Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég er hæstv. fjmrh. þakklátur fyrir hans svar. Það ber með sér að hann hefur fallist á þau rök sem við í minni hlutanum höfum lagt fram um það að fyrirsjáanlegt er að ýmsar vörur muni hækka að öðrum kosti um 1--2%, jafnvel meir, ef sú 5--6 milljarða fjárbinding sem verslunin yrði að öðrum kosti að taka á sig yrði að veruleika. Ég er mjög þakklátur líka vegna þess að hæstv. ríkisstjórn hefur ekki sýnt nægilegan samstarfsvilja við aðila vinnumarkaðarins nú þegar þeir eru að reyna að knýja fram einhverja þá málamiðlun á vinnumarkaði sem tekur mið af því að áframhaldandi kjararýrnun er fyrirsjáanleg á næsta ári og tekur mið af þeirri miklu óvissu sem nú er í atvinnulífinu. Því er spáð að atvinnuleysi vaxi jafnvel um þriðjung á næsta ári. Það er því mjög brýnt að ríkisstjórnin reyni að halda þannig á stjórn ríkisfjármála að það komi ekki í veg fyrir skynsamlega lausn á vinnumarkaðinum nú.