Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Þegar ég tók þá ákvörðun að leggja í fyrsta skipti í tæp 70 ár fyrir Alþingi frv. til fjáraukalaga fyrir yfirstandandi ár voru ýmsir reyndir menn í stjórnmálum og ríkisfjármálum sem vöruðu mig við. Ég spurði: Hvers vegna? Þeir sögðu: Svarið er einfalt. Stjórnarandstaðan á Alþingi, sérstaklega Sjálfstfl., mun ekki rísa undir þessu nýmæli. Hann mun ekki rísa undir því trausti sem Alþingi er sýnt með þessari breytingu.
Sú ræða sem hv. þm. Pálmi Jónsson flutti hér verður því miður að túlkast sem sönnun á þessum viðvörunarorðum. Hér kemur fulltrúi Sjálfstfl. og talar af miklu yfirlæti um að öll vinnubrögð varðandi þetta frv. af hálfu ríkisstjórnarinnar og fjmrn. séu forkastanleg. Frv. sé seint fram komið, það sé þannig úr garði gert að flestir hlutir séu um garð gengnir og þingið hafi enga möguleika til þess að taka á málum. Hver var ferill Sjálfstfl. varðandi meðferð aukafjárveitinga og fjáraukalaga? Ræða hv. þm. Pálma Jónssonar gerir það óhjákvæmilegt að rifja það upp.
Lagði Sjálfstfl. aukafjárveitingar sínar fyrir Alþingi? Svarið er nei. Lagði Sjálfstfl. fjáraukalög sín fyrir Alþingi? Svarið er líka nei. Sjálfstfl. hafði fjmrh. 1983. Sá fjmrh. veitti margvíslegar aukafjárveitingar. Voru þær lagðar fyrir Alþingi á yfirstandandi ári? Nei. Voru þær lagðar fyrir Alþingi árið eftir? Nei. Árið þar á eftir? Nei. Einhvern tíma á kjörtímabilinu? Nei. Sjálfstfl. lagði verk sín aldrei, meðan hann fór með ríkisfjármálin, fyrir Alþingi, hvorki á yfirstandandi ári né á næstu árum þar á eftir. Lagði Sjálfstfl. aukafjárveitingar sínar 1984 fyrir Alþingi á því ári? Nei. Lagði hann þær fyrir Alþingi á árinu 1985? Nei. Á árinu 1986? Nei. Einhvern tíma á kjörtímabilinu? Nei. Hann lagði þær aldrei fyrir Alþingi. Lagði Sjálfstfl. aukafjárveitingar sínar á árinu 1985 fyrir Alþingi? Svörin eru á sama hátt nei og aftur nei.
Þegar ég kom í fjmrn. biðu þar á borðum og í skúffum aukafjárveitingar Sjálfstfl. og fjáraukalögin sem Sjálfstfl. lagði ekki fyrir Alþingi frá öllum þeim árum sem Sjálfstfl. stýrði fjmrn., öllum. Og það kom í minn hlut á árunum 1988 og 1989 að leggja fyrir Alþingi aukafjárveitingar sem Sjálfstfl. ákvað 1983, 1984, 1985, 1986 og 1987. Og það sem meira er, það kom í minn hlut að leggja fyrir Alþingi til staðfestingar fjáraukalagafrumvörp fyrir öll þessi ár sem Sjálfstfl. stjórnaði fjmrn. Svo koma þessir menn hér upp og þykjast vera í stöðu til þess að gagnrýna það að núv. fjmrh. og ríkisstjórn leggur fyrir yfirstandandi þing frv. til fjáraukalaga fyrir verk okkar á þessu ári. Mennirnir sem aldrei þorðu, meðan þeir sátu í fjmrn. á þessum áratug, að leggja fyrir þingið sín verk eða sýna þjóðinni sín verk. Voru aukafjárveitingar ráðherra Sjálfstfl. lagðar fyrir þingið? Nei, aldrei. Það var ekki fyrr en á síðasta þingi, þegar núv. hæstv. ríkisstjórn hafði tekið við, sem þinginu var sýnd sú virðing og framfylgt var þeirri lagalegu skyldu, þeirri stjórnarskrárbundnu skyldu að leggja fyrir Alþingi þessi verk. Það er merkilegt að þessir
