Uppboðsmarkaður fyrir sjávarafla
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Frsm. sjútvn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Sjútvn. hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt eins og það kemur frá Ed. Alexander Stefánsson og Hreggviður Jónsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Undir nál. skrifa Geir Gunnarsson, Matthías Bjarnason, Guðni Ágústsson, Kristinn Pétursson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.