Bifreiðagjald
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Það er rétt sem kom fram hjá frsm. nefndarinnar að hér er um samkomulagsmál að ræða. Þar sem frestað hefur verið afgreiðslu á fyrirliggjandi máli þótti eðlilegt að minni hl. nefndarinnar stæði að flutningi þessa máls. Með því er ekki verið að lýsa yfir stuðningi við það frv. sem bíður nema síður sé.