Almannatryggingar
Miðvikudaginn 20. desember 1989


     Frsm. meiri hl. heilbr.- og trn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um þetta frv. og sent það til umsagnar endurskoðunarnefndar almannatryggingalaganna. Til viðræðna við nefndina komu Þorgrímur Jónsson tryggingalæknir, Magnús L. Gíslason og Ingimar Sigurðsson frá heilbr.- og trmrn., Börkur Thoroddsen frá Tannlæknafélagi Íslands og Teitur Jónsson frá Tannréttingafélaginu.
    Í því frv. sem hér er til afgreiðslu er gert ráð fyrir að nýtt fyrirkomulag verði tekið upp í tannréttingum, sérstaklega varðandi sérhæfða þjónustu við börn og unglinga á aldrinum 6--18 ára. Meiri hl. nefndarinnar bindur vonir við að forgreining og flokkun sem stefnt er að í frv. varðandi tannréttingar stuðli að betri tannþjónustu við börn og unglinga um leið og það dregur úr kostnaði við þessa þjónustu. Meiri hl. leggur sérstaka áherslu á að skipuleg innköllun barna til þessarar þjónustu virðist munu stuðla að betri tannheilsu. Þær hugmyndir, sem beinast að kostnaðarþátttöku ríkisins að 90%, bæði fyrir börn á aldrinum 5 ára eða yngri og börn og unglinga á aldrinum 6--15 ára, telur meiri hl. nefndarinnar mjög athyglisverðar og beinir þeim tilmælum til endurskoðunarnefndar almannatryggingalaga að þessi kostnaðarskipting verði athuguð sérstaklega.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að eftirtaldar breytingar verði gerðar á frv.:
    Fyrsta breyting sem meiri hl. nefndarinnar leggur til fjallar um brottfall tilvísunarskyldu en í b-lið 43. gr., sem fjallar um greiðsluskyldu sjúkratrygginga, segir í frumvarpstextanum: ,,Nauðsynlegar rannsóknir og aðgerðir hjá sérfræðingum og stofnunum sem Tryggingastofnun ríkisins hefur samning við``, að sjúkratryggingar greiði fyrir slíkt, en fyrir gamla tilvísunarformið komi sérstakt reikningsform sem Tryggingastofnun ríkisins lætur útbúa sérstaklega í því sambandi, þ.e. sérstök eyðublöð og þá í samráði við samningsaðila með það að markmiði að tryggja fagleg samskipti milli sérfræðinga innbyrðis og milli sérfræðinga og heimilislækna og/eða heilsugæslulækna.
    Önnur brtt. er í samræmi við samkomulag ríkisstjórnarinnar við sveitarfélög. Við uppgjör kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga við yfirtöku ríkisins á tannlæknakostnaði hefur komið fram að ekki var tekið inn í útreikningana þátttaka sveitarfélaganna í kostnaði við tannlækningar fyrir aldurshópinn 6--15 ára, sbr. nánar 2. tölul. 2. mgr. núgildandi 44. gr. almannatryggingalaga. Er hér um að ræða 346 millj. kr. Þar sem ekki var gert ráð fyrir þessum kostnaði við áðurnefnt uppgjör telur ríkisstjórnin eðlilegt að sveitarfélög taki að sér greiðslu hluta þessa kostnaðar. Hefur orðið að samkomulagi að þau taki að sér greiðslu eins þriðja hluta kostnaðar fyrir aldurshópinn 6--15 ára. Með þessu er ekki verið að leggja til neinar breytingar á sjálfri framkvæmdinni.
    Loks er lagt til að ekki verði skírskotað til 16. gr. laga nr. 87/1989, um verkaskiptingu ríkis og

sveitarfélaga, þar sem sú grein fjallar
eingöngu um tannlækningar en með þeim breytingum, sem hér eru lagðar til, tekur frv. á fleiri þáttum.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj.
    Undir þetta nál. skrifa Guðmundur G. Þórarinsson, Geir Gunnarsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Jón Sæmundur Sigurjónsson.