Þorsteinn Pálsson:
Frú forseti. Ég ætla fyrst að víkja hér að ummælum hv. 3. þm. Vesturl. þar sem hann gerði athugasemdir við ummæli mín í fréttatímum útvarps og sjónvarps nú í kvöld.
Ég vil byrja á því að minna hv. þm. á að tilefni hinnar mjög svo ósmekklegu árásar hæstv. forseta sameinaðs Alþingis á minni hlutann eða a.m.k. Sjálfstfl. hér í þinginu var það sem hæstv. forseti sagði um samkomulag sem forsetinn gerði skóna að Sjálfstfl. hefði rofið. Svo kemur hv. 3. þm. Vesturl. og gerir úr því eitthvert stórmál að ekki hafi verið nákvæmlega tekið til orða af minni hálfu um samkomulag það sem menn töldu að hefði orðið hér í gærkvöldi.
Ég vil líka minna hv. 3. þm. Vesturl. á að í málgagni hæstv. forsrh. segir með stríðsfyrirsögn og stórri mynd: ,,Samið um afgreiðslu brýnna mála á Alþingi.`` Og með leyfi forseta segir hér: ,,Á fundi forseta Alþingis og formanna þingflokkanna í gærkvöldi náðist samkomulag um afgreiðslu brýnustu mála ríkisstjórnarinnar fyrir jólaleyfi þingmanna. Fyrir þennan fund ríkti mikil óvissa um viðbrögð stjórnarandstöðunnar og hvort og hvenær tækist að afgreiða ýmis stórmál ríkisstjórnarinnar, svo sem fjárlagafrv. og helstu tekjuöflunarfrumvörp þess sem að öllu jöfnu verða að hljóta afgreiðslu fyrir áramót. Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, var því öllu glaðbeittari þegar hún kom af þessum fundi heldur en hún var þegar hún fór inn á hann og sagði hún í samtali við Tímann í gærkvöldi að allt væri í góðu gengi og góðu samkomulagi.``
Ég vil líka minna hv. þm. á að í frétt í Morgunblaðinu í dag segir hæstv. heilbrrh. Guðmundur Bjarnason að líklegra sé að fallið verði frá þeim hugmyndum að sinni að Reykjavíkurborg greiddi hluta af rekstri Borgarspítalans, ,,... en frumvarpsdrög þess efnis voru rædd í þingflokkum stjórnarflokkanna í gær`` segir í Morgunblaðinu. Og síðan vitnar Morgunblaðið í
ummæli hæstv. heilbrrh. Þar segir svo, með leyfi forseta: ,,Ég lít svo á að verði þetta dregið til baka og afgreiðslu frv. frestað sé málið allt í sama farvegi og þegar það var lagt fram. En á meðan gefst mánuður til að ræða þessi mál eins og sveitarfélögin hafa farið fram á.``
Það er vissulega rétt að fullkomlega og endanlega hafði ekki verið gengið frá þessu samkomulagi. En svo sterklega höfðu menn það á tilfinningunni að samkomulag væri orðið að hæstv. forseti Sþ. stóð í þeirri meiningu að samkomulag væri orðið. Málgagn hæstv. forsrh. lýsir því yfir með stríðsfyrirsagnaletri að samkomulag hafi orðið og hæstv. forseti Nd. lauk hér fundi sl. nótt með sérstöku þakklæti til þingmanna og þar á meðal til þingmanna stjórnarandstöðunnar um góða samvinnu við afgreiðslu mála. Það er þess vegna í meira lagi undarlegt þegar formaður þingflokks Alþfl. kemur hér upp og gerir athugasemdir um hvernig menn almennt litu á stöðu mála eftir þennan
