Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegur forseti. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er mál sem flestallir hv. þm. hafa lítinn áhuga fyrir, vegna þess að hér er um skattlagningu að ræða á iðgjöld lífeyrissjóðanna, þ.e. lífeyrissjóðanna sem eru á samningssviði ASÍ og Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambands samvinnufélaganna.
Þegar þetta mál var hér til 1. umr. gerði ég grein fyrir því að þegar ríkisstjórnin gerði samkomulag við verkalýðshreyfinguna sl. vor um að þessar greiðslur héldu áfram þá var það einmitt eftirtektarvert og meira en það, þá var það raunverulega samkomulag milli aðila, þó ekki væri skráð, að lögum yrði ekki framlengt með þeim hætti að iðgjöld lífeyrissjóða sem eru með öfugan höfuðstól væru skattlögð með þessum hætti. Ég tel að með þessu sé raunverulega verið að fremja ákveðið lögbrot, alla vega siðferðislegt brot gagnvart þeim sem eru aðilar að þessum lífeyrissjóðum sem geta raunverulega ekki staðið við skuldbindingar sínar skv. lögum og reglugerð. Með því að leggja þetta frv. fram með þeim hætti sem hæstv. ríkisstjórn hefur gert er raunverulega verið að svíkjast undan þeim loforðum sem hæstv. ríkisstjórn gaf sl. vor.
Ég verð þess vegna, virðulegur forseti, að gera grein fyrir mínu atkvæði og taka fram að ég er fylgjandi því efnislega að ákveðnar viðbótargreiðslur eigi sér stað til lífeyrisþega sem eru í lífeyrissjóðum, sem þurfa á slíku að halda. En með tilliti til þess að ekki var samið við verkalýðshreyfinguna um framlengingu á umræddum lögum með þessum hætti og að ekki hefur gefist svigrúm til að leita umsagnar hjá aðilum vinnumarkaðarins vegna þess hvað frv. kom seint fram og einnig með tilliti til þess að ekki hefur verið leitað umsagnar hjá þolendum sem eru lífeyrissjóðirnir, þá segi ég nei.