Frsm. iðnn. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Iðnn. hefur fjallað um málið og álit hennar er að finna á þskj. 432 svohljóðandi:
,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og leggur til að það verði samþykkt. Nefndin leggur jafnframt áherslu á að vegna undirbúnings frekari framkvæmda á vegum Kísiliðjunnar hf. og reksturs annarra fyrirtækja er hún kynni að standa að í Mývatnssveit verði fyllsta aðgát höfð varðandi áhrif á umhverfi og lífríki svo að ekki hljótist af skaðleg röskun.``
Páll Pétursson var fjarstaddur við afgreiðslu málsins. Aðrir nefndarmenn standa að þessu áliti.