fund þingflokksformanna og ráðherra í gærkvöldi. Það hefur hins vegar legið hér fyrir að Sjálfstfl. sættir sig ekki við að hæstv. ríkisstjórn fari hér fram með því ofbeldi að brjóta lög sem fjalla um samkomulag ríkisvalds og sveitarfélaga um verkaskiptingu þar á milli. Það er auðvitað ekkert sérstakt kappsmál stjórnarandstöðunnar að frumvörp ríkisstjórnarinnar nái fram að ganga fyrir jólaleyfi þingmanna. En það er venja og hefur verið lengi að ríkisstjórn, hver sem hún er, leitar eftir samkomulagi. Þegar komið er í tímaþröng fyrir jólaleyfi, þá leitar hæstv. ríkisstjórn eftir samkomulagi um að afgreiða megi tiltekin mál. Oft þarf þá að semja um að þingmál gangi fram með óvenjulegum hætti, að vikið sé frá venjubundnum vinnubrögðum þingsins við meðferð mála á þann veg að jafnvel hin mikilvægustu mál fá óvandaða og skamma meðferð í nefndum þingsins og umræður eru miklu takmarkaðri en venjulega. Það var ekki ósk Sjálfstfl. að þessum vinnubrögðum yrði beitt fyrir þessi jól. Það var auðvitað eins og venja er til ósk hæstv. ríkisstjórnar að þessi háttur yrði hafður á. Sjálfstfl. var fyrir sitt leyti reiðubúinn til þess að greiða fyrir framgangi tiltekinna mála með þessum hætti og ég hygg það hafi komið skýrt fram í störfum þingsins hér undanfarna daga að svo hefur verið. Mál voru afgreidd hér í gær og gærkvöldi með óvenjulegum hraða. Og miklu fremur mætti ásaka stjórnarandstöðuna fyrir að hafa hleypt þessum mikilvægu málum illa undirbúnum, óvönduðum frumvörpum í gegn í of miklum flýti. Það mætti ásaka stjórnarandstöðuna fyrir það miklu fremur en hitt að hún hafi verið að tefja hér fyrir framgangi.
En það hlýtur að liggja í augum uppi að þegar farið er fram á við stjórnarandstöðuna að hún víki í svo veigamiklum atriðum frá venjubundnum vinnubrögðum hér í þinginu um vandaða málsmeðferð þingmála þá hlýtur flokkur eins og Sjálfstfl. að gera þá kröfu að hæstv. ríkisstjórn sé ekki á sama tíma að fara fram með ofbeldi gegn sveitarfélögunum og brjóta samkomulag sem ríkisvaldið og sveitarfélögin hafa gert sín á milli og Alþingi hefur lögfest í miklu og góðu samkomlagi allra flokka hér á þinginu. Það er ámælisvert af hæstv. forseta Sþ. að vera með árásir á stjórnarandstöðuna í fjölmiðlum fyrir að tefja fyrir framgangi þingmála vegna þess að Sjálfstfl. heldur fram þeirri
skýlausu kröfu að hæstv. ríkisstjórn sé ekki að fara fram með slíku ofbeldi að brjóta hér samkomulag sem gert hefur verið með lögum frá Alþingi. Og það er furðulegt að forseti Sþ. skuli taka þátt í slíkum leik og dregur auðvitað úr því trausti sem nauðsynlegt er að þingmenn beri til forseta. Hæstv. forseti veit ekkert hvaða þingmenn hafa kosið hann í leynilegri kosningu og getur ekki verið að gera upp á milli þingmanna eftir því hvort forseti heldur að þeir hafi greitt sér atkvæði eða ekki. Það er í meira lagi ósmekklegt og ósæmilegt.
Það er furðulegt að hæstv. forseti skuli hafa brugðist við eðlilegri og hógværri ósk um að biðjast afsökunar á þessum ummælum, ekki síst í ljósi þess
að þeirri ósk fylgdi yfirlýsing um að yrði það gert mundu menn líta fram hjá ummælunum og ekki láta þau hafa frekari áhrif á þingstörfin en orðið er. Þess vegna vil ég í fullri einlægni endurtaka þessa ósk og beina þeim tilmælum til hæstv. forseta að leggja sitt af mörkum eftir þetta slys til þess að greiða fyrir þingstörfunum með því að biðjast afsökunar á þessum ummælum.