Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hv. 2. þm. Austurl. hefur komið að máli við forseta og farið fram á að taka til máls utan dagskrár um afskipti bandaríska sendiherrans af íslenskum innanríkismálum. Forseti hefur orðið við þessari beiðni og fer umræðan fram samkvæmt fyrri mgr. 32. gr. þingskapa og skal ekki standa lengur en í hálftíma. Ég vil brýna hv. þm. til þess að fara ekki fram úr þeirri tímaáætlun þar sem áríðandi er að taka til við afgreiðslu fjárlaga kl. 2.