Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég stenst ekki mátið að koma hér og gera athugasemdir við eina grein þessa frv. til lánsfjárlaga. Það er 27. gr. sem varðar málefni aldraðra.
Þegar lög um staðgreiðslu skatta gengu í gildi var þessi nefskattur, sem átti að renna til málefna aldraðra, einn af þeim sköttum sem voru felldir niður, eða réttara sagt felldir inn í staðgreiðslukerfið. Á sl. vori var þessi skattur tekinn upp á ný þegar breyting var gerð á lögum um málefni aldraðra og kom hæstv. fjmrh. þannig aftan að skattgreiðendum. Ekki þótti mér það nú stórmannlega að farið í skattahækkunum að nota til þess Framkvæmdasjóð aldraðra. En flestir gera sér grein fyrir því að hér er um mikilvægan málaflokk að ræða því þörfin til að sinna þessum málaflokki er brýn og hefur aukist mjög á undanförnum árum. Lífaldur manna fer hækkandi og öldruðum fjölgar í þjóðfélaginu. Því þykir mér steininn taka úr þegar nú á að skerða tekjur þessa sjóðs og fjmrh. ætlar að láta sig hafa það að taka í ríkishítina hluta af tekjum sjóðsins með skerðingarákvæði þessa frv. til lánsfjárlaga skv. 27. gr.
Ég minnist þess að hæstv. heilbr.- og trmrh. hafði fögur orð um það hér á sl. vori þegar verið var að ræða um frv. til laga um málefni aldraðra að hér væri um að ræða gott mál þegar þessi skattur var aftur tekinn upp í því frv. Þetta væri gott mál sem menn teldu ekki eftir sér að leggja lið með nefskatti enda aldrei verið skertur. Þetta tók hæstv. heilbr.- og trmrh. fram og það mun rétt vera. Þessi nefskattur var ekki einn af þeim sem hafa verið með þessi ,,þrátt fyrir`` ákvæði í lánsfjárlögum á hverju einasta ári.
Ég lét í ljósi álit mitt við umræðuna á sl. vori um það frv. sem ég nefndi, þ.e. málefni aldraðra, að ég efaðist mjög um að tekjur þessa sjóðs fengju að renna óskertar í Framkvæmdasjóð aldraðra. Ég efaðist um að hæstv. fjmrh. mundi sætta sig við að taka ekki til sín eitthvað af tekjum þessa sjóðs. Það hefur nú komið á daginn og ég vil ítreka það að þetta er í fyrsta sinn frá því að lögin um Framkvæmdasjóðinn tóku gildi að tekjur þessa sjóðs verða nú skertar.
Ég mótmæli þessu og ég mun sýna mín mótmæli með því að greiða atkvæði brtt. sem flutt er af hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur og Danfríði Skarphéðinsdóttur, um að 27. gr. verði felld brott.