menn skuli síðan hafa kjark og smekk til þess að koma hér upp og flytja þá ræðu sem hv. þm. Pálmi Jónsson flutti hér. Þegar hann var formaður fjvn. eða í ábyrgðarstöðu fyrir Sjálfstfl. á þessum árum, stóð hann hér þá upp og gagnrýndi það að aukafjárveitingar væru ekki lagðar fyrir Alþingi? Nei, aldrei. Hann kvaddi sér aldrei hljóðs um það. Gagnrýndi hann að fjáraukalagafrv. fyrir liðið ár væri ekki lagt fram á næsta ári? Nei. Hann gagnrýndi það aldrei, ekki ár eftir ár þegar Sjálfstfl. fór með þessa stjórn. Það er þess vegna mjög merkilegt að hv. þm. skuli hafa smekk í sér til þess að koma hér og gagnrýna með þeim hætti sem hann gerði þau vinnubrögð sem ég og ríkisstjórnin höfum sýnt í samskiptum við fjvn. og Alþingi, að leggja fyrir yfirstandandi þing okkar verk á þessu ári. Við sýnum þinginu og þjóðinni þá virðingu að leggja okkar verk fyrir þing og þjóð á því ári sem þau eru unnin. Við þurfum ekki að fara í felur með okkar verk eins og Sjálfstfl. Við þurfum ekki að skilja okkar aukafjárveitingar eftir í skúffum í fjmrn. fram á næsta áratug eins og Sjálfstfl. Við þurfum ekki að skilja okkar fjáraukalög eftir í skúffum í fjmrn. handa einhverjum fjmrh. árið 1997 til að leggja þær fram á sama hátt og Sjálfstfl. skildi allar sínar aukafjárveitingar, öll sín fjáraukalög, frá árunum 1983--1987 eftir í fjmrn. til þess að enginn fengi að sjá þær. Til þess að þingið fengi ekki að sjá þær og til þess að þjóðin fengi ekki að sjá þær. Það voru þessir menn sem voru að fela sín verk fyrir þinginu og þjóðinni sem hér koma svo upp og fara gagnrýnisorðum um að þetta skuli hér vera lagt fram.
Það er rétt hjá hv. þm. Pálma Jónssyni að ég óskaði eftir góðri samvinnu við fjvn. Ég sagði fjvn. snemma á þessu ári að ég mundi leggja fram fjáraukalög þegar þing kæmi saman. Það var í fyrsta skipti í sjö áratugi sem fjmrh. sýndi fjvn. þann samstarfsvilja að láta hana taka þátt í sínum verkum á því ári. En ég verð að játa það að mér sýnist eftir þá ræðu sem ég heyrði hér áðan að þeir menn sem vöruðu mig við og sögðu að stjórnarandstaðan mundi ekki rísa undir þessu trausti hafi kannski haft meira til síns máls en ég taldi. Ég lagði
þetta fjáraukalagafrv. fram í trausti þess að ríkur vilji væri hér í öllum flokkum til að taka upp þessi nýju vinnubrögð, til að fylgja þeim eftir. Að Sjálfstfl. væri búinn að sjá að sér, að hann væri búinn að átta sig á því að þau vinnubrögð sem hann viðhafði dygðu ekki, þau væru brot á lögum, þau væru jafnvel brot á stjórnarskránni, þegar hv. þm. fer að ýja að því hér áðan að það sem lagt er fram í þessu frv. sé brot á stjórnarskránni.
