Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Á þskj. 379 liggur fyrir nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. varðandi þetta mál, en meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Að nál. standa Friðrik Sophusson, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Matthías Bjarnason, Þórður Skúlason, Guðmundur G. Þórarinsson og sá sem hér talar.
Hér er um að ræða frv. sem leiðir af breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þannig að starfsmenn eru ekki knúðir til að hafa félagaskipti.
Minni hl. nefndarinnar skipar Þórhildur Þorleifsdóttir.