Virðisaukaskattur
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Jón Sæmundur Sigurjónsson:
    Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á þeim málsliðum í nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. sem lúta að því umræðuefni sem við fjöllum hér um. Þar er sagt að nefndarmenn hafi fjallað ítarlega um gjaldfrest í tolli og að meiri hl. nefndarinnar sé ljóst mikilvægi þess að sporna við hækkun verðlags og vaxta. Meiri hl. bendir á að ákveðið hafi verið að gjaldfrestur á virðisaukaskatti verði veittur við innflutning á hráefni til innlendrar iðnaðarframleiðslu og síðan segir: ,,Meiri hlutinn telur mikilvægt að fjmrn. kanni kosti þess að veita víðtækari gjaldfrest á innflutningi í því skyni að koma í veg fyrir verðlagshækkanir.``
    Ég veit ekki hvort þessi könnun hefur þegar farið fram en eftir yfirlýsingu fjmrh. veit ég að þessi könnun verður a.m.k. gerð með því jákvæða hugarfari að gripið verði til þeirra aðgerða að ekki komi til verðlagshækkana af þessum sökum. Því fagna ég yfirlýsingu fjmrh. eindregið.