann sé rétt ókominn hér í salinn og þess vegna sé rétt að hv. 2. þm. Norðurl. v. hinkri við ( Gripið fram í: Hann er að koma.) og þar upplýsist að hæstv. fjmrh. muni vera að koma.)
Hæstv. fjmrh. hefur nú séð ástæðu til þess að koma í salinn til að vera við þessa umræðu og eru það tíðindi sem rétt þykir að segja frá í umræðunni.
Ég vil hefja þessa ræðu mína með því að flytja hv. formanni fjvn. og meiri hl. fjvn. og raunar nefndinni í heild þakkir fyrir samstarf við þá vinnu sem er að baki við undirbúning að afgreiðslu þessa máls. Ég tek undir þakkir hv. formanns nefndarinnar í garð þeirra starfsmanna sem með nefndinni hafa starfað og einnig til þeirra embættismanna ríkisins sem nefndin hefur þurft að leita til í því mikla starfi sem hún hefur af hendi leyst. Ég tek enn fremur undir það sem fram kom mjög skýrt í ræðu hv. formanns fjvn. að nefndin er sammála og
telur að eðlilega hafi verið staðið að verklagi og vinnu við undirbúning að þessari afgreiðslu. Ég mun koma síðar í ræðu minni að því hvernig því verklagi er lokið. En ég tek það skýrt fram að í nefndinni hefur verið full samstaða um hvernig á því máli hefur verið tekið eftir það ófullburða frv. sem lagt var fyrir hér á Alþingi í nóvembermánuði.
Þetta frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1989, sem nú er flutt á fjárlagaári, er flutt til þess að leita staðfestingar Alþingis á greiðslum úr ríkissjóði sem eru allt að 8,8 milljarðar umfram fjárlög. Þetta eru að sjálfsögðu tíðindi sem vert er að taka eftir og það af ýmsum orsökum. Í fyrsta lagi er rétt að vekja á því athygli hvernig afgreiðsla fjárlaga fyrir þetta ár var fyrir tæpu ári síðan. Þá lá það fyrir að fjárlög voru afgreidd með tekjuafgangi sem nam 636 millj. kr. Og þá var sagt af hálfu hæstv. fjmrh. og af hálfu meiri hl. hér á hinu háa Alþingi að þau fjárlög mörkuðu að ýmsu leyti tímamót. Hæstv. fjmrh. sparaði þá ekki
hinar stóru yfirlýsingarnar fremur venju. Hann lýsti því þá yfir að nú væri lokið hallarekstri ríkissjóðs, nú skyldi náð jöfnuði í rekstri ríkissjóðs og lokið sukki og hallarekstri sem þar hefði viðgengist. Það væri sem sé runnið upp tímabil jafnvægis og aðhalds og sparnaðar í rekstri ríkisins.
Þá var jafnframt sagt af hálfu hæstv. fjmrh. að frv. fyrir árið 1989 væri enginn gleðiboðskapur og það var vissulega rétt. En það var jafnframt sagt af hálfu hæstv. fjmrh. að það þyrfti bæði áræði og kjark til þess að taka á málum með þeim hætti að snúið yrði við frá hallarekstri til jafnvægis. Með því frv. sem flutt var fyrir árið 1989 sýndi hæstv. fjmrh. það áræði að leggja fram frv. sem væri raunhæft og stæðist í þeim efnum að með því ætti að ná jafnvægi í fjármálum ríkisins.
Þá var jafnframt sagt af hálfu hæstv. fjmrh. að það þyrfti kraft til að standa að málum við framkvæmd ríkisfjármála á árinu 1989 þannig að þetta jafnvægi næðist og yrði raunhæft. Ég hef áður vikið að þessum orðum hæstv. fjmrh. og ég hef sagt að það vantaði ekki á þeirri tíð að af hæstv. fjmrh. geislaði bæði áræði og kraftur meðan hann stóð í ræðustólnum. Og það fór svo að í þeim umræðum um þessa afgreiðslu fjárlaga fyrir tæpu ári síðan var hæstv. fjmrh. næsta borginmannlegur. Það liðu á hinn bóginn ekki nema örfáar vikur eftir að Alþingi var komið heim frá störfum á vordögum 1989, þ.e. fyrir mitt þetta ár, þar til hæstv. ríkisstjórn hafði tekið ákvarðanir sem kollvörpuðu þessum áætlunum, sem kollvörpuðu öllum yfirlýsingum hæstv. fjmrh. um að jafnvægi skyldi verða á rekstri ríkissjóðs á árinu 1989 og breytti stöðunni úr 636 millj. kr. rekstrarafgangi í á fimmta milljarð í halla. Örfáar vikur. Og þetta gerðist þvert ofan í allar þær yfirlýsingar sem þá voru gefnar.
Ég vil einnig minna á að við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár fyrir tæpu ári síðan höfðum við fulltrúar stjórnarandstöðunnar sitthvað við meðferð mála að athuga og við fjárlagafrv. fyrir þetta ár einnig. Við gagnrýndum frv. býsna harðlega og við gagnrýndum meðferð mála einnig. Og við bentum á að engar líkur væru til þess að yfirlýsingar hæstv. fjmrh. stæðust. Við bentum á að þessum fyrirætlunum ætlaði hæstv. fjmrh. að ná með því að auka skattbyrði þjóðarinnar meira á einu ári en nokkru sinni hafði áður gerst. Og staðreyndin er sú að
fyrir liggur skv. áætlunum að skattbyrði á þessu ári verði meiri en nokkru sinni fyrr eða um 26,6% af vergri landsframleiðslu á meðan hún var til að mynda á árinu 1987 23,6% af vergri landsframleiðslu. Enn á síðan að hækka skattana á því ári sem tekur við undir fjármálastjórn hæstv. fjmrh.
