Matthías Á. Mathiesen:
Virðulegi forseti. Það hefur verið gerð tillaga um það að fresta þessum fundi, en mér sýnist og heyrist að það sem sagt er úr forsetastól sé ævinlega í þá veru að lengja fundinn.
Nú er það upplýst hér og undir því sitjum við öll að tveir þm. hafi hótað því í dag að halda hér uppi málþófi. ( Forseti: Einmitt.) ( EKJ: Þessari umræðu, sagði forseti.) Og þessari umræðu. Og forseti undirstrikar það sem ég er hér að segja: einmitt. Mér finnst eðlilegt að ég snúi mér til forseta, standi hér og bíði þangað til forseti hefur upplýst hvaða tveir þm. það eru sem hótuðu þessu svo að við, a.m.k. ég sem ekki kannast við að hafa hótað hér einu eða öðru, liggi ekki undir þessu. ( EKJ: Forseta ber að víkja sæti meðan hún tekur þátt í efnislegri umræðu og varaforsetar taki forsetastól.) Forseti var að tilkynna það sem honum hafði borist í dag. ( EKJ: Hann er búinn að taka þátt í umræðunni í allt kvöld, efnislega.) ( Gripið fram í: Úr forsetastóli.) Mér sýnist að forseti sé ekki reiðubúinn til þess að upplýsa þetta. Forseti kom hér síðar í umræðunni og vildi þá draga í land með það sem forseti hafði sagt hér í kvöld, hvernig hann túlkaði stöðu sína og það umboð sem forsetinn hefði. Það fór einu sinni fram rannsókn á ummælum þingmanna í Ed. og segulbandið var leitt fram sem vitni. Við skulum vonast til þess að við getum leitt segulbandið hér ofan af lofti fram sem vitni í því hvað forseti sagði í hið fyrra skipti. Við skulum bara ekki láta okkur detta í hug að það verði farið að þurrka út af segulbandinu. ( Forseti: Má ég spyrja þingmanninn, til þess að allur vafi sé úr sögunni: Hverra ummæli voru það í Ed. sem þurfti að leita til segulbands um? Ég vil að það sé ljóst að það voru ekki ummæli núv. forseta Sþ.) Nei, það var fyrir löngu síðan. ( Forseti: Það er gott að það kemur fram.) Það er frá tíð föður ... (Gripið fram í.) Þegar segulbandið var leitt sem vitni í Ed. --- það er langt síðan, en það var gert einmitt í slíku
tilfelli. Og mér finnst eðlilegt að það verði endurtekið. Ég er ansi hræddur um það að ef við hugsum okkur að reyna að ná samstöðu til þess að vinna hér að þessum málum sem við erum að vinna að og fá samkomulag eigum við að ljúka þessari utandagskrárumræðu. Og þá fyrst þegar henni er lokið eiga menn að setjast niður. Það er búið að biðja hæstv. forsrh. um að lesa það bréf sem hann ritaði borgarstjóranum í Reykjavík. Ég trúi því bara ekki að hæstv. forsrh. fái ekki orðið. Hér hafa fleiri en ég boðist til þess að forsrh. fengi að tala og hann hefði tækifæri til þess að lesa upp þetta bréf, en það hefur ekki orðið.
Mig langaði líka í þessari þingskapaumræðu að vekja athygli á sjónvarpinu í kvöld. Mig langar til þess að vekja athygli á fréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld um það mál sem við erum að tala um hér og nú, þ.e. fjáraukalög fyrir árið 1989. Fréttamaður Ríkissjónvarpsins, Ingimar Ingimarsson, var kominn á sinn stað og hann var tilbúinn að segja fólkinu í
landinu hvað væri að gerast hér í sölum Alþngis. Hér hefði komið formaður fjvn., og þeir sem hafa fylgst með hafa ekki heyrt þyngri ákúrur hjá einum formanni fjvn. um fjármálastjórn fjmrh., sem hann styður, en það sem formaður fjvn., hv. 5. þm. Vestf. Sighvatur Björgvinsson, sagði hér í dag. Nál. liggur hér fyrir. Það töluðu hér í dag tveir fulltrúar minni hl., hv. 2. þm. Norðurl. v. Pálmi Jónsson og hv. 7. þm. Norðurl. e. Málmfríður Sigurðardóttir, en þau eru bæði aðilar að minnihlutaáliti fjvn. ásamt þeim hv. þm. Agli Jónssyni og Friðjóni Þórðarsyni. Fréttamanninum fannst ekki ástæða til þess að skýra þjóðinni frá því hvað þessir þm., hvað minni hl., hvað stjórnrandstaðan á Alþingi hefði að segja um fjáraukalögin og frv. til fjáraukalaga, ekki eitt orð.
Það er nýlega búið að taka upp sjónvarp úr breska þinginu og þess er stranglega gætt þar með hvaða hætti sagt er þar frá hlutum þannig að fram komi hvert sé sjónarmið stjórnarinnar og stjórnarandstöðu. Dettur mönnum í hug að breski Verkamannaflokkurinn á þingi mundi sætta sig við það að frá hans skoðunum væri ekki skýrt? Ég segi nei. ( Forseti: Má ég vekja athygli hv. 1. þm. Reykn. á því að það hefur aldrei þótt góður siður að ræða hér málefni manna sem ekki hafa tækifæri til að svara fyrir sig. Má ég gerast svo djörf að leggja til að hv. þm. ræði þessi mál beint við umræddan fréttamann en geri þetta mál ekki að umræðuefni hér í þingsölum.) (Gripið fram í.) Ég hafði hugsað mér að beina ákveðinni fyrirspurn og tilmælum til forseta þingsins eftir að ég væri búinn að ljúka máli mínu í sambandi við fréttir af því sem hér er að gerast.
Eftir að þessar umræður höfðu farið fram, þ.e. fulltrúa fjvn., kom hér upp í ræðustólinn hæstv. fjmrh. og flutti ræðu, hellti úr skálum reiði sinnar og sló met í hraða þegar hann var að tala, svo hratt að hann var kannski kominn orði fram fyrir sig þegar setningin kom svo í heilu lagi. Hann vék sérstaklega að fjármálastjórn okkar sjálfstæðismanna og með hvaða hætti fjáraukalög hefðu fengð afgreiðslu í okkar tíð. Ég kom hér upp í ræðustólinn. Ég hafði þessi plögg öll hér með mér, hvert og eitt frv. til fjárlaga síðan 1975, og sýndi fram á að þegar alþýðubandalagsfjármálaráðherra var, Ragnar Arnalds, kom hann
ekki einu fjáraukalagafrv. í gegnum þingið. Datt fréttamanni Ríkisútvarpsins í hug að segja frá þessu? Nei. Hann birti myndina af hæstv. fjmrh. Hann var þá ekki að lesa í blaði. Hann var þá að tala hér úr ræðustólnum. Síðan þegar hann hafði lokið máli sínu, þá kom ný frétt. Og nú er komið að forsetanum. Telur forsetinn að slík fréttamennska sé Alþingi samboðin? Ég segi nei. Það verður hver og einn að meta það. Hitt liggur ljóst fyrir að meðan við teljum okkur vera að sinna löggjafarstarfi hjá lýðræðisþjóð verður það ekki liðið að aðeins rödd þess aðila sem fer með völdin heyrist. Það sem er að gerast í Austur-Evrópu í dag er þvert á það sem sjónvarpið var að gera í kvöld. Slíkur fréttaflutningur dæmir sig sjálfur, og ég trúi ekki að forsetar Alþingis láti slíkt
viðgangast.