Hv. þm. Pálmi Jónsson fór í sinni ræðu hvað eftir annað með staðlausa stafi. Hann fullyrti að ég hefði greitt út úr ríkissjóði á meðan fjvn. fjallaði um þær tillögur um aukafjárveitingar sem í fjáraukalagafrv. er að finna, meðan frv. var til meðferðar. Þetta er rangt. Það hefur ekki verið greidd út úr ríkissjóði ein einasta greiðsla meðan þetta frv. hefur verið til meðferðar í þinginu nema varðandi einn lið. Það eru
útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir og ég óskaði sérstaklega eftir því að sú ákvörðun yrði borin upp í fjvn. og ég fékk skýrslu frá formanni fjvn. um að einhugur hefði verið í nefndinni um að samþykkja hana. Ég hef meira að segja verið gagnrýndur af hálfu forsvarsmanna útflutningsatvinnuveganna fyrir að ríkissjóður hefur ekki enn reitt fram endurgreiðslu á söluskatti upp á 390 millj. kr. sem lagt er til í þessu frv. Og ég hef ekki gert það vegna þess að Alþingi er ekki búið að samþykkja frv. Ég hef verið gagnrýndur af hálfu ýmissa aðila sem bíða eftir því að Alþingi staðfesti þessar greiðslur fyrir að hafa ekki greitt þær út úr ríkissjóði. Samt sem áður segir hv. þm. Pálmi Jónsson hér að það séu aðeins 200--300 millj. sem þingið þurfi að ákveða. Það er rangt. ( EgJ: Hvað sagði formaður fjvn.?) Formaður fjvn. flutti hér mjög góða ræðu þar sem hann rakti á ítarlegan og málefnalegan hátt þá eðlilegu erfiðleika sem því eru samfara að halda eftir 70 ára vanrækslu inn á þessa nýju braut. Og það sýnir best erfiðleikana að Sjálfstfl. þorði aldrei að ganga inn á þessa braut. Hann faldi sín verk. Hann faldi þau ár eftir ár í Stjórnarráðinu og sýndi þau aldrei þinginu. Ég lagði hér fram í fyrra öll fjáraukalagafrumvörp Sjálfstfl. sem Albert Guðmundsson hefði átt að leggja fram og sem Þorsteinn Pálsson hefði átt að leggja fram ef þessir menn hefðu haft kjark og dug til þess að sýna þjóðinni sín verk, sýna þinginu sín verk og leita eftir umboði og staðfestingu þingsins á þeim. Og Þorsteinn Pálsson hefði auðvitað líka sem forsrh. átt að beita sér fyrir því að í hans eigin ríkisstjórn árin 1987--1988 væri fjáraukalagafrv. fyrir ár hans sem fjmrh. lagt fyrir Alþingi. Það er nefnilega mikil lýðræðisleg breyting fólgin í því að þessi ríkisstjórn stígur þetta skref í fyrsta skipti í 70 ár. Og það er fullkomlega eðlilegt, eins og ég sagði á fundi með fjvn. þegar ég kom á fund nefndarinnar til að kynna nefndinni fyrstum allra það frv. sem hér var lagt fram og óskaði eftir því á fundinum að fjvn. tæki frv. til meðferðar og fyndi því það form sem henni fyndist eðlilegast. Nú kemur aftur á móti hv. þm. Pálmi Jónsson og fer að gera það að sérstöku gagnrýnisatriði að við í fjmrn. skyldum ekki ganga endanlega frá forminu áður en við lögðum frv. fram. Þegar ég lýsti því yfir á fundi fjvn. að það var þvert á móti minn vilji að eiga samvinnu við fjvn. í verki um það og lagði fram þá ósk á fundi með fjvn. að hún tæki virkan þátt í því að móta hið endanlega form frv. Nú er ég hins vegar gagnrýndur fyrir það af hv. þm. Pálma Jónssyni að hafa hvorki lagt frv. fram fullmótað né heldur hafa viljað samvinnu við fjvn. Þetta er rangt. Þvert á móti gekk ég á fund fjvn. til að óska eftir samvinnu við nefndina um málið og ég fagna því að nefndin hefur lagt á sig mikla vinnu til að finna frv. þann búning sem það birtist í hér í dag vegna þess að ég vildi ekki að það væri framkvæmdarvaldið eitt sem réði þessu formi. Ég vildi sýna þingræðinu þá virðingu og fjvn. þá virðingu að hún ætti líka stóran þátt í því að móta þetta fyrsta fordæmi um það hvernig fjáraukalagafrv. á yfirstandandi ári væri frágengið. Nú
er það hins vegar talið gagnrýnisatriði að hafa gefið þinginu og fjvn. þetta vald.
