Virðisaukaskattur
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég kem eingöngu hér í ræðustól til að fagna þeirri yfirlýsingu sem hæstv. fjmrh. gaf út hér rétt í þessu og tel hana mjög skynsamlega og vona að þar fylgi hugur máli.
    Ég vil aðeins segja í lokin að hér hefur verið dreift allsérstöku plaggi á þinginu sem heitir ,,Það er allt hægt, vinur`` og geri þau að mínum lokaorðum.