Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):
Hæstv. forseti. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að hæstv. fjmrh. svari því hvenær þessi samtöl áttu sér stað milli embættismanna fjmrn. og Byggðastofnunar. Ég held að það dugi ekki að hæstv. fjmrh. komist upp með það að svara ekki beinum fyrirspurnum sem bornar eru fram með þinglegum hætti. Og ég vil óska eftir því að hann svari úr sæti sínu: Hvenær átti þetta samtal sér stað, í dag, í gær? Ég óska eftir því að hæstv. forseti úrskurði að ráðherrann verði að svara. Og ég vil jafnframt lýsa því yfir að ég efast um að hann fari rétt með tölur í þessu sambandi en skal á hinn bóginn kynna mér það. Það má mikið vera ef svo er. Í þriðja lagi vil ég lýsa því yfir að þær 200 millj. kr. sem veittar hafa verið vegna verkefna í skipasmíðastöðvum eru engar sérstakar aðgerðir sem sú ríkisstjórn sem nú situr hefur beitt sér fyrir, heldur erum við að tala um sérstakar lánveitingar sem hafa farið í gegnum Byggðasjóð svo árum skiptir. Við erum því ekki að tala um neinar sérstakar aðgerðir í atvinnumálum svo að ef skilningur hæstv. fjmrh. er réttur, að það þurfi til að koma til þess að heimilt sé að gefa eftir lántökugjaldið, er sú heimild ekki fyrir hendi í sambandi við þessa peninga, enda hygg ég að hæstv. fjmrh. muni að Alþingi felldi það að þessir fjármunir yrðu undanþegnir lántökugjaldinu. Vilji Alþingis í þeim efnum liggur þess vegna alveg skýr fyrir. Hitt er aftur ljóst að hæstv. iðnrh. lýsti því yfir við umræður í efri deild, svo og hv. 3. þm. Norðurl. v., að ekki skipti máli hvað Alþingi segði eða gerði. Lántökugjald vegna skipasmíðaverkefna hér á landi yrði endurgreitt. Nú hefur hæstv. fjmrh. lýst því yfir að hann hafi látið einhvern embættismann hringja einhvern tímann. Ég veit að hann var ekki búinn að hringja fyrir tveimur dögum. Hvenær hringdi hann? Ég hygg að það sé nauðsynlegt að fá þetta mál upplýst. Að öðrum kosti er nauðsynlegt að halda umræðum um það örlítið lengur áfram undir öðrum dagskrárlið.