Við bentum á að í fyrsta lagi ætlaði hæstv. ríkisstjórn að ná jöfnuði með þessum hætti. Samt mundi það ekki duga. Við bentum á að stefnuleysi hæstv. ríkisstjórnar í málefnum þjóðarinnar bæði í atvinnu- og efnahagsmálum á þeim tíma sem fjárlög voru afgreidd væri algert og af þeim sökum væru forsendur fjárlaganna fyrir árið 1989 í lausu lofti. Og hvernig skyldi nú reynslan hafa orðið í þeim efnum?
Í fjárlagafrv. fyrir árið 1989 og við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár var gert ráð fyrir að verðlag hækkaði milli ára um 13--14%. Í skýringum með frv. til fjáraukalaga fyrir þetta ár kemur fram að þetta hefur ekki staðist heldur hefur verðlag hækkað um 23%. Í fjárlagafrv. fyrir árið 1989 og við afgreiðslu fjárlaga þetta ár var gengið út frá því að gengi íslensku krónunnar mundi hækka á milli ára 1988 og 1989 um 11,5%. Skyldi nú þetta hafa staðist? Ó nei, ekki aldeilis. Gengið á milli ára 1988--1989 hefur hækkað um 25%. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár og við meðferð fjárlagafrv. fyrir þetta ár var út frá því gengið að laun milli áranna 1988 og 1989 mundu hækka um 6,5%. Samkvæmt upplýsingum frá ríkisstjórninni sjálfri hafa laun hækkað á þessu tímabili að meðaltali um 11,5%. Betur verður ekki sannað að allt það sem við fulltrúar minni hl. og stjórnarandstöðunnar sögðum á Alþingi við meðferð fjárlagafrv. fyrir árið 1989 og við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár hefur reynst satt og rétt.
Þrátt fyrir þá gagnrýni okkar fulltrúa stjórnarandstöðunnar á þessum tíma sem sett var fram bæði skorinort og ítarlega sögðu hæstv. fjmrh. og hv. fulltrúar meiri hl. hér á hinu háa Alþingi að þetta skipti engu máli og að röksemdir okkar í þessum efnum væru ekki í samræmi við raunveruleikann. Staðreyndirnar liggja nú fyrir og af því sem ég hef hér lýst, hvernig forsendur fjárlaga fyrir þetta ár hafa reynst, er þegar ljóst að útgjöld ríkissjóðs hafa farið milljarða fram úr því sem áætlað var þegar fjárlögin voru afgreidd.
Við í minni hl. bentum þá einnig á að inn í fjárlagafrv. vantaði stóra liði útgjalda sem augljósir væru. Þessu var öllu mótmælt af hæstv. fjmrh. og hv. fulltrúum meiri hl. Við bentum á að inn í fjárlagafrv. vantaði í vaxtaliðinn sem næmi hundruðum millj. kr. Niðurstaðan liggur fyrir að því leyti sem hún er þegar kunn í því fjáraukalagafrv. sem hér er til umræðu, en þar er farið fram á heimild ríkissjóðs eftir á til að greiða vexti til viðbótar við fjárlagaáætlanir upp á 820 millj. kr. Við bentum á við meðferð fjárlagafrv. fyrir þetta ár og við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1989 að í niðurgreiðsluliðinn vantaði a.m.k. 600--700 millj. kr. til að niðurgreiðslustigið héldist óbreytt út þetta ár. Staðreyndin liggur fyrir í því fjáraukalagafrv. sem við erum hér með til umræðu og afgreiðslu. Þar kemur fram að leitað er heimilda til þess að greiða 800 millj. kr. til viðbótar við það sem fjárlög kveða á um.
Við bentum á, þegar við töldum upp ýmsa liði sem vantaði augljóslega inn í frv. til fjárlaga fyrir þetta ár, að stórar fjárhæðir vantaði, nokkur hundruð millj. inn í framlög til landbúnaðarins. Og niðurstaðan er hér í þessu frv., fjáraukalagafrv. fyrir árið 1989. Þar kemur fram að verið er að leita heimilda fyrir auknum útgjöldum í framlög vegna landbúnaðarins um 790 millj. kr. Hefði þó verið full þörf á að lengra væri gengið til þess að staðið væri við lög um þessi efni. Við bentum enn fremur á við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár --- kannski ég eigi að gera hlé á máli mínu meðan þeir hv. stjórnarliðar halda fund. Ef hæstv.
fjmrh. getur slotað þeim fundi get ég haldið áfram mínu máli. ( Fjmrh.: Honum er lokið.) Við bentum einnig á að augljóst væri að verulegar fjárhæðir vantaði til Vegagerðar ríkisins miðað við þau verkefni sem henni væri ætlað að vinna, fyrir utan það sem hæstv. ríkisstjórn ákvað að skerða sérmerkta tekjustofna Vegagerðarinnar á þessu ári. Og niðurstaðan liggur hér fyrir. Í brtt. sem fylgja þessu frv. og í frv. sjálfu er farið fram á heimild ríkissjóðs eftir á til að greiða megi á árinu 1989 yfir 500 millj. kr.
Ég ætla ekki að telja upp fleiri liði af þessum toga. Þeir eru fleiri til. En þetta er hér dregið fram til að sýna fram á að það sem við fulltrúar stjórnarandstöðunnar héldum fram í umræðum um fjárlagafrv. fyrir þetta ár og við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1989 hefur staðist í öllum greinum. Meira að segja fórum við þar varlega í sakirnar í okkar áætlunum sem sjálfsagt var því að það er ekki okkar háttur að fara með það sem kynni að vera ofsagt í þessum efnum. Þess þarf ekki með. Við nefnum nógu stórar tölur fyrir því.
