Fréttaviðtal við forseta sameinaðs þings
Þriðjudaginn 19. desember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti hyggst ljúka þeim umræðum um þingsköp sem óskað hefur verið eftir en að sjálfsögðu er forseti fús til að gefa stutt hlé ef þingflokksformenn vilja koma saman. Enn eru fimm á mælendaskrá og næstur er hv. 5. þm. Vesturl. --- Nú vil ég spyrja hv. 1. þm. Reykn. hvort ræða hans mætti bíða þangað til að loknum þeim fundi sem hv. 1. þm. Norðurl. v. hefur óskað eftir. ( MÁM: Það væri mjög bagalegt.) Þá mun hv. 1. þm. Reykn. að sjálfsögðu koma hér á mælendaskrá.