Lánsfjárlög 1990
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Um áramótin 1988/1989 var um að ræða verulega skuld Ríkisútvarpsins á launareikningi hjá ríkissjóði og í byrjun þessa árs var um það rætt að Ríkisútvarpið mundi á árinu 1989 reyna að vinna þá skuld niður. Eitthvað hefur þokast í þá átt. Jafnframt var um það rætt í upphafi þessa árs að það yrði athugað að ríkissjóður yfirtæki þær skuldbindingar sem áður lágu á Ríkisútvarpinu og legið hafa á Ríkisútvarpinu vegna afnotagjalda aldraðra og öryrkja sem búa við tekjutryggingu og heimilisuppbót. Og það hefur verið rætt um það núna nýlega, einmitt í sambandi við gjaldskrármálið sérstaklega sem hv. 6. þm. Reykv. nefndi, að þessi mál yrðu skoðuð í samhengi, þ.e. annars vegar uppgjörið gagnvart Tryggingastofnun ríkisins og hins vegar uppgjörið á launaskuld Ríkisútvarpsins við ríkissjóð.
    Varðandi afnotagjöldin er svo það að segja að um það hefur verið rætt að reyna að halda verulega niðri öllum opinberum gjaldskrám á næsta ári, á árinu 1990, og m.a. hefur í því sambandi auðvitað verið fjallað um afnotagjöld Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið hefur þá sérstöðu miðað við ýmsar aðrar ríkisstofnanir að Ríkisútvarpið er í samkeppni meðan aðrar ríkisstofnanir búa einar að viðkomandi markaði og í dag er staðan þannig að afnotagjöld Ríkisútvarpsins eru 1575 kr. á mánuði á meðan afnotagjöld t.d. af Stöð 2 eru tæplega 2000 kr. á mánuði. Afnotagjöld Ríkisútvarpsins hafa verið hækkuð verulega á þessu ári þannig að ég hygg að í raun séu afnotagjöld Ríkisútvarpsins í dag, desember 1989, hærri en þau hafa mjög lengi verið. Og af því skýrist það að fjárhagur Ríkisútvarpsins á þessu ári hefur batnað mjög verulega. Hins vegar er ljóst að ef til þess kemur að hækkanir afnotagjalda verða takmarkaðar á árinu 1990, þá getur jafnframt til þess komið að Ríkisútvarpið verði að draga úr sínum framkvæmdaáformum. Það er hlutur sem opinberar stofnanir verða að búa sig undir að þurfa að búa við miðað við þær
almennu kringumstæður sem eru í okkar efnahags- og atvinnulífi. Þetta er svar við fyrirspurninni frá hv. þm. Þingmaðurinn spurði reyndar: Mun verða tryggt að Ríkisútvarpið fái það sem það þarf? Og þá geri ég ráð fyrir að hv. þm. hafi átt við rekstur og þau framkvæmdaáform sem legið hafa fyrir og kynnt voru fyrir hv. fjh.- og viðskn. Svarið er: Ég geri ráð fyrir að unnt verði að tryggja rekstur Ríkisútvarpsins með eðlilegum hætti á árinu 1990. Hins vegar liggur ekkert fyrir um það að hægt verði að efna til þeirra framkvæmda að fullu sem forráðamenn Ríkisútvarpsins hafa gert ráð fyrir.
    Varðandi aðflutningsgjöldin þá er það rétt hjá hv. þm. að það er gert ráð fyrir því í lánsfjárlagafrv. og fjárlagafrv. að þau renni í ríkissjóð. Í þessum efnum þurfa menn að hafa það í huga að verulegar breytingar eru fyrirhugaðar á fjárhag Ríkisútvarpsins að öðru leyti með því að Alþingi taki sig til og

samþykki hér á næsta ári ný útvarpslög. Þar hefur m.a. verið rætt um það að þessi aðflutningsgjöld renni til ríkissjóðs áfram. Jafnframt hefur verið rætt um það að menningarsjóðsgjaldið, sem hefur verið lagt á Ríkisútvarpið sérstaklega, falli niður eða breytist og í þriðja lagi að þær skuldbindingar sem Ríkisútvarpið sérstaklega hefur haft vegna Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem eru 40--50 millj. kr. að talið er sem er uppsöfnuð skuld frá nokkrum árum, að þessi kostnaður af Sinfóníunni falli ekki á Ríkisútvarpið með sama hætti og verið hefur. Þessi fjármál Ríkisútvarpsins eru því í deiglunni og ég vænti þess að ég hafi svarað spurningu hv. þm. eins og kostur er miðað við núverandi aðstæður.