Það hefur jafnframt komið í ljós að yfirlýsingar hæstv. fjmrh. um trúverðugleika þess fjárlagafrv. sem hann mælti þá fyrir sem sérstöku tímamótaplaggi í fjármálum ríkisins og hann hefði haft áræði til að setja saman og flytja slíkt frv. og mundi hafa kjark til að fylgja eftir í framkvæmd hjá fjármálum ríkisins á þessu ári hefur allt saman reynst vera markleysa. Það
er allt að engu orðið. Stórar yfirlýsingar hæstv. fjmrh. eru með þessu marki brenndar frá því við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár og það er hætt við að það verði einnig svo við afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár. Ég tel ástæðu til þess að draga þetta hér skýrt og rækilega fram.
Við fulltrúar stjórnarandstöðunnar, bentum einnig á við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár að með þeirri afgreiðslu væri þrengt að atvinnuvegunum í landinu og það væri þrengt að hagsmunum landsbyggðarinnar. Þetta hefur vitaskuld komið fram, enda er staðan sú í atvinnumálum landsbyggðarinnar nú að sannarlega væri full þörf á að eitthvað væri tekið til hendinni. Á því eru engar horfur meðan þessi hæstv. ríkisstjórn situr að völdum.
Það er ekki að ástæðulausu að ég rifja þetta hér upp. Það er ekki að ástæðulausu sem ég dreg fram að gagnrýni okkar fulltrúa stjórnarandstöðunnar á málatilbúnað hæstv. fjmrh. í fjárlagafrv. og við afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár væri rangur. Hann stóðst ekki raunveruleikann. Í mörgum greinum var þetta augljóst og við bentum á það rækilega í umræðum um þessi mál. Þessar viðvaranir okkar voru að engu hafðar. Meira að segja var sagt að þær væru markleysa ellegar ekkert gerði til þó að útgjöldin færu fram úr því sem fjárlög kvæðu á um því að tekjurnar mundu vaxa að sama skapi. Það var hið innbyggða samhengi hæstv. fjmrh. sem ég vakti athygli á hvernig farið hefði í umræðum við 2. umr. fjárlaga hér fyrir nokkrum dögum. Ég held að þetta geti varla legið skýrar fyrir en hér hefur gerst. Nú kemur hæstv.
fjmrh., hefur lagt fram frv. til fjáraukalaga og þar er farið fram á að Alþingi heimili eftir á í flestum greinum að greiddir séu úr ríkissjóði allt að 8,8 milljarðar umfram fjárlög á þessu ári. En á sama tíma að tekjur ríkissjóðs aukist skv. áætlun um liðlega 3 milljarða kr. Þetta liggur nú fyrir. Það er þess vegna eins skýrt og verða má að sú skoðun okkar, fulltrúa minni hl. við afgreiðslu þessara mála fyrir ári síðan, átti við full rök að styðjast, var rétt, en fullyrðingar og yfirlýsingar hæstv. fjmrh. voru á sandi byggðar.
Hæstv. fjmrh. hóf sitt starf í fjmrn. með þeim hætti að lýsa yfir við okkur sem eigum sæti í fjvn. að hann vildi hafa við okkur gott samstarf. Það er vel og ekki stóð á því að nefndin vildi taka þátt í því samstarfi og við fulltrúar minni hl. í fjvn. tókum því einnig fegins hendi og vorum reiðubúnir til samstarfs um þau málefni sem við gátum átt samstarf um við hæstv. fjmrh., sem er vitaskuld takmörkunum háð.
Hæstv. fjmrh. lét þess einnig iðulega getið að hann kynni full skil á því hver væru takmörk þingræðisins og hvað þingræðið leyfði framkvæmdarvaldinu. Þess vegna væri mikil nauðsyn á því að handhafar framkvæmdarvaldsins, og þá ekki síst hæstv. fjmrh. varðandi fjármál ríkisins, hefðu gott samstarf við Alþingi og fulltrúa Alþingis í fjvn. Allt var gott um þetta að segja og hæstv. fjmrh. fór nokkuð vel af stað varðandi þessa hluti. En svo fór að botninn datt úr þessum góðu áformum og það sannast í ræðu hv. formanns fjvn. hér áðan að samstarf hefur verið lítið milli fjvn. og hæstv. fjmrh. um meðferð þeirra miklu aukafjárveitinga sem hæstv. ríkisstjórn og hæstv. fjmrh. hafa ákveðið á þessu ári. Það sannast m.a. vegna þeirra orða hv. formanns fjvn. að ýmsar af þeim tillögum sem fram komu hjá hæstv. ríkisstjórn um útgjöld ríkissjóðs á þessu ári, útgjöld sem þegar eru orðin staðreynd, séu með þeim hætti að fjvn. mundi ekki hafa á fallist ef þær greiðslur hefðu ekki þegar verið um garð gengnar. Betur verður ekki sannað að þrátt fyrir yfirlýsingar hæstv. fjmrh. um samstarf við fjvn. og virðingu hans fyrir þingræðinu og mikilvægi þess að framkvæmdarvaldið hefði gott samstarf við löggjafarvaldið og fulltrúa löggjafarvaldsins í fjvn. hefur þetta samstarf runnið út í sandinn. Hæstv. fjmrh. virðist hafa tekið sínar ákvarðanir um aukafjárveitingar og heimildarlausar greiðslur úr ríkissjóði án þess að bera þær undir meiri hl. í fjvn. Víst er að þær hafa ekki verið bornar undir nefndina í heild og út af fyrir sig skal ég ekki að því finna því að mál af þessu tagi hljóta að vera mál meiri hluta á Alþingi hverju sinni, þ.e. hæstv. ríkisstjórnar og meiri hl. fjvn. og meiri hluta hér á löggjafarsamkomunni.
