Veiðieftirlitsgjald
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Frsm. sjútvn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Sjútvn. hefur rætt þetta frv. Til viðræðna við nefndina voru kallaðir Arthur Bogason og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda, Helgi Laxdal frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Kristján Ragnarsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Óskar Vigfússon og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands og Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjútvrn.
    Nefndin telur rétt að gera eftirfarandi breytingar á frv.:
    Í frv. er gert ráð fyrir því að veiðieftirlitsgjald standi að öllu leyti straum af kostnaði við veiðieftirlit. Nefndin leggur til að ríkissjóður beri þennan kostnað að hálfu fyrst um sinn og eru breytingar á 1. og 2. gr. til samræmis við þetta. Í því felst að heimild fjmrn. til gjaldtöku í þessu sambandi fellur niður.
    Í öðru lagi telur nefndin rétt að breyta orðalagi 3. gr. frv. þannig að vegna fasts gjalds smábáta frá 6--10 brl. komi tilvísun til gjaldbreytinga í 2. gr. frv.
    Í þriðja lagi leggur nefndin til að 4. gr. frv. falli niður og efni hennar verði athugað nánar í tengslum við heildarendurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða.
    Í fjórða lagi leggur nefndin til að lögin taki gildi hinn 1. jan. 1990.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj.
    Þórhildur Þorleifsdóttir var viðstödd afgreiðslu málsins og er samþykk henni.
    Undir þetta nál. skrifa Hreggviður Jónsson, Alexander Stefánsson, Matthías Bjarnason, Guðni Ágústsson, Kristinn Pétursson, Geir Gunnarsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.