Framhald á EFTA-EB-umræðum
Þriðjudaginn 19. desember 1989


     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Ég harma mjög þá niðurstöðu sem hér er tilkynnt. Þó að ekki hafi verið gert ráð fyrir af hálfu hæstv. ríkisstjórnar að ljúka umræðunni um Evrópubandalagið með sérstakri ályktun hygg ég að flestum sé ljóst hversu slæmt útlit það er fyrir Ísland og utanrrh. Íslands að hafa þurft að mæta á þessum sameiginlega ráðherrafundi án þess að hafa lokið umræðum hér á Alþingi Íslendinga. Önnur þjóðþing hafa um þetta fjallað og lokið umræðum og formaður EFTA-ráðsins er eini ráðherrann á þessari samkomu sem kom til þessa fundar í dag án þess að umræðu um málið væri lokið í hans þjóðþingi. Auðvitað liggur í augum uppi og sjá allir hversu sneypulegt þetta er og ósk mín var fyrst og fremst fram borin í þeim tilgangi að rétta hér nokkuð við hlut Íslands, ekki vegna þess að ég bæri sérstaklega fyrir brjósti stöðu hæstv. utanrrh., pólitískt séð, heldur þykir mér eðlilegt að Alþingi hafi í huga í þessu sambandi virðingu Íslands á erlendum vettvangi og þess vegna var þessi ósk sett fram. Ég harma það að forseti treystir sér ekki til þess að verða við henni, en ég ítreka enn þá ósk mína að þegar að lokinni þeirri umræðu sem nú stendur og eigi síðar geti þessari umræðu verið fram haldið og lokið.