Ég vil hins vegar vara hæstv. fjmrh. við því að ef svo gengur fram um hans vinnulag að ákveða upp á eindæmi hæstv. ríkisstjórnar heimildarlausar greiðslur úr ríkissjóði í jafnríkum mæli og gert hefur verið á þessu ári, þá kann svo að fara að löggjafarvaldinu og fulltrúa löggjafarvaldsins í heild í fjvn. þyki nóg boðið. Og víst er um það að nokkrar af þeim tillögum sem hæstv. fjmrh. hefur gert við meðferð þessa máls
og í frv. sjálfu hafa verið settar til baka. Meiri hl. fjvn. hefur ekki á þær fallist og sannar það enn að það samstarf og þau samráð sem hæstv. fjmrh. lýsti yfir snemma á sínum starfsferli að hann mundi viðhafa í þessum málum hafa ekki gengið eftir. Samráð og samstarf sem á að vera ef þessi mál eru rekin með þeim hætti sem eðlilegt er.
Hæstv. fjmrh. stendur því hér uppi við þessa umræðu, ekki einungis með það að yfirlýsingar hans við meðferð fjárlagafrv. og afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár fyrir ári síðan hafa reynst markleysa. Hann stendur einnig uppi með það að yfirlýsingar hans um gott samstarf við meiri hl. fjvn. og við fulltrúa löggjafarvaldsins hafa reynst markleysa. Hvað sem sagt kann núna að verða um
þau mál, þá liggur sönnun fyrir í þskj., í tillögum meiri hl. fjvn. við fjáraukalög fyrir þessa umræðu og í ræðu hv. formanns fjvn. sem hér talaði ákaflega ítarlega og skýrt um þessi mál.
Vel má vera að hæstv. fjmrh. telji að hann hafi ekki þurft á samstarfi að halda um þessi mál nema hinar fyrstu vikurnar eða jafnvel fyrstu mánuðina. Þegar hann hefði starfað um tíma í sínu embætti, þá væri hann fullfær um að ráða þessum málum sjálfur. Það væri nánast formsatriði að leggja þessi mál fyrir Alþingi. Það skal þó viðurkennt, og er sjálfsagt að viðurkenna það sem er til bóta, að það er framför í því að leggja fram fjáraukalagafrv. á sama ári og útgjöld eru veitt úr ríkissjóði. Ég tel enga ástæðu til þess að draga fjöður yfir það ef finnanleg eru atriði sem til betri vegar horfa í framkvæmd þessara mála. Nóg er af hinum sem eru gagnrýnisverð.
Hæstv. fjmrh. lét þess getið á haustdögum þegar hann skýrði frá því að hann hygðist flytja það frv. sem hér er til umræðu að með því móti væri Alþingi gert að taka á því ábyrgð hvort þær greiðslur úr ríkissjóði sem leitað yrði heimildar fyrir í fjáraukalagafrv. yrðu greiddar eða ekki. Alþingi yrði falið það verkefni að fjalla um þetta og taka á sig ábyrgðina á því hvort þetta yrði gert eða ekki. Og hæstv. fjmrh. lét þess getið við 1. umr. þessa máls að verulegur hluti, meginhlutinn, af þessu fé hefði ekki enn verið greiddur og mundi ekki verða greiddur nema Alþingi samþykkti að svo skyldi vera.
Í ræðu hv. formanns fjvn. kom ákaflega skýrt fram hvernig þetta hefur orðið í raun. Í ljós kom að einungis um 300 millj. kr. eða raunar tæplega það, um 285 millj. kr. af nærri 8,8 milljarða auknum útgjöldum á þessu ári var ekki búið að ráðstafa eða binda fastmælum um ráðstöfun þegar frv. kemur til afgreiðslu. Einungis þessi fjárhæð, eins og skýrt kom fram í ágætri ræðu hv. formanns fjvn., var sú sem mögulegt var fyrir hv. Alþingi að taka ákvörðun um að hætta við fyrirætlanir um að greidd yrði. Og meiri hl. fjvn. ákveður að leggja fram till. sínar í því efni á þann veg að horfið yrði frá því að greiða 117 millj. kr. af þessu fé. Mér er ekki grunlaust um að hæstv. fjmrh. og e.t.v. fleiri hæstv. ráðherrum í núv. ríkisstjórn hafi þótt nóg um og hafi jafnvel fundið að því að meiri hl. fjvn. skyldi leyfa sér að halda á
málum með þeim hætti að setja til baka eitthvað af óskum hæstv. fjmrh.
Þegar til kastanna kom þá voru það aðeins 285 millj. kr. af þessari miklu fjárhæð sem ekki var búið að ráðstafa að fullu, ekki var búið að greiða eða binda fastmælum að fullu að greitt yrði. Þrátt fyrir að hæstv. fjmrh. lýsti því yfir á haustdögum að ekkert yrði greitt af þessu fé nema það yrði samþykkt áður á Alþingi. Og hann hefði nóg svigrúm í fjárlagadæminu til að fella niður greiðslur á móti ef svo kynni að fara að Alþingi neitaði að samþykkja einhverjar af þeim óskum sem hann setti fram um greiðslur úr ríkissjóði umfram fjárlög. Svona fór nú um sjóferð þá. Ég get varla hugsað mér aumkunarverðari niðurstöðu fyrir hæstv. fjmrh. eftir þær sveru yfirlýsingar sem hann gaf um þetta efni.
Þess er enn að geta að hv. formaður fjvn. lýsti því í ræðu sinni að það kynni að verða að hafa fyrirvara á að eitthvað af þeim 285 millj. kr., sem talið var í fjvn. að ekki væri búið að greiða eða væri fastmælum bundið að greiða, væri samt sem áður þegar greitt vegna rangra upplýsinga. Og ef hæstv. fjmrh. hefði hirt um að vera við þegar hv. formaður fjvn. talaði hér áðan hefði hann getað fylgst með þessu öllu saman. Honum er þetta samt sem áður eigi að síður allt saman fullkunnugt. Hann veit sína stöðu í þessu máli þrátt fyrir að hvenær sem hann kemur í ræðustól eða talar við fjölmiðla ber hann sig borginmannlega. Þannig er nú staðan í þessum málum. Og það er á eina lund með yfirlýsingar þessara hæstv. ráðherra að þegar til kastanna kemur þá standast þær ekki. Enda mun það svo að þegar hæstv. ráðherrar standa á þann veg að málum þá fer að bresta trúnaðurinn.
