Alexander Stefánsson:
Virðulegi forseti. Þessar umræður sem hér hafa farið fram hafa um marga hluti verið merkilegar og um leið skrautlegar. Ég ætla ekki að flytja hér langt mál vegna þess að í ítarlegu nál. og framsögu formanns fjvn. koma öll efnisatriði fram í sambandi við þessi fjáraukalög sem eru að sjálfsögðu meginatriðið í þessu máli. Ég vil þó segja í upphafi, og endurtaka raunar það sem ég lét koma fram við 1. umr. þessa máls á haustinu þegar þetta frv. var lagt fram, að ég taldi og tel að hér hafi verið brotið blað í meðferð ríkisfjármála og er þess vegna fagnaðarefni okkar allra sem höfum á undanförnum árum, bæði í gegnum fjvn. og í afskiptum okkar af fjárlögum, lagt áherslu á að hér yrði að verða á breyting því að svo mikið hefur komið fram í meðferð fjármála og fjárlaga að hér þurfti að gera breytingu. Um það eru allir sammála. Þess vegna fagna ég því frumkvæði sem hæstv. fjmrh. viðhafði, að ganga til móts við þessar kröfur með því að undirbúa og leggja fram frv. til fjáraukalaga hér á hv. Alþingi samhliða eða nær samhliða fjárlagafrv. næsta árs. Þetta er nýjung og þess vegna er ástæða til að undirstrika gildi þessa og fagna því sérstaklega að þetta var gert.
Ég er í engum vafa um að meðferð þessara mála núna að því er varðar fjárlagafrv. fyrir árið 1990 tekur mið af þessu frv. og jafnframt ríkisreikningi fyrir sl. ár sem liggur jafnhliða til meðferðar í nefndinni. Þetta hefur gert það að verkum, eins og kom raunar fram við 2. umr. fjárlaga fyrir árið 1990, að nefndin lagði miklu, miklu meira að sér við að bera saman fjáraukalög, ríkisreikning og fjárlagafrv. og hafði að markmiði að gera fjárlagafrv., sem senn kemur til lokaafgreiðslu, miklu raunhæfara og markvissara en annars hefði verið. Auðvitað er ég ekki með þessum orðum að fullyrða að allt sé fært til betri vegar í væntanlegum fjárlögum fyrir næsta
ár. En eitt er öruggt og víst. Hefðu fjáraukalög fyrir yfirstandandi ár ekki verið komin til sögunnar hefði sjálfsagt verið öðruvísi á því tekið. Þetta er m.a. skýringin á því að fjvn. lagði til hækkanir við 2. umr. fjárlaga fyrir árið 1990, sem margir gagnrýndu en reyndust við nánari skoðun sömu aðila vera raunhæft spor í rétta átt. Og það hafa engin haldgóð mótmæli komið fram við eitt einasta atriði sem hrekur þessa skoðun.
Ég vil einnig segja eins og ég meina, út af því sem fram hefur komið hér í umræðunni, að ég tel að allir, hvar í flokki sem þeir standa við fjárlagagerð, hafi sýnt raunsæi í sambandi við meðferð þessara mála og tekið fullan þátt í að færa hér hluti í betra horf, algjörlega burt séð frá fortíð manna, hvort þeir eru syndugir eða syndlausir í sambandi við þessi mál, það er aukaatriði. Samstaðan er það sem máli skiptir. Og ég vil um leið taka fram af gefnu tilefni að bæði hæstv. fjmrh. og starfsmenn í Hagsýslu og fjmrn. og raunar öllum ráðuneytum hafa tekið virkan þátt í þessari yfirferð. Og af því það hefur ekki komið fram hér áður svo ég hafi heyrt, var vinnu fjvn. við þetta
verk þannig háttað að allir sem í hlut áttu voru kallaðir til yfirheyrslu. Við kölluðum á okkar fundi forráðamenn í hverju einasta ráðuneyti, í öllum helstu ríkisstofnunum, til að bera saman ríkisreikning fyrir 1988, fjáraukalög fyrir árið 1989 og fjárlögin 1990. Þannig er það algjörlega úr lausu lofti gripið að nokkurt ráðuneyti eða opinberar stofnanir hafi farið varhluta af því að átta sig á því hvaða vinnu var hér verið að vinna og hver niðurstaðan hefur orðið. Ég tel ástæðu til þess að láta þetta koma fram vegna þess að þegar ég kom hér í húsið í dag sagði einn merkur þingmaður við mig: ,,Það lítur helst úr fyrir það að fjvn. Alþingis í dag haldi að hún ein stjórni Íslandi og fjármálum á Íslandi.`` Svo mikið var þessum ágæta manni niðri fyrir. En þetta sýnir kannski í hnotskurn hversu andvaralausir hv. þm., margir hverjir, virðast vera um að það þurfi að koma fjármálum ríkisins í réttara form og taka þau réttum tökum eins og hér er verið að gera og í fullu samræmi við stjórnarskrá íslenska ríkisins. Ég tel ástæðu til þess að draga þetta hér fram til þess að hv. þingmenn sem e.t.v. heyra mál mitt átti sig á því að hér er miklu meiri framför og miklu meira og þýðingarmeira mál um að ræða en margir hafa áttað sig á. Við getum aldrei náð tökum á því að meðhöndla fjármál ríkisins á réttan hátt nema slík vinnubrögð séu innleidd sem hér er verið að gera tilraun til.
