Halldór Blöndal (um atkvæðagreiðslu) :
Herra forseti. Ég hef verið að velta því fyrir mér síðan ég sá brtt. á þskj. 418 hvort það félli inn í lánsfjárlög að breyta skattalögum með þeim hætti sem hér er gert. Hér stendur: ,,Þrátt fyrir 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er fjármálaráðherra heimilt að fella niður eða endurgreiða virðisaukaskatt af gjöfum til björgunarsveita, svo og til mannúðar- og líknarstarfsemi.``
Þannig hittist á að frv. um breytingu á lögum um virðisaukaskatt er til umræðu nú í Nd. og ég óska eftir því að gengið verði úr skugga um það hvort ekki sé hægt að ná samkomulagi um að fella þessa brtt. inn í lög um virðisaukaskatt úr því að meiri hl. þingsins stendur til þess að fella niður virðisaukaskatt af gjöfum til björgunarsveita, svo og til mannúðar- og líknarstarfsemi sem ég er samþykkur. Ég óska eftir því að hæstv. forseti athugi hvað sé þinglega rétt í þessu sambandi.