Ég vil gjarnan draga það fram í þessu sambandi að hæstv. fjmrh. hefur ofan í allt þetta verið með allítarlega tilburði í þá átt að brjóta upp nýsett lög Alþingis. Lög sem eiga sér margra ára aðdraganda, jafnvel margra áratuga aðdraganda og gífurlega vinnu fjölda stjórnmálamanna og sveitarstjórnarmanna á landinu, þ.e. lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þessi hæstv. ráðherra telur sér heimilt eða að það sé bara ekkert mál þó að lagaákvæði séu brotin með fjárlagaafgreiðslu. Þó brotið sé upp samkomulag sem tekið hefur fjölda ára, jafnvel áratugi, að ná saman um og loks var afgreitt hér á hinu háa Alþingi fyrir ári síðan. Það er sannarlega eftir öðru í því hvernig þessi hæstv. ráðherra stendur við sínar yfirlýsingar og hvaða virðingu hann ber fyrir þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið.
Ég skal, virðulegur forseti, ekki fjalla um þennan þátt málsins í miklu lengra máli að sinni. Ég held að ástæða sé til að fara nokkrum orðum um frv. sjálft og þá afgreiðslu sem stefnt er að með brtt. meiri hl. nefndarinnar. Ég vakti athygli á því við 1. umr. málsins, og það gerðu raunar fleiri hv. ræðumenn, að það frv. sem hér er til afgreiðslu var miklum annmörkum háð eins og það var flutt. Ég tek það fram, eins og ég gerði raunar einnig þá og hef þegar gert að nokkru í máli mínu hér að framan, að það er þó eigi að síður
jákvæður áfangi í meðferð ríkisfjármála að flytja frv. til fjáraukalaga á fjárlagaári. Það er viss áfangi sem vert er að taka eftir og ég hef enga ástæðu til annars en að láta það koma fram um leið og ég gagnrýni hæstv. fjmrh. fyrir meðferð þessara mála með hörðum orðum á ýmsum öðrum sviðum.
Ég vek athygli á því að eftir að fjárlög síðasta árs fóru svo mjög úr böndunum sem raun ber vitni, þar á meðal í höndum núv. hæstv. fjmrh. þannig að útgjöld ríkissjóðs á því ári fóru 8 milljarða fram úr því sem fjárlög kváðu á um meðan tekjurnar jukust um 800 milljónir var fjvn. í heild vitaskuld nóg boðið. Þessi meðferð mála og þessi staða í fjármálum ríkissjóðs olli þar mikilli umræðu. Í framhaldi af þeirri umræðu tók fjvn. í heild ákvörðun um að leitast við að hafa áhrif á breytta skipan þessara mála. Einn þáttur í þeirri breyttu skipan er sá að við teljum eðlilegt og nauðsynlegt að fjáraukalög séu flutt til þess að afla heimilda fyrir aukafjárveitingum áður en fé er greitt úr ríkissjóði. Eftir þær viðræður sem um þetta mál fóru fram milli fjvn. annars vegar og hæstv. fjmrh. hins vegar ákvað hæstv. fjmrh. að flytja þetta frv. Og ég hef þegar farið viðurkenningarorðum um að það skyldi gert. Þegar frv. var flutt var á hinn bóginn augljóst að frv. var í fyrsta lagi seint fram komið. Það má skýra með því að þetta er í fyrsta sinn sem slíkt frv. er flutt á fjárlagaári. En augljóst var þó að frv. var bæði of seint fram komið og að það var vanburða. Hversu seint það er komið fram veldur því að afgreiðsla frv. og sú viðamikla vinna sem við höfum nú lagt að baki í fjvn. varðandi þetta mál og lýst var af hv. formanni nefndarinnar fer saman við aðalvinnutörn fjvn. og það er afar óheppilegt verklag. Það væri mikil nauðsyn á því að fjáraukalagafrv. væri flutt um það leyti eða eigi síðar en þing kemur saman þannig að á meðan meiri tími vinnst til vinnu í fjvn. sé hægt að taka slíkt mál til meðferðar.
Í öðru lagi var ljóst eins og ég hef hér þegar sagt og glöggt kom fram í máli hv. formanns nefndarinnar að frv. var það seint fram komið að meginhlutinn af því fé sem með frv. var ætlast til að aflað væri heimilda fyrir hafði þegar verið greiddur úr ríkissjóði. Að þessu leyti stendur Alþingi frammi fyrir gerðum hlut. Og ég þarf engu að bæta við þau orð sem þegar hafa verið sögð bæði hér fyrr í ræðu minni og í ræðu hv. formanns fjvn., Sighvats Björgvinssonar.
Þetta er vitaskuld með öðrum hætti en við í fjvn. teljum að þurfi að vera. Við teljum að fjáraukalagafrv. eigi að flytja áður en aukafjárveitingar eru greiddar úr ríkissjóði, áður en hinar ýmsu greiðslur fara þar fram, og á þann hátt fyrir fram aflað heimilda Alþingis til þess að slíkar greiðslur verði inntar af hendi. Þetta er enda í samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins. Og þó að fram hjá þessum hlutum hafi iðulega verið farið á undanförnum árum þá hefur það ráðslag nú gengið svo langt að við sem erum fulltrúar löggjafarvaldsins í fjvn. teljum að svo megi ekki lengur standa.
Í þriðja lagi var frv. lagt fram í þeim búningi að það gat naumast talist þinghæft. Í nál. minni hl. nefndarinnar er að þessu vikið og að þessu var einnig
vikið í ræðu minni við 1. umr. þessa máls. Í fyrsta lagi voru sömu fjárlagaliðirnir taldir upp hvað eftir annað í frv. eins og það var lagt fram í stað þess að að sjálfsögðu átti að fella þær tölur saman í eina sem heyrði undir sama fjárlagaliðinn, sama tölul. í hverjum fjárlagalið og greina síðan sundur í skýringum eftir því sem við átti í grg. frv.
