Eftirlaun til aldraðra
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Frsm. heilbr.- og trn. (Stefán Guðmundsson):
    Hæstv. forseti. Ég tala hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum um eftirlaun til aldraðra, nr. 2/1985. Heilbr.- og trn. hefur komið saman og fjallað um þetta frv. og er sammála um að það verði samþykkt eins og það hefur komið til okkar frá Nd.
    Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Salome Þorkelsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir skrifar undir nál. með fyrirvara, Karl Steinar Guðnason skrifar einnig undir nál. með fyrirvara, Margrét Frímannsdóttir, Jóhannes Geir Sigurgeirsson og Guðmundur H. Garðarsson.