Hv. þm. Pálmi Jónsson og hv. þm. Sjálfstfl. verða að átta sig á því að það er lýðræðisleg afstaða þessarar hæstv. ríkisstjórnar að veita þinginu þátttöku í meðferð þessara mála og þar með ákvörðunarrétt vegna þess að með því að leggja fram fjáraukalagafrv. fyrir yfirstandandi ár er verið að skila aftur til þingsins valdi sem fyrrverandi ríkisstjórnir höfðu frá því tekið í 70 ár. Þess vegna er ósköp eðlilegt að sú ríkisstjórn sem það gerir veiti um leið þinginu og fjvn. fullan rétt og möguleika til að fara með málið. ( HBl: Er ráðherrann búinn að fá málið loksins? Það er nú tími til kominn.) Það er nú tími til kominn að hv. þm. mæti í salnum. ( HBl: ... tala við hann um skattamálin. Það er gott að hann er farinn að tala.) Hv. þm. Halldór Blöndal gekk hér í salinn og hefur ekki hugmynd um hvað hér hefur fram farið og ætti að bíða og átta sig á því hvað er verið að ræða áður en hann byrjar að grípa fram í. ( HBl: Ég heyrði það allt saman.) Það er þess vegna ljóst að í því frv. sem hér var lagt fram var til þess ætlast að fjvn. tæki virkan þátt í því að gefa frv. endanlegan búning. Það var til þess ætlast að fjvn. færi yfir þessa liði, hvern og einn fyrir sig og legði á þá mat. Þar með var verið að veita þinginu lögbundinn og stjórnarskrárbundinn rétt þess að gera það. Hins vegar er alveg ljóst að stór hluti af þeim upphæðum sem hér er um að ræða felst í
launagreiðslum, tryggingagreiðslum og öðrum útgreiðslum úr ríkissjóði sem ekki eru bundnar við einstök verk eða tilteknar aukafjárveitingar sem svo eru kallaðar. Stærstur hluti þeirra 8 milljarða, sem hv. þm. gerir hér mikið úr, er þannig til kominn. Hins vegar er það ljóst að ef teknar eru þær hreinu aukafjárveitingar sem hér er rætt um í hefðbundnum skilningi þá hefur stór hluti af þeim greiðslum beðið eftir því að þingið afgreiddi frv. eða þá að leitað hefur verið eftir samþykki fjvn. við að greiða stærstu upphæðirnar meðan frv. hefur verið til meðferðar.
Ég ætla ekki hér og nú að ræða við hv. þm. Pálma Jónsson um fullyrðingar hans um meðferð ríkisfjármála. Ég minni hins vegar á það vegna þess að hann hafði stór orð um það að allt það sem sjálfstæðismenn sögðu hér í fyrra hafi reynst rétt, að þm. Sjálfstfl. stóðu hér í stólnum í fyrra og sögðu að hallinn á ríkissjóði í ár mundi verða 10--15 milljarðar. ( PJ: Það er rangt.) Það er rangt já, hann verður ekki 10--15 milljarðar. ( Gripið fram í: Það er tóm vitleysa.) Já, það var tóm vitleysa, það er alveg rétt, hv. þm. En þetta var engu að síður það sem þm. Sjálfstfl. sögðu hér í salnum í fyrra og fullyrtu hver um annan þveran að svo mundi verða. ( Gripið fram í: Fimm til sex.) Það var að vísu rétt, þeir voru ekki allir með nákvæmlega sömu töluna, vegna þess að þeir gátu ekki nákvæmlega komið sér saman um það. En sá þeirra sem fremstur hefur verið í flokki í þessum umræðum nefndi þá tölu sem ég var að víkja hér að áðan. ( EgJ: Er ekki hægt að fá nafn á honum?) ( Forseti: Má ég biðja hv. þm. að leyfa
