Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég er ekki að tala um efnislega umræðu þeirrar fyrirspurnar sem var lögð fram. Ég er að fjalla um það að hæstv. fjmrh. fór með ósannindi hér í ræðustólnum áðan þegar hann vitnaði til viðskrh. um það að lántökugjaldið yrði ekki lagt á þessi sérstöku lán vegna skipasmíða, og endurtók nú áðan að hér væri eingöngu um uppgjör að ræða milli Byggðastofnunar og fjmrn. sem er efnislega rangt. Lántökugjaldið hefur fallið á útgerðarmenn og ég ítreka enn að ég óska eftir því að hæstv. fjmrh. upplýsi eins og honum ber að gera þegar formleg fyrirspurn er lögð fram: Hvenær bárust embættismönnum fjmrn. fyrirmæli um að þetta lántökugjald skyldi endurgreitt? Og hvenær barst Byggðastofnun tilkynning um að lántökugjald hefði ekki átt að greiða af þessum fjármunum? Er það virkilega svo að forseti þingsins sé varnarlaus gagnvart einstökum ráðherrum ef þeir neita að svara fyrirspurnum sem eru þinglega fram bornar? Hvar er þá réttur þingmanna og til hvers er þá verið að þessum leik? Ég óska eftir því við hæstv. forseta að hann knýi hæstv. ráðherra til þess að svara því sem ég spyr um.
    Það er nú einu sinni svo hér í þessum þingsölum að einstakir ráðherrar eru með alls konar meldingar úti í þjóðfélaginu, m.a. um það að við í stjórnarandstöðunni höfum tafið hér þingstörf. Núna fyrir stundu var verið að afgreiða mál, aukafjárlög, sem m.a. fela það í sér að ekki er staðið við bein loforð og bein fyrirheit einstakra ráðherra varðandi byggðarlög úti á landi sem orðið hafa fyrir náttúruhamförum, heldur ekki staðið við fyrirheit sem einstakir ráðherrar hafa gefið menningarstofnunum eða öðrum. Er niðurlæging þingsins nú orðin svo mikil að hæstv. forseti hafi ekki tök á því að knýja ráðherrann til svara um fyrirspurn sem er formlega fram lögð?