Í öðru lagi voru í frv. safnliðir sem námu samtals um 4 milljörðum kr. sem ekki voru greindir sundur eftir fjárlagaliðum og gátu, eftir því sem frv. leit út, að verulegu leyti verið til frjálsrar ráðstöfunar af hálfu hæstv. fjmrh. Þetta var vitaskuld ekki hægt að sætta sig við og ekki þinghæft.
Í þriðja lagi var farið fram á heimildir til þess að lækka útgjöld ríkissjóðs um allt að 650 millj. kr. án þess að þessu fé væri skipt niður á einstök verk eða einstaka fjárlagaliði.
Að öllum þessum efnum var vikið í ræðu hv. formanns fjvn., Sighvats Björgvinssonar. Fjvn. hefur orðið sammála um á hvern hátt skyldi tekið á þessu formi frv. og því breytt með brtt. meiri hl. nefndarinnar. Eins og þær brtt. líta út er frv. nú komið í þinghæft horf. Nú er hægt að krefjast atkvæðagreiðslu um hvern einstakan lið frv. og hvaða þingmaður sem er getur óskað eftir því að tjá sig um hvern einstakan lið og greiða atkvæði sérstaklega um hvern einstakan lið. Svo er einnig hitt að þær stofnanir sem eiga að sætta sig við þær fjárveitingar sem frv. ber með sér vita hvar þær standa. Þetta hvort tveggja er nauðsynlegt í því formi sem hér er verið að setja á blað.
Ég tek undir það sem hér hefur komið fram að afar mikilvægt er að átta sig á réttum efnistökum þessa máls því það kann að hafa verulegt fordæmisgildi. Og ég endurtek að nefndin sem heild stendur að þessum efnistökum og er um þau sammála. Ég vænti þess að það efnisform sem er nú á frv., miðað við brtt. meiri hl. nefndarinnar, geti því orðið fordæmi á komandi árum við meðferð slíkra mála.
Sá mikli fjöldi brtt. sem meiri hl. nefndarinnar flytur hefur auðvitað að
ýmsu leyti það að markmiði að ná þessum formbreytingum á frv. til að gera það mögulegt að frv. sé í raun þinghæft. Og með því skýrast að töluverðu leyti þær till. sem fram eru settar á þskj. 367. Auðvitað eru þar einnig ýmsar brtt. sem fela í sé efnisatriði, ný atriði sem fram koma ýmist til lækkunar eða hækkunar á útgjöldum þessa frv.
Þrátt fyrir að nefndin sem slík sé sammála þessum efnistökum og eigi þátt í þeim, eins og hér hefur verið lýst, flytur meiri hl. brtt. án aðildar minni hl. Minni hl. tekur þó fram að nokkrar af þeim brtt. sem fluttar eru á þskj. 367 eiga rætur að rekja til ákvarðana á Alþingi sem stjórnarandstaðan hefur átt aðild að. Og aðrar til ákvarðana í fjvn. í heild ellegar vinnu í starfshópum á vegum nefndarinnar sem fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa tekið þátt í. Þessar till. eru þess efnis að minni hl. leggur til að þær verði samþykktar. Og til þess að þær liggi skýrt fyrir eru þær taldar upp í nál. minni hl. nefndarinnar á þskj.
372. Ég tel eðlilegt að víkja að þessum till. í nokkrum efnum til að þeir sem hér eru þó viðstaddir velkist ekki í vafa um að minni hl. styður þessar till. og leggur til að þær verði samþykktar.
Í fyrsta lagi er till. varðandi embætti forseta Íslands, um viðhald fasteigna. Hún á rætur að rekja í lagasetningu á hv. Alþingi á síðasta þingi sem stjórnarandstaðan tók þátt í afgreiðslu á og studdi af heilum hug.
Í öðru lagi er till. er varðar Stýrimannaskólann í Reykjavík, kennslutæki, stofnkostnað við kennslutæki. Hún á rætur að rekja til þess að gefin var heimild í 6. gr. fjárlaga fyrir þetta ár sem nefndin sem heild stóð að og við leggjum til að verði samþykkt.
Í þriðja lagi eru nokkrir liðir varðandi sjúkrahús og læknisbústaði þar sem um stofnkostnað er að ræða. Þeir undirliðir eiga rætur að rekja til vinnuhóps sem starfaði innan fjvn. um skiptingu á fé til stofnkostnaðar í læknisbústöðum og sjúkrahúsum og á heilsugæslustöðvum. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar áttu fulla aðild að þeim vinnuhóp og við leggjum til að sú till. verði einnig samþykkt. Þá eru till. er varða Vegagerð ríkisins sem að meginefni til eiga rætur að rekja til afgreiðslu vegáætlunar hér á Alþingi sl. vor, en vegáætlun var afgreidd 20. maí sl., en að öðru leyti til breytinga sem gerðar voru nú í fjvn. við meðferð þessa máls og skýrðar hafa verið í ræðu formanns. Þessar till. eru studdar af minni hl. nefndarinnar.
Þá er hér enn fimmta till. er varðar hafnamál, það eru sjóvarnargarðar á Flateyri, sem á rætur að rekja til vinnu í starfshópi á vegum fjvn. sem fulltrúi minni hl. tók fullan þátt í og við leggjum til að verði samþykkt. Sömu sögu er að segja um sjöttu till., er varðar Öryggismálaskóla sjómanna, upp á 7,5 millj. kr. og á einnig rætur að rekja til slíks vinnuhóps.
