Kjarasamningar opinberra starfsmanna
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Eins og kom fram í ræðu minni áðan tel ég þetta mál illa undirbúið og hefði átt að leggja það fram strax í haust. Þetta er eitt af þeim málum sem ekki hefur verið gengið frá varðandi verkaskiptinguna. Ég tel að tillaga Kvennalistans sé þó til bóta og segi já.