Stimpilgjald
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 419 frá fjh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 36/1978. Nál. er á þessa leið:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og leggur til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru í meðförum neðri deildar.``
    Í frv. er lagt til að stimpilgjald hlutabréfa lækki úr 2% af fjárhæð bréfanna í 0,5%. Ég tel rétt til skýringa að lesa hér aðeins upp úr greinargerð sem fylgir frv. en þetta er þmfrv. sem þm. Guðmundur G. Þórarinsson, Alexander Stefánsson og Ólafur Þ. Þórðarson fluttu í Nd. Þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Um þessar mundir mun það samdóma álit fjölmargra í þjóðfélaginu að mikil nauðsyn sé að auka eigið fé fyrirtækja. Margt kemur þar til. Á undanförnum árum hefur gengið mjög á eigið fé fyrirtækja í mörgum greinum, ekki síst í útflutnings- og samkeppnisgreinum. Lánsfé er dýrt og vextir háir vegna mikillar eftirspurnar eftir lánsfé. Allt ber því að sama brunni, þ.e. æskilegt er að fyrirtæki auki eigið fé sitt. Á það er hins vegar að líta að það er kostnaðarsamt að auka hlutafé vegna stimpilgjalda. Auki fyrirtæki hlutafé sitt
um t.d. 50 millj. kr. ber því að greiða 1 millj. kr. í ríkissjóð í stimpilgjöld af hlutabréfunum.``
    Undir þetta tekur hv. fjh.- og viðskn. Ed. og mælist til að frv. verði samþykkt óbreytt, en það skal tekið fram að í meðförum hv. Nd. var gildistökuákvæðinu breytt á þá leið að lögin öðlist ekki þegar gildi heldur hinn 1. jan. 1990.