Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Ég hef ekki eins langa reynslu á þingi og sumir sem hafa verið hér í 30 ár en þetta er einungis mitt þriðja þing. Þrátt fyrir það undraðist ég mjög það sem forseti Sþ. sagði í fréttum í útvarpinu í kvöld. Ég hef litið svo á að forseti ætti að vera sáttasemjari frekar en að draga taum eins deiluaðila þegar verið er að deila. Því tek ég undir það sem hér hefur verið sagt að þetta hlýtur að hafa verið mjög misráðið af forseta að hafa slík ummæli í frammi og skora á hann að biðjast afsökunar á því sem hann sagði.
En varðandi það samkomulag og það sem sagt var um Sjálfstfl. í þessu sama viðtali, þá sagði hæstv. forseti að það væri fyrst og fremst Sjálfstfl. sem drægi lappirnar. Ég vil taka fram að það samkomulag sem við töldum okkur vera búin að ná ... ( Forseti: Má ég leiðrétta hv. þm. Forseti notar ekki orðafar á borð við að draga lappirnar í fjölmiðlum.) ( MÁM: Hvað sagði forsetinn?) Ég bið forseta afsökunar á því að hafa viðhaft þetta orðalag. Þetta voru mín eigin orð sem ég hafði þar vegna þess að ég gat ekki munað nákvæmlega hvað forseti sagði. Því biðst ég afsökunar á að hafa notað svona óvirðulegt orðalag, en ég vil taka fram að það samkomulag sem við töldum okkur vera búin að gera í gær var sameiginlegt. Öll stjórnarandstaðan stóð saman að þessu og við töldum okkur vera búin að ná þar samkomulagi sem greinilega hefur komið fram að var ekki rétt.
Við teljum okkur ekki geta staðið að því að rjúfa það samkomulag sem varð milli ríkis og sveitarfélaga varðandi verkaskiptinguna. Við teljum ekki hægt að brjóta það samkomulag. Ég vil taka fram að eins og frv. um breytta verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga var lagt fram á Alþingi árið 1987 þá var tannlæknakostnaður inni í þeim fylgiskjölum sem við vorum með þá. Það getur vel verið að hann hafi fallið út síðar en ég tel ekki rétt að taka einn þátt verkaskiptalaganna upp eins og nú er verið að gera. Ef á að taka þau upp verður að gera það í heild og gera það í samkomulagi við sveitarstjórnir. Og málið snýst ekki eingöngu um Reykjavík. Þetta snýst um öll sveitarfélögin á landinu þannig að mér finnst einkennilegt að blanda eingöngu Reykjavík og borgarstjóranum í Reykjavík inn í þetta mál. Það er eins og hann eigi að fara að ráða hér þingstörfum og þá fyrst og fremst vegna deilna milli borgarstjórans í Reykjavík og hæstv. fjmrh. sem er ekki heldur þingmaður.
Mér þykir líka leitt að ummæli sem viðhöfð eru á fundum forseta og þingflokksformanna séu hér orðin opinber. Ég hef litið svo á að það sem þar fer fram væri trúnaðarmál. Ekki svo að skilja að það þurfi endilega að vera trúnaðarmál. Hins vegar höfum við litið svo á að við getum talað þar ýmislegt sem ekki komi í fjölmiðla strax á eftir. Mér þykir mjög slæmt að menn skuli vera farnir að hafa eftir það sem þar er sagt. Hins vegar finnst mér á engan hátt óeðlilegt þó formaður þingflokks sjálfstæðismanna hafi farið að
tala við borgarstjórann. Ég hef meira að segja einu sinni farið og talað við borgarstjórann án þess að það hafi verið gert að umtalsefni.