Fréttaviðtal við forseta sameinaðs þings
Þriðjudaginn 19. desember 1989


     Ólafur G. Einarsson:
    Hæstv. forseti. Það má segja að forseti ætli ekki að gera það endasleppt. Nú hefur forseti tekið upp þann sið að greina frá orðum manna og athöfnum á fundum sem eiga sér stað í forsetaherberginu og hafði mín orð þar sem skýringu á því hvers vegna hún taldi að baráttan hér í þingsölum væri háð við borgarstjórann í Reykjavík. Jú, það var, að ég hafði lýst því yfir á fundi í dag, að ég mundi ganga við hjá borgarstjóra til þess að hlýða á hvað hann hefði um þetta mál að segja, varðandi Borgarspítalann. Og hvers vegna ætli ég hafi nú sagt þetta á þessum fundi? Það gerði ég vegna þess að hæstv. forsrh. upplýsti á fundinum að hann hefði skrifað borgarstjóra bréf varðandi þetta Borgarspítalamál. Hann greindi okkur ekki í smáatriðum frá efni bréfsins. Þetta var tilefni þess að ég taldi ástæðu til að tala við borgarstjóra. Tilefnið var líka það að hæstv. forsrh. sagði okkur að hann hefði gefið borgarstjóra frest til fimmtudags að svara. Ég sagði á þessum fundi að mér þætti þetta of langur frestur. Ef borgarstjóri mundi nýta þennan frest og bíða ætti eftir svari hans yrði ekkert afgreitt hér. En við gætum vel tekið okkar afstöðu án þess að bíða eftir svari borgarstjóra ef það bærist ekki fyrr en á fimmtudag. Svona einfalt var það nú.
    En nú brá svo við að borgarstjóri vildi af einhverjum ástæðum ekki láta mig sjá þetta bréf sem hæstv. forsrh. hafði skrifað honum. Og nú sakna ég hæstv. forsrh., að hann skuli ekki vera hérna. Ég brenn í skinninu að fá að sjá þetta bréf. ( Gripið fram í: Við verðum að fá forsrh. hingað.) Já, en ég er orðinn afar forvitinn að fá að sjá bréfið. Það hlýtur að hafa verið eitthvað meira en lítið merkilegt í því fyrst ég fékk ekki að sjá það hjá borgarstjóra. Þannig að ég get ekki sagt meira um það.
    Ég hafði líka aðra ástæðu til að tala við borgarstjóra. Hún var sú að þarna taldi ég að verið væri að ráðast með ómaklegum hætti að Reykjavíkurborg. Þótt
ég sé nú ekki þingmaður Reykjavíkurkjördæmis fannst mér það ómaksins vert að ræða við borgarstjóra. Ég heyri að hæstv. forseti hefur ekkert við hann að tala þó að forsetinn sé þingmaður Reykjavíkur. Sem sagt, ég er afar forvitinn að fá að sjá eða heyra þetta bréf sem hæstv. forsrh. skrifaði borgarstjóra. Það má vel vera að það hafi áhrif á okkar afstöðu hér í þinginu til þessa máls, það má vel vera.
    Nú er hæstv. forseti farinn að upplýsa hér um orð manna sem falla á þessum fundum forseta og þingflokksformanna og hæstv. forsrh. Vel má vera að taka eigi upp þann sið hér að greina frá því í þinginu hvað mönnum fer þarna á milli. Ég gæti vel gert það. Ég gæti vel sagt frá því hvað hv. kollegar mínir, formenn þingflokka Framsfl. og Alþfl., hafa sagt á þessum fundum okkar. Ég gæti sagt það án þess að meiða þá hið minnsta. Það mundi einmitt leiða í ljós hverstu stutt við áttum í land með að ná samkomulagi um þingstörfin. Það gæti kannski líka verið býsna fróðlegt fyrir þingheim ef ég greindi nú frá orðum

hæstv. forseta Sþ. á þessum fundum. En ég ætla að stilla mig um það og láta öðrum það eftir. Það væri t.d. býsna fróðlegt ef hv. þm. Hjörleifur Guttormsson segði frá því hér í ræðustól hvað þeim fór á milli flokkssystkinunum á fundinum í dag. Það mundi út af fyrir sig alveg nægja ef hann segði hvað hæstv. forseti Sþ. sagði við hann. Það mundi alveg nægja. En sem sagt, ég ætla ekki að fara inn á þá braut og hafa hér hvorki efnislega né orðrétt eftir mönnum það sem þeir segja á þessum fundum.
    Hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson nefndi að við sjálfstæðismenn hefðum talið nauðsynlegt að festa það samkomulag, sem kynni að verða gert, á blað. Hann greindi þar alveg réttilega frá. Hann greindi alveg réttilega frá því að það var ekki vegna þess að við vantreystum formönnum þingflokka Framsfl. eða Alþfl., alls ekki. Það var einmitt vegna þess að við vantreystum samkomulagi sem kann að verða gert á þessum fundum okkar þegar fjmrh. er þar hvergi nærri. Það vill svo einkennilega til að enginn hefur óskað eftir nærveru hans á þessum fundum og kann nú einhver að geta gefið skýringu á því.
    Ég vil svo aðeins segja í lokin að ég tel það í sjálfu sér auðvelt að semja um framgang mála hér í þinginu fyrir helgi. Það er auðvelt. En til þess þurfa menn að hafa umboð. Og ég teldi langbest að hæstv. fjmrh. kæmi þar hvergi nærri. Það væri auðvelt að gera þetta með samningum milli forseta deildanna og þingflokksformanna stjórnarandstöðunnar. Það væri jafnauðvelt að gera það milli þingflokksformanna stjórnarandstöðunnar og formanna þingflokka Framsfl. og Alþfl. Það mundi alveg nægja. Og þægilegast væri þetta ef ekki væru fleiri á þessum fundum. Ég mundi telja langheppilegast að leggja þá niður í þeirri mynd sem við höfum búið við að undanförnu.