hæstv. ráðherra að tala.) Já, það skal ekki standa á því að fá nafn á honum. ( BÍG: Ég skal lesa þessar ræður allar upp hér á eftir til þess að sýna fram á að ráðherrann fer með rangt mál.) Já, það skaltu gera, hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson. Maðurinn sem ekki þorði að sýna Alþingi aukafjárveitingar sem hann stóð að í menntamálaráðherratíð sinni. Hvernig stóð á því, hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson, að þú þorðir aldrei að sýna Alþingi aukafjárveitingarnar sem þú og Albert Guðmundsson og Þorsteinn Pálsson stóðu að hér þegar þm. var stuðningsmaður þeirrar ríkisstjórnar og ráðherrarnir voru að greiða úr ýmsum hagsmunamálum fyrir hv. þm.? ( Gripið fram í: Hvað með Ragnar Arnalds?) Já, það er alveg rétt. ( Forseti: Má ég biðja um hljóð í salnum.) Þegar ég tók hér við þá er það athyglisvert að þau einu ár sem ekki þurfti að leggja fram fjáraukalagafrv. fyrir voru árin þegar Ragnar Arnalds var fjmrh. ( Gripið fram í: Það er rangt.) Það er einmitt athyglisvert að í þeirri skrá var búið að ganga frá málum á þeim árum þegar Ragnar Arnalds tók við og fór með ríkisfjármálin fyrst um sinn. Það er greinilegt að það er viðkvæmt mál fyrir þm. Sjálfstfl. að rifja upp þessa sögu. Það er greinilegt að það er viðkvæmt mál að hér sé lýst nákvæmlega hver er ferill Sjálfstfl. í meðferð ríkisfjármála.
Hitt vil ég að hér komi fram að ég mun ekki láta þann ræðuflutning, þá afstöðu, þá útúrsnúninga, þær rangfærslur og það pólitíska skak, sem hv. þm. Pálmi Jónsson kaus að viðhafa í fyrsta sinn í 70 ár þegar frsm. minni hl. um fjáraukalög á yfirstandandi ári gerir grein ... (Gripið fram í.) Nei, það er alveg rétt að þm. var ekki fæddur fyrir 70 árum, það er alveg rétt. Hann er hins vegar búinn að sitja lengi á þingi og hann hefði getað gert þetta áður. Og hann hefur setið lengi í fjvn. Hann hefði getað gert þetta áður. Hann hefur lengi stutt Sjálfstfl. þegar Sjálfstfl. hefur verið í ríkisstjórn þannig að hann hefði getað flutt þessa ræðu áður, ef hann hefði meint eitthvað með þessu, yfir Sjálfstfl. þegar hann var í ríkisstjórn. Það gerði hv. þm. auðvitað ekki vegna þess að hann þagði, ár eftir ár, þegar meðferð ríkisfjármála var með þeim hætti sem ég hef hér lýst. En þrátt fyrir að hv. þm. hefur kosið að skapa þetta fordæmi fyrir stjórnarandstöðuna þegar hann mælir fyrir áliti minni hl. mun ég ekki láta það hafa áhrif á mig. Ég mun engu að síður halda áfram þeirri nýbreytni, þeirri stefnubreytingu, að leggja fyrir fjvn., leggja fyrir Alþingi þær aukafjárveitingar, þær breytingar á ríkisfjármálum sem ég mun standa að meðan ég gegni þessu embætti. Ég mun ekki flýja í skjól Sjálfstfl., skjól þagnarinnar. Ég mun ekki flýja í fordæmi Sjálfstfl. að fela mín verk. Ég hika ekki við að leggja þau fyrir Alþingi á því ári sem þau eru unnin.
Hver er ástæðan fyrir því að hér var engin umræða í fyrra um fjáraukalögin fyrir 1983, 1984, 1985 og 1986? Hvernig stóð á því að ekki var farið lið fyrir lið ofan í aukafjárveitingar Sjálfstfl. með þessum hætti? Hvernig stóð á því að það var ekki farið lið fyrir lið í þær breytingar sem urðu frá fjárlagafrv. og yfir í ríkisreikning? Jú, ástæðan var sú að það var svo
langt um liðið að menn höfðu ekki lengur á því áhuga. Það þjónaði ekki lengur pólitískum tilgangi, menn voru búnir að gleyma. Og það var þessi gleymska sem Sjálfstfl. treysti á. Þess vegna lagði hann frv. ekki fram. Þess vegna lagði hann verk sín ekki fyrir Alþingi.