Ég vil sérstaklega taka fram að ýmsar aðrar till. sem eru í þessu frv. eru auðvitað misjafnar að efni og ganga til ýmiss konar viðfangsefna. Margt af því eru vitaskuld góð viðfangsefni og þörf mál. Önnur eru með þeim hætti að fulltrúar minni hl. lýsa þar algerri andstöðu við, enda þótt við í þessari afgreiðslu greinum þar ekki mál nákvæmlega í sundur. En ég minni á að meira að segja formaður nefndarinnar lýsti því hér í ræðu sinni að sumar þessara till. sem væru til að staðfesta greiðslur úr ríkissjóði sem þegar væru um garð gengnar væru þess efnis að hefðu þau mál komið til kasta fjvn. áður en greitt var úr ríkissjóði hefðu þau ekki hlotið meðmæli eða stuðning nefndarinnar í heild.
Ég tel naumast ástæðu til að tína hér fram einstakar slíkar till. sem minni hl. sér ástæðu til að vekja athygli á að séu með þeim hætti að við séum andvígir. En þó get ég tekið undir þær athugasemdir um þetta efni sem fram komu í máli hv. þm. Sighvats Björgvinssonar. Og vitaskuld má bæta við þær nokkrum atriðum. Ég nefni að í þessum till. sem hér birtast, þessu frv. til fjáraukalaga, er verið að leita staðfestingar Alþingis á greiðslum sem eiga að ganga til þess að kosta laun og annan kostnað við
aðstoðarráðherra eða aðstoðarmenn ráðherra í sumum ráðuneytanna sem ráðnir eru án heimilda. Hér er um að ræða a.m.k. tvo starfsmenn hæstv. fjmrh. Og hér er enn fremur um að ræða a.m.k. einn starfsmann hæstv. menntmrh. sem hér situr í hliðarherbergi. Ég get ekki látið þessa umræðu ganga svo að ég lýsi ekki fullri andstöðu við þá meðferð fjármuna ríkisins. Þegar hæstv. fjmrh. og sumir aðrir hæstv. ráðherrar í þessari ríkisstjórn taka sér vald til þess að ráða starfsmenn á þann hátt að lög og reglugerð um Stjórnarráð Íslands eru brotin og taka til þess fé úr ríkissjóði án heimilda, þá er ekki hægt að láta umræðu um þessi mál ganga án þess að það sé sterklega á því vakin athygli.
Ég hef vissulega gert þessi mál að umtalsefni fyrr á þessu Alþingi en með því að samþykkja það fé sem hér er ætlað að afla heimilda fyrir til greiðslu kostnaðar í aðalskrifstofu fjmrn. og aðalskrifstofu menntmrn. er verið að samþykkja fé til þess að greiða fyrir þessa óheimilu starfsmenn sem ég tel víst að séu í leiðinni flokksgæðingar þessara hæstv. ráðherra.
Ég tel einnig ástæðu til að vekja á því athygli að í þessum till. er farið fram á 45 millj. kr. til að undirbúa á vegum fjmrn. gildistöku virðisaukaskatts. Að sjálfsögðu þarf að undirbúa gildistöku virðisaukaskatts
en spyrja má: Er líklegt að þessu fé hafi verið vel varið? Ég geri ráð fyrir að allir hv. alþm. hafi séð heilsíðuauglýsingar í dagblöðunum um gildistöku virðisaukaskatts og ýmis þau atriði sem að þeim málum lúta. Ég hef séð nokkrar þessara auglýsinga og ég hef ekki séð að ég yrði að neinu bættari og að neinu fróðari við að sjá heilsíðuauglýsingar dagblaðanna um þessi efni. Mér er ekki kunnugt um og hef ekki aflað upplýsinga um hvað ein heilsíðuauglýsing í dagblaði kostar. En ég leyfi mér að fullyrða að þessar auglýsingar eru þannig úr garði gerðar að með þeim er verið að ráðstafa fé ríkissjóðs, án heimilda, á þann hátt að betur hefði mátt fara. Hæstv. ráðherra og sá af hans aðstoðarpiltum sem ráðinn hefur verið með óheimiluðum hætti og á að kenna landsmönnum að borga skattana með bros á vör hafa vafalaust ráðið því hvernig form og útlit og fjöldi þessara auglýsinga hefur verið. En með þessum hætti er verið að ráðstafa fé úr ríkissjóði sem á að leita staðfestingar á eftir á með þeim hætti að ég tel að ekki sé árangurs að vænta og að þar sé um sóun að ræða. Að sjálfsögðu haggar þetta ekki því að nokkru fé þarf að verja til þess að undirbúa þessa miklu skattkerfisbreytingu og færi vel á því að það verk væri unnið að mestu á vegum ríkisskattstjóraembættisins.
Ég nefni hér að í þessu fjáraukalagafrv. er verið að fara fram á greiðslur úr ríkissjóði sem eiga að standa undir húsakaupum hæstv. ríkisstjórnar, sem í ýmsum tilvikum hafa verið án allra heimilda. Húsakaupum sem einnig eru sumpart því marki brennd að íslenska ríkið hefur ekkert með þessi hús að gera. Ég hef áður nefnt Hekluhúsið á Akureyri sem keypt var fyrir 59 millj. kr. Í brtt. meiri hl. fjvn., við 3. umr., mun koma fram að leitað verði heimildar til að selja þetta
hús, sem keypt var án allra heimilda fyrir 59 millj. kr. Það á að fullnægja heimildum til að kaupa húsið með því frv. sem hér liggur fyrir til umræðu. Síðan á að afla heimilda, ekki á morgun heldur hinn daginn, fyrir því að selja það vegna þess að ríkissjóður hefur ekkert með þetta hús að gera. Og það var slúður sem hæstv. fjmrh. lét sig hafa að segja hér fyrr í umræðum um þetta mál, að þetta væri keypti fyrir Háskólann á Akureyri, vegna þess að af ýmsum kostum sem eru til þess að leysa húsnæðismál Háskólans á Akureyri er þessi sá hinn versti, að nota til þess svonefnt Hekluhús. Það var því einbert fleipur af hálfu hæstv. ráðherra. Ég nefni þessi dæmi til þess að sýna fram á það ráðslag sem hæstv. ríkisstjórn og hæstv. fjmrh. leyfa sér í þessum efnum.
