Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseti vill, áður en næsti hv. ræðumaður tekur til máls, upplýsa eftirfarandi:
Hugmyndin er að þegar þessari umræðu lýkur fari fram atkvgr. um fjáraukalög. Síðan hefur forseti hugsað sér að setja nýjan fund þar sem á dagskrá er ein fsp. sem hv. 2. þm. Norðurl. e. hefur óskað eftir að fá svar við. Síðan hefur hv. 2. þm. Austurl. óskað eftir að fá að ræða í hálftíma utan dagskrár afskipti bandaríska sendiráðsins af íslenskum innanlandsmálum og forseti mun láta þá umræðu fara fram að lokinni fsp.
Klukkan tvö hefst síðan hinn þriðji fundur þar sem tekin verða fyrir fjárlög 1990, 3. umr.
Ég vænti þess að hv. þm. geti sætt sig við þennan gang mála.