Hv. fjvn. hefur við erfiðar kringumstæður unnið mikið verk. Hún hefur á nokkrum vikum lokið að fjalla bæði um frv. til fjáraukalaga fyrir yfirstandandi ár og frv. til fjárlaga fyrir næsta ár. Mér er fullkomlega ljóst að mjög erfitt er að sinna því samtímis á fáeinum vikum að ljúka slíku verki.
Hv. þm. Pálmi Jónsson gagnrýndi mig fyrir að þetta frv. væri seint fram komið. Það kom þó fram á fyrstu vikum þessa þings þar sem frv. Sjálfstfl. voru ekki enn fram komin mörgum árum seinna þegar ég settist í embætti fjmrh. Vissulega hefði komið til greina að leggja frv. fram í fyrstu eða annarri viku þings í stað þess að gera það í þriðju vikunni eins og gert var. Það gerir ekki gæfumuninn. Það sem skiptir hins vegar höfuðmáli er að með afgreiðslu á fjáraukalögum nú, með starfi ríkisstjórnarinnar og starfi fjvn. er búið að koma í veg fyrir að Sjálfstfl. geti á ný falið sín verk ef og þegar honum verður treyst fyrir meðferð ríkisfjármála á nýjan leik. Ég vænti þess að hv. þm. Pálmi Jónsson hafi manndóm og kjark þá til þess að gagnrýna ráðherra Sjálfstfl. á því sama ári fyrir þeirra verk og knýja þá til þess að fylgja því lýðræðislega fordæmi sem hér hefur verið skapað.
Hv. þm. reyndi að gera mikið úr því að fjvn. hefði breytt í nokkru ýmsum tillögum. Sjálfsagt má hafa ýmsar skoðanir á þeim breytingum en eðli máls hlýtur þó að vera að þegar fjáraukalagafrv. er lagt fyrir þingið muni fjvn. fjalla um það og gera á því einhverjar breytingar. Þær breytingar snerta þó ekki meginatriði þessa frv. Allar meginlínur frv. eru staðfestar af meiri hluta fjvn. Sá grundvöllur sem lagður var af ríkisstjórninni, í samvinnu við fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna í fjvn. áður en frv. var lagt fram, er staðfestur með þeim tillögum sem hér eru fluttar.
Virðulegi forseti. Ég hefði kosið í þessari umræðu að geta farið öðrum orðum um ræður þær sem hér hafa verið fluttar, sérstaklega framsöguræðu minni hl., hv. þm. Pálma Jónssonar. Sú ræða gekk hins vegar svo fram af mér að ég get ekki orða bundist við þetta tækifæri. Ég ætla þó ekki að nota tíma minn hér til þess að ræða það sem hann sagði um stjórn ríkisfjármála, það mun ég ræða á öðrum vettvangi. Við munum fara yfir þá þróun og þann árangur sem ríkisstjórnin hefur náð í þeim efnum. Hitt var hins vegar nauðsynlegt í ljósi ummæla hv. þm., þeirrar aðferðar sem hann kaus, að setja það frv. sem við erum að fjalla hér um nú, í sögulegt ljós. Í sögulegt ljós þar sem stjórn Sjálfstfl. á ríkisfjármálunum er notuð til samanburðar. Þar sem staðreyndin er sú sem ég hef rifjað hér upp, að Sjálfstfl. skaut sér undan því að leggja sín verk fyrir þing og þjóð. Menn geta svo velt því fyrir sér hverjir eru meiri lýðræðissinnar, hverjir sýna þinginu meiri virðingu, þeir sem fela sín
verk árum saman fyrir þinginu eða þeir sem leggja þau fram sama árið og þau eru unnin.