Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson):
Virðulegur forseti. Ég vil hér við 3. umr. gera grein fyrir tveimur brtt. sem fram hafa komið frá 2. umr. fyrir hlé. Þetta eru brtt. á þskj. 415 og 418. Nefndin kom saman korter fyrir níu og ræddi þessar brtt. ásamt fleiri málum.
Fyrri brtt. er við 1. gr. frv. Þá breytist talan ,,6 milljarðar 300 millj.`` í 6 milljarða 625 millj. Þetta er lagt til vegna aukinnar fjárþarfar ríkissjóðs, vegna þess að fram hefur komið að hallinn á ríkissjóði á þessu ári hefur reynst meiri en ráð var fyrir gert, en jafnframt vegna þeirra frv. sem og samkomulags sem gert hefur verið reynist þetta óhjákvæmilegt.
Hin brtt. er á þskj. 418 og það er einnig fjh.- og viðskn. sem flytur þá till. Hún er um það að á eftir 37. gr. komi ný grein er orðist svo: ,,Þrátt fyrir ákvæði í 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er fjmrh. heimilt að fella niður eða endurgreiða virðisaukaskatt af gjöfum til björgunarsveita, svo og til mannúðar- og líknarstarfsemi.``
Eins og ég sagði áðan voru allir nefndarmenn sammála því að gera þessar brtt. við lánsfjárlögin nú við 3. umr. Þá vil ég lýsa því yfir að á þessum fundi nefndarinnar núna kl. 9 var einnig fjallað um brtt. sem tveir hv. þm., Guðrún Agnarsdóttir og Danfríður Skarphéðinsdóttir, hafa lagt fram og drógu til 3. umr. Það er að 21. gr. frv. falli niður en hún er um Menningarsjóð. Gert er ráð fyrir að framlag til Menningarsjóðs verði takmarkað við 8,5 millj. Allir nefndarmenn voru sammála um að fallast á þessa brtt. og vil ég fyrir hönd nefndarinnar, sem formaður hennar, lýsa því hér með yfir.
Þá hef ég farið yfir þær brtt. sem meiri hl. hefur lagt til. Í fyrsta lagi um að breyta 1. gr., síðan brtt. sem fjh.- og viðskn. gerir við 37. gr. og svo það sem nefndin var sammála um, að mæla með því að 21. gr. frv. um Menningarsjóð falli niður.