Framhald á EFTA-EB-umræðum
Þriðjudaginn 19. desember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Þegar við hv. 1. þm. Suðurl. áttum um þetta orðastað síðast var um það samið að umræðunni um EFTA og Efnahagsbandalagið yrði fram haldið þegar lokið væri 2. umr. fjáraukalaga og stuttir deildafundir hefðu farið fram. Það er alveg í hendi hv. 1. þm. Suðurl. og samþingmanna hans að stjórna því hvenær við komumst til þess að halda áfram umræðu um EFTA og Efnahagsbandalagið. Forseti og hv. 1. þm. Suðurl. eiga það sameiginlegt að vilja veg og virðingu íslensku þjóðarinnar sem allra mesta á erlendum vettvangi eins og hv. þm. minntist á. Ég vil því skora á hv. þm. að veita forseta stuðning í því að umræðu um fjáraukalög geti lokið á sómasamlegum vinnutíma þannig að hægt sé að ganga til áframhalds á umræðu um EFTA og Efnahagsbandalagið.