Fréttaviðtal við forseta sameinaðs þings
Þriðjudaginn 19. desember 1989


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég hef í raun hætt við að segja það sem ég hafði hugsað mér að segja hér úr þessum ræðustól vegna þess að ég tel að þessi umræða sé komin á það lágt plan að henni beri að ljúka. Því hvet ég hæstv. forseta til þess að taka nú því tilboði sem stjórnarandstaðan hefur gert og taka í útrétta sáttarhönd stjórnarandstöðunnar og biðjast velvirðingar á þeim ummælum sem hæstv. forseti viðhafði í útvarpi í kvöld. Einnig vil ég taka undir þá tillögu sem hv. þm. Páll Pétursson kom með hér að forseti fresti nú þegar fundi og kalli saman þingflokksformenn til þess að reyna til þrautar að ná samkomulagi.