Ég vil einnig segja það hér að auðvitað útilokar þetta fjáraukalagafrv. sem við erum að fjalla um ekki það sem liggur augljóslega fyrir, að þegar árið 1989 verður gert upp bæði hjá ráðuneytum og ríkisstofnunum fer auðvitað ekki hjá því að sú staða geti komið upp að leggja þurfi fram ný fjáraukalög, lokafjáraukalög fyrir árið 1989. Og mér dettur ekki í hug að halda að desembermánuður til loka muni ekki leiða af sér einhverjar aukagreiðslur eða mismun frá gildandi fjárlögum sem verður auðvitað að fá staðfestingu Alþingis á þegar þær liggja fyrir. Enginn þarf að halda að þetta frv. sem hér liggur fyrir útiloki slíka möguleika, síður en svo. En aðalatriðið er að farið sé rétt að málum og ekki sé dregið að láta þau aukaútgjöld sem annaðhvort þarf að gera eða koma í ljós við uppgjör opinberra stofnana koma fram á réttan hátt í nýjum fjáraukalögum. Ég held að ástæða sé til að taka þetta fram.
Ég ætla ekki, virðulegur forseti, að tefja hér tímann á því að rekja hinar ýmsu till. sem hér liggja fyrir, en ég vil undirstrika að þessar brtt. nefndarinnar, bæði til hækkunar og lækkunar, ganga einvörðungu út á það að við erum að taka afstöðu til raunveruleikans miðað við daginn í dag, eða um leið og frv. var afgreitt frá nefndinni. Það er aðalatriði. Og þótt einhverjar tölur hér í kunni að hafa annan bakgrunn en við fengum upplýsingar um þá er að sjálfsögðu hægt að lagfæra það. Ekki ætti að þurfa að ræða um það, svo sjálfsagt er það. En þær tölur og þær breytingar, sem í þessu fjáraukafrv. eru lagðar fram, eru byggðar á þeim upplýsingum sem nefndin hafði, bæði frá ráðuneytum og stofnunum.
Ég hefði gjarnan viljað ræða nokkur atriði sem hér
komu fram. Eitt get ég ekki látið fram hjá mér fara og það er í sambandi við verkaskiptalögin. Ég tel að ákaflega mikilvægt sé núna á þessari stundu þegar við erum að afgreiða fjáraukalögin og fjárlögin fyrir árið 1990 að málunum sé stillt saman þannig að ekki sé efnt til ófriðar við sveitarfélögin um þessi mál. Svo mikið var búið að leggja í þessar verkaskiptabreytingar milli ríkis og sveitarfélaga að við megum ekki stofna til ófriðar sem komi í veg fyrir að þessi mál geti þróast á eðlilegan máta. Auðvitað eru alltaf agnúar í upphafi þegar verið er að gera svona mikla kerfisbreytingu. En ég vona að aðilar leggi sig fram um að ná samkomulagi um þessi mál þannig að breytingin þróist fram á réttan hátt. Það er ábyggilega öllum aðilum til sóma og um leið verður það ef vel tekst til allri þjóðinni einnig til góðs.
Ég vil svo að lokum segja, virðulegur forseti, að aðalatriði þessa máls er að hér er verið að gera breytingu, hér er verið að leggja til breytingu á meðferð ríkisfjármála sem á að skapa ný vinnubrögð. Það er aðalatriðið. Við erum hér að stefna inn á nýja braut, að reynt sé að draga úr því að meðferð fjármála sé í lausu lofti eins og oft hefur verið og upplýsingar þar um komi ekki fram á réttum tíma. Ég vil leggja sérstaka áherslu á að hv. alþm. kynni sér það lagafrv. sem nú er að koma fram frá allri fjvn. um meðferð ríkisfjármála. Ég er viss um að ef samstaða tekst um að gefa því frv. lagagildi þá stöndum við hér á allt öðrum grunni en nokkurn tímann hefur verið í meðferð ríkisfjármála á Íslandi. Og það væri árangur sem bæði nútíð og framtíð gætu hælt sér af.