Ég nefni að í þessu fjáraukalagafrv. á að afla heimilda til að verja verulegum fjárhæðum, eða tæpum 10 millj. kr., til þess að undirbúa stofnun svokallaðs umhverfisráðuneytis sem enginn veit hvenær verður stofnað. Fréttamenn ríkisfjölmiðla hafa sagt að lög um þetta efni eigi að taka gildi í lok janúar eða um mánaðamótin janúar--febrúar. En Alþingi hefur ekki samþykkt þessi mál og ég hef ekki hugmynd um hvort stjórnarliðið stendur saman um að afgreiða þau mál og setja á stofn þetta ráðuneyti sem mér sýnist að sé óþarft og þar ofan í kaupið gegn vilja mikils þorra þjóðarinnar.
Ég nefni enn fremur að þegar hæstv. fjmrh. eða fjmrn. var beðið um það, eins og fram kom í ræðu formanns nefndarinnar, að gera fjvn. grein fyrir því hvar væri meiningin að skera niður sem svaraði 32 millj. kr. er vantaði inn í till. fjmrn., þegar gera átti grein fyrir því hvar ætti að skera niður hinar 650 millj. kr. sem till. eru gerðar um í þessu frv. þá voru þær till. sumar hverjar næsta hjákátlegar. Þá voru gerðar till. um að skera niður hjá stofnunum sem fengu kannski síðan hækkun til sambærilegra viðfangsefna í fjárlögum fyrir næsta ár. Og í sumum tilvikum voru gerðar till. um að skera niður fé sem þegar var búið að greiða, eins og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson lét raunar liggja að í ræðu sinni.
Ég nefni einn lið í þessu efni. Í þessum till. var gert ráð fyrir að skera niður hjá Landgræðslu ríkisins um 2 millj. kr. til svokallaðs fræræktarverkefnis og það er í till. meiri hl. nefndarinnar. Síðan kemur landbrn. og gefur þær upplýsingar að þetta fé hafi verið greitt þann 1. ágúst sl., þannig að þetta lítur nú að ýmsu leyti næsta hjákátlega út. Ég vek einnig athygli á því í meðferð þessara mála, og það kemur fram í nál. minni hl., og er næsta hastarlegt miðað við það fé sem nú er varið til þróunarmála, að þá skuli vera skorin út sú litla fjárveiting sem veitt er til UNIFEM, um 620 millj. kr., í stað þess að verja þessu fé til skynsamlegra hluta í þessu verkefni, úr því þessar till. voru á annað borð settar fram. Sömu sögu, sem birtir kannski hug þessarar ríkisstjórnar og hæstv. fjmrh. til þeirra verkefna sem unnin eru á vegum kvenna, má segja um að skera niður um 1 millj. kr. fjárveitingu eða meinta aukafjárveitingu til Kvennaathvarfsins. Að ýmsu leyti eru því þessar
niðurskurðartillögur næsta hjákátlegar og margar hverjar úr samhengi við aðra afgreiðslu í þessum málum, þar á meðal afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár. En meðal þess sem átti að verða framför í meðferð og framkvæmd fjármála ríkisins við það að leggja fram frv. til fjáraukalaga á sama ári og fé er veitt úr ríkissjóði var að með því gæfist enn betri grundvöllur en ella væri undir afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár. Það hefur ekki gerst með þessu frv. nema að litlum hluta.
Ég skal, virðulegur forseti, ekki lengja mál mitt mikið. Ég hef farið yfir
hvernig fullyrðingar hæstv. fjmrh. við undirbúning og afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár hafa reynst markleysa, einnig þá misbresti og hvernig þær yfirlýsingar sem hann hefur gefið varðandi samstarfið í fjvn., fulltrúa löggjafarvaldsins hafa dugað. Þær dugðu nokkuð vel fyrstu vikurnar, jafnvel örfáa mánuði, en síðan hefur hann ekki þóst þurfa að styðjast við fulltrúa löggjafarvaldsins í meðferð þessara mála.
Ég hef einnig vakið athygli á því hvernig það frv. sem hér er til meðferðar var úr garði gert þegar það var lagt fram og ég hef vakið athygli á því hvernig það hefur verið meðhöndlað af hv. fjvn. og lýst yfir samstöðu með meiri hl. nefndarinnar um meðferð þess máls og efnistök þess í fjvn. Þar hefur nefndin staðið fast saman og ég vil gjarnan fyrir minn hlut þakka það samstarf með sama hætti og fram kom í ræðu formanns nefndarinnar. En það sem eftir stendur er þó umfram allt það að þetta frv. sem nú liggur hér fyrir, þar sem farið er fram á að útgjöld ríkissjóðs vaxi um nálega 9 milljarða kr. og tekjurnar vaxi á móti um 3 milljarða, liggur fyrir sem dómur yfir fjármálastjórn hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstjórnar, að mál er varða ríkisfjármálin hafa farið úr böndunum á þessu ári, að yfirlýsingar hæstv. ráðherra um þáttaskil, um jafnvægi, um aðhald og sparnað í meðferð ríkisfjármála hafa reynst markleysa. Hæstv. ríkisstjórn stendur uppi með það að allar þessar yfirlýsingar hafa verið hjóm eitt. Það er í sjálfu sér gott að fá þann dóm áður en afgreidd eru fjárlög fyrir næsta ár. Þegar við sjáum þær brtt. sem fram koma frá meiri hl. fjvn. fyrir 3. umr. við þá fjárlagaafgreiðslu getum við séð að ýmsu mun þar vera ábótavant til þess að þau fjárlög muni reynast raunhæfari en þau sem við erum að reyna að